Víkurfréttir - 21.07.1983, Side 5
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 21. júlí 1983 5
ÍSLANDSMÓTIÐ, I. DEILD - ÍBV-ÍBK 1:2
Góður sigur í Eyjum
„Þetta var mjög kærkom-
inn sigur og það á heima-
velli þeirra eyjaskeggja,"
sagði Þorsteinn Bjarnason,
markvörður (BK, en hann
átti mjög góðan leik gegn
ÍBV. „Með smá heppni
hefðum við unnið stærri
sigur því við áttum mjög
góð tækifæri sem hefðu átt
að gefa mörk.“
Nú virðist ykkur ganga
betur á útivelli en heima,
hvað er það sem veldur?
„Þetta virðist allt vera að
smella saman hjá okkur,
allir tala orðið saman á vell-
inum og menn ná betur til
hvers annars, samvinnan er
orðin meiri. Annars verðum
við að fara að vinna heima-
leiki og við erum ákveðnir í
að gera það. Það veröur
ekki gefin tomma eftir,"
sagöi Þorsteinn.
Sigurinn í Vestmannaeyj-
um var mjög kærkominn
fyrir liðið. Eyjamenn hafa
verið ósigrandi á heimavelli
í sumar og virkað mjög
sterkir í leikjum sínum.
Keflavíkurliðið hefurafturá
móti sýnt allar sínar bestu
hliðar í undanförnum leikj-
um, vörnin hefur náð mjög
vel saman og tilkoma Ragn-
ars Margeirssonar í fram-
linuna hefur haft mikið að
segja, því hann dregur oft
marga varnarmenn að sér
og þá hefur losnað um
„rauðu hættuna", sem sam-
anstendur af Óla Þór og
Einari Ásbirni, sem hafa
uppskorið nokkur mörk
saman. Óli Þór brillerar nú
alveg meðglæsilegum send
ingum sínum, nokkuð sem
menn þekktu ekki hjá hon-
um áður. Nýliðarnir þeir
Freyr og Björgvin eru að ná
sér á strik og Freyr undir-
strikaði það með góöu
marki í Eyjum og það er að-
eins tímaspursmál hvenær
Björgvin skorar sitt fyrsta
mark í 1. deild.
Ef við snúum okkur að-
eins að leiknum í Eyjum þá
skoruðu Keflvikingar fyrsta
markið í leiknum á 18. min.
og var Freyr þar að verki
eftir góða sendingu frá
Ragnari. Á 75. mín. jöfnuðu
svo Eyjamenn með marki
Kára Þorleifssonar. Ekki
nema 6 mín. seinna skora
svo Keflvíkingar sitt annað
mark. Óli Þór gaf boltann á
Einar Ásbjörn, sem skoraði
örugglega, 2:1. Það sem
eftir lifði voru Keflvíkingar
nær að skora en heima-
menn að jafna.
Freyr Sverrisson skoraöi
fyrsta mark IBK i Eyjum.
Keflvíkingar eru nú
komnir með 11 stig í 1. deild
eftir 10 leiki, einum leik
færra en tvö efstu liðin.
Þessi leikur sem ÍBK á inni
er gegn Víkingum, sem
fram fer núna seinna i þess-
um mánuði. Næsti leikur
hjá ÍBK er gegn Þrótti n.k.
þriðjudag í Keflavík. - pket.
Brynjólfur hf.:
Lagði 523 tonn af malbiki
Eins og áður hefur komið
fram hér í blaðinueraðbún-
aður starfsfólks hjá Brynj-
ólfi hf. í Innri-Njarðvíkalveg
einstakur og fyrirtækinu til
mikils sóma.
En það er fleira en góð
starfsmannaaöstaða sem
þetta fyrirtæki hefur boðið
upp á. Það hefur nú i um 12
ár farið fram á það við Njarð
víkurbæ að hann malbikaði
við frystihúsið, án árang-
urs, og því greip þaðsjálfttil
þess að láta framkvæma
malbikun í kringum húsið
og meira en það, því Njarð-
víkurbrautin var malbikuð í
leiðinni upp fyrir kirkju.
Keypti Brynjólfur hf. alls
523 tonn af malbiki í verk
þetta og fékk verktaka til að
leggja það.
Þetta aðeins eitt af mörg-
um dæmum sem hægterað
segja frá varðandi fram-
kvæmdir þeirra Brynjólfs-
manna, en frekari frásagnir
bíða betri tíma. - epj.
NÝKOMNIR
Bómullar frotté jogging-
gallar frá PUMA
Litir: blátt/hvítt, rautt/hvítt.
Væntanlegir
gráir bómullargallar
frá PUMA
ásamt GLANSGÖLLUM.
SrM/dvil
0 Siml 2006 ^
Hringbraut 92 - Keflavik
Siml 1540
Frá og með mánudegi
25. júlí verður opið
kl. 9-19 mánudaga -
fimmtudaga.
Föstudaga kl. 9-20.
Laugardaga kl. 10-16.
Simi1540
Simi1540
Útsala!
Útsala!
Útsala!
Stórafsláttur af
okkar glæsilega
SUMARFATNAÐI
BARNA.
Sérstakt
tilboðsverð á
STRIGASKÓM.
þvottaefnið er mest selda þvottaefnið í Bandaríkjunum.
þvottaefnið fæst nú í flestum matvöruverslunum á Suður-
nesjum.
þvottaefnið er eina þvottaefnið, sem flutt er inn beint til
Suðurnesja, og því enginn flutningskostnaðurfrá Reykja-
vík til Suðurnesja.