Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.07.1983, Side 13

Víkurfréttir - 21.07.1983, Side 13
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 21. júlí 1983 13 Við opnum nýja Shellstöð I Njarðvík Nýja Shellstöðin að Fitjum í Njarðvík hefur verið opnuð. Allt hefur verið snyrt og snurfusað og gljáfægðarbensíndælurnar bíða þess með óþreyju að fá að fylla hjá þértankinn. Verið velkomin að Fitjum, — frá okkur fer enginn með tóman tankinn. Shellstöðin Njarðvík Hafsteinn Axelsson sf. 16. júní var skráð nýtt sameignarfélag hjá firma- skrá Njarðvíkur undir nafn- inu Hafsteinn Axelsson sf. Tilgangur félagsins er verktakastarfsemi. Stofnendur eru Þorleifur Björnsson, Sigurjón Haf- steinsson og Matthildur Hafsteinsdóttir, öll til heim- ilis í Njarðvík. - epj. Skeljungur h.f. 25 Oft hafa borist kvartanir og ábendingar til blaðsins vegna bílflaka er liggja eins og hráviður í kringum bíla- verkstæði Birgis Guðna- sonar við Grófina 7. Þó ástand þessara mála sé með betra móti núna, hefur það oft verið slæmt, og því slógum við á þráðinn til Birgis til að fá upplýsingar um hverju þetta sætti. Birgir sagöi að málum væri þannig háttað, að á hverju ári væri komið með allt að 25 ónýta bíla eða mikið skemmda eftir umferðaróhöpp, að verk- stæðinu. Væru þar að verki einstaklingar og lögreglan, bílflök á ári Hringtorgið við Samkaup þangað komin. ,,Þau flök sem nú eru á svæðinu eru þannig stað- sett, að erfitt hefur verið að komast að þeim," sagði Birgir, ,,en þau verða fjar- lægð innan tíðar." - epj. Eftir að tengibrautirnar milli bílastæðisins við Sam- kaup og Móahverfis og eins við Reykjanesbraut og í þriðja lagi við Hringbraut voru opnaðar, hefur bíla- stæðið orðið að nokkurs konar hringtorgi fyrir Njarð- víkinga. Lýsti þetta sér best um kl. 17 sl. fimmtudag, en þá var ég að koma út úr Samkaup og ók barnavagni eftir bíla- stæðinu, þegar bíll kom frá Reykjanesbraut og ók þvert yfir svæðið og virti engar umferðarreglur og sýndi enga aðgæslu. Síðan ók hann sem leið liggur niður í Móahverfi. Eg veit ekki hvers vegna bíllinn slapp við að aka á mig, það litlu munaöi. Þetta varð hins vegar til þess að ég fór að fylgjast með um- ferðinni þarna og komst þá að raun um að það var stanslaus straumur bíla frá Netaverkstæðinu og yfir í Móahverfi og flestir bílstjór- anna óku þarna mjög hratt og ógætilega þvert yfir merkt bílastæði. Eftir þessa reynslu mína er ég alveg ákveðin í að versla ekki meira í Sam- kaupum, af ótta við að verða keyrð niður með barnavagn þarna á þessu nýja hring- torgi Njarðvíkinga. Fyrrverandi viðskiptavinur Samkaupa Vegna þessa aðila sem segist vera hættur að versla í Samkaupum, höfðum við samband við Kristján Hans- son, verslunarstjóra Sam- kaupa, þar sem ekki náðist i kaupfélagsstjóra. „Við áttum von á að um- ferð myndi aukast þarna um og niður í Móahverfið, en ekki svona þvert yfir planið," sagði Kristján. „Þetta mun þó lagast, því þegar framtíðartenging verður komin mun núver- andi afleggjari niður á Reykjanesbraut lokast. Með því hverfur alveg þessi þverkeyrsla þarna á plan- inu." Albert K. Sanders bæjar- stjóri í Njarðvík sagði að þetta væri aðeins nýja- brumið, síðan hyrfi þetta. Eins yrði önnur tenging lögð fyrir Móahverfið. Væri þegar farið að leggja vatn og undirbúa þá götulögn. epj. auk hans sjálfs. Síðan hefði það oftast lent á honum að hreinsa þetta og fjarlægja flökin, eða þá að bærinn sæi um það, því viðkom- andi einstaklingar hirtu lítið um þau eftir að þau væru

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.