Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.08.1983, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 11.08.1983, Blaðsíða 7
VÍKUR-fröttir Fimmtudagur 11. ágúst 1983 7 Ef viljinn er fyrir hendi ... en nú er öldin önnur, eftir aóeins rúma 4 mánuöi. Nýlega sögöum viö frá því hér í blaöinu aö Grágás hf„ heföi tekið nýtt hús- næði í notkun fy rir starfsemi sína. Hús þetta er aö Vallargötu 14 og er þaö gott dæmi um þaö hvaö hægt er ef viljinn er fyrir hendi. Áður en núverandi eigendur eignuöust húsiö var oft rætt um þaö hér í bænum hvort ekki ætti aö veita eigendum þess skammarverölaun fyrir aö húsiö væri mosavaxnasta húsið í Keflavík og annaö í þeim dúr, enda var engin ofsögn þegar rætt var um slæmt útlit á húsinu. Eftirað núverandi eigendur höfðu látiö vinna viö húsiö í rúma fjóra mánuöi, var yfirbragö- iö orðið slfkt aö segja mætti að húsið hafi breyst úr hreysi í höll. Þetta er gott dæmi um hvaö má gera, sé vilji fyrir hendi og því er þetta birt hér til aö aörir þeir sem nú kannski eiga rétt á skamm- arverðlaunum geti séö aö þetta er hægt og ættu þeir aö taka sér þetta framtak til fyrirmyndar. Vegna mynd- anna sem fylgja greininni skal á þaö bent aö hér eru ekki brögö f tafli, heldur er hér um sama húsiö að ræða fyrir lagfæringu og eftir. epj. Klippurnar í gangi hjá lögreglunni Nú eiga eigendur allra bifreiöa meöskrásetningar- númerið Ö-4850 og þar undir aö hafa fært bifreiðar sinar til aðalskoöunar. Eins og oft vill veröa er mikill misbrestur á aö þetta sé gert eins og vera ætti. Því hefur lögreglan ísam- ráði viö bifreiðaeftirlitið, nú aö undanförnu veriö nokkuð ötul við aö klippa númer af þeim bifreiöum sem vanrækt hefur veriö aö koma meötil aöalskoöunar. Er búiö aö klippa nú á stutt- um tíma af samtals 143 bif- reiöum hér í umdæminu. Aö vísu er eitthvað af þessum bifreiðum vegna vanbún- aöar, en þær eru í miklum minnihluta. Ættu því þeir bifreiöaeig- endur sem enn hafa slopp- iö við klippurnar, en eru í þeim hópi sem eiga aö vera búnir aö láta skoöa, aö drffa sig í máliö, því lítiö gagn er af bílum ef númerin hafa verið klippt af. - epj. Suðurnesjakonur ath. Líkamsþjálfun Leikfimi Nú er bara að drífa sig í 4ra vikna leikfimi- námskeið, sem hefst 16. ágúst í íþróttahúsi Njarðvíkur. 50-60 mínútna leikfimi með músík fyrir dömur á öllum aldri. Dag- og kvöldtímar tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtu- dögum. Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir dömur á öllum aldri. - oOo - 60 mínútna leikfimi fyrir ungar dömur, 16 ára og eldri (þjálfunarkerfi fyrirjassballett), á mánudögum og miðvikudögum. Upplýsingar og innritun í síma 6062. BIRNA MAGNÚSDÓTTIR /■------------------------------------------------\ Gatnamótin umdeildu enn óafgreidd í síöasta blaöi var fjallaö um furöulega ákvörðun varðandi tenginu vegar frá Samkaupum inn á Hring- Lögreglan með nýjan radar Lögreglan hór á Suður- nesjum hefur tekið í notkun nýjan og mjög fullkominn radar til aö mæla ökuhraða bifreiöa í umdæminu. Með þessu nýja tæki voru t.d. í síöasta mánuöi teknir alls 94 ökumenn fyrir of hraöan akstur og var ökuhraði allt upp í 134 km á klst. Fóru mælingarnar fram á Reykjanesbraut, öörum þjóövegum í um- dæminu, svo og á helstu götum í þéttbýli. - epj. Hvafi gara blómafrasflar fyrlr þig? Honeybee pollen, ,,hin full- komna fæöa". Sölustaöur: Hólmar Magnússon, Vest- urgötu 15, Keflavík, sími 3445. - Sendum heim. braut á móts við Slökkvi- stööina. f umfjölluninni kom fran að um málið yrði fjallaö á bæjarstjórnarfundi í Keflavík. Nú hefur fundur þessi fariö fram og þar var sam- þykkt aö vísa málinu til bæj- arráðs, sem hefur ekki tekið máliö enn til afgreiöslu. Þá hefur komið fram nýtt atriði í málinu, þannig aö það verður tekið fyrir aftur í um- feröarnefnd Keflavíkur. epj. Humarvertíðin: Binni í Gröf og Hafnarberg hæstir Nú er humarvertíð lokiö og þrátt fyrir nokkuö góöa veiöi var tíö ansi erfiö og því minna um veiöi en ella heföi oröiö. Heildarafli þeirra báta sem lönduðu í Keflavík nam 31.5 tonnum, en í Sandgerði um 50 tonnum. Hæstu bátarnir á þessum stööum voru Hafnarberg RE 404 sem gert var út frá Sandgeröi með 12 tonn, og af Keflavíkurbátunum var það Binni í Gröf KE127 meö rúm 8 tonn. - epj. PASSAMYNDIR tilbúnar strax. rækjuveiði Að sögn Jóns Júlíusson- ar á hafnarvigtinni í Sand- gerði, hefur aö undanförnu veriö góð rækjuveiöi hjá þeim bátum er veiöar þess- ar stunda frá Sandgerði. Gæftir hafa hins vegarveriö mjög slæmar og því tafiö mjög veiðarnar. - epj. mjmynD Hafnargötu 26 - Keflavik - Simi 1016 Gengiö inn frá bilastæöi. L ___________________J Útsala! - Útsala! 30 - 50% afsláttur.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.