Víkurfréttir - 11.08.1983, Qupperneq 8
8 Fimmtudagur 11. ágúst 1983
VÍKUR-fréttir
„Eg er alls ekki hættur í pólitík"
Jóhann Einvarðsson, aðstoðarmaður ráðherra
í viðtali
Um siöustu mánaóamót tók Jóhann Einvarósson viö
stööu aöstoöarmanns félagsmálaráöherra. Jóhann er Suö-
urnesjamönnum flestum vel kunnur, enda varhann bæjar-
stjóri i Keflavik i 10 ár, frá 1970 til 1980, en þá var hann
kosinn á þing og sat þar eitt kjörtimabil. Jóhann sóttist eftir
kjöri á ný i siöustu alþingiskosningum, en náöi þvi ekki. Þó
er ekki hægt aö segja annaö en aö hann sé enn á fullu i
pólitik, þvi þessi staöa hans snýst aö miklu leyti ikringum
pólitik. Þaö þótti þvi kjöriö tækifæri aö fá Jóhann Einvarös-
son i viötal, sem hann veitti okkur fúslega, og lá þvibeinast
viö aö spyrja Jóhann hvernig nýja starfiö legöist i hann?
„ þá kom kannski einhver metnaöur upp i manni. . . "
,,Ég get nú ekki sagt þér
mikið um starfiðennþá, þar
sem ég var ráðinn frá 1.
ágúst sl. og ekki eru margir
dagar síðan. Þó er ekki
annað hægt að segja en að
þetta leggist vel í mig. Ég fer
í það að vinna að málum
sem ég er að nokkru
kunnugur og þá aöallega í
gegnum störf mín sem
bæjarstjóri og afskipti mín
af sveitarstjórnarmálum.
Undir félagsmálaráðuneyt-
ið falla margir málaflokkar
sem eru mjög áhugaveröir,
eins og málefni fatlaðra,
húsnæðismál og sveitar-
stjórnamál, svo eitthvað sé
nefnt. Reynsla mín úr fyrri
störfum gæti því kannski
komið að einhverjum
notum fyrir mig.“
í hverju er þetta starf
fólgið?
,,Það má segja að þetta sé
svona hægri hönd ráðherra
og starfssvið aðstoðar-
manns er þaö sem ráðherra
ákveöur, s.s. ýmistrúnaðar-
störf og mál sem hann legg-
ur sérstaka áherslu á aö
koma fram. Eitt af megin-
málum sem ráðherra hefur
ætlað mér að einbeita mér
að er endurskoöun á hús-
næöismálalöggjöfinni, og
það er mál sem ég á að taka
fyrir sérstaklega til aö byrja
meö.
í ráðuneytið koma ýmsir
með mál sem þarf að leysa
úr, t.d. ef fólk þarf aö leita til
ráöherra og ná ekki sam-
bandi viö hann einhverra
hluta vegna, þá er rætt viö
viðkomandi og því komið til
hans og svo viðbrögðum
ráðherrans aftur til viðeig-
andi aðila. Á ýmsan slíkan
hátt léttir maður á ráðherr-
anum. Ég hygg að það sé
ekki síður þörf á þessu fyrir
hann þegar þingiö er byrj-
að, þar sem þingsetuskylda
tekur hálfan dag eða gott
betur, og þá er það í hönd-
um aöstoðarmanns hans aö
safna upplýsingum, taka
viðtöl og annaö slíkt."
Var það metnaður eða
eltthvað annað sem réðl þvf
að þú fórst á þlng 1979?
„Ég hef ekki gengið meö
þingmanninn i maganum,
eins og sagt er, og senni-
lega hefur þaöekki hvarflað
að mér frekar en öðrum að
ég ætti eftir að fara þessa
leiö. Hins vegar skipuðust
veður þannig i lofti, að áriö
1978 missti Framsóknar-
flokkurinn þingmanninn í
kjördæminu hérna. Jón
Skaftason féll þá og það var
farið aö leita aö öörum
manni í hans stað. Þaö var
leitað til mín að taka þátt í
forvali hér og ég sló til eftir
nokkra umhugsun. Vissu-
lega haföi maöur fylgst vel
með íslenskri pólitík ígegn-
um árin. Nú, þegar þaö er
leitað til manns um aö taka
sæti á þingi og berjast fyrir
því, þá er verið að sýna
manni mikiö traust og þá
kom kannski einhver metn-
aöur upp í manni sem varð
til þess aö ég ákvað að
reyna, þó ekki væri meira,
þó svo að þingsetan hafi
síöan ekki veriö lengri en
raun bar vitni, að minnsta
kosti að sinni.“
Hvernlg var að starfa sem
bæjarstjórl I 14 ár á tvelm
ólfkum stöðum?
,,AÖ starfa sem bæjar-
stjóri gefur manni óskap-
lega breiða og mikla
reynslu á ýmsum vettvangi,
hvort sem bæjarfélagiö er
stórt eöa lítið. Til bæjar-
stjórans koma hin ýmsu
málefni, allt frá vandamál-
um manna sem þurfa aö
leita félagslegrar aöstoöar,
og það koma menn sem
þurfa að standa í miklum
framkvæmdum. Bæjarfé-
lagið stendur sjálft í mikl-
um framkvæmdum og í
gegnum bæjarstjórastarfið
kynnist maður því mörgu
fólki sem maður á sam-
skipti við. Aö sjálfsögðu
koma erfiöir tímar og ýmis
vandamál við að glíma, en
þegar litið er aftur þá finnst
mér þetta hafa verið mjög
skemmtilegur tími og ótrú-
lega fljótur að líða."
Helguvfkur- og f)ug-
stöðvarmállð eru mál sem
þú hefur verið viðriðinn að
einhverju leyti frá byrjun.
Hvað viltu segja um kom-
andi framkvæmdlr á þess-
um stöðum?
„Þaö er alveg Ijóst, að
báðar þessar framkvæmdir
„ . . . ekki veröur um neina
„sprengju" i atvinnulifinu ...
munu hleypa miklu „pústi" í
atvinnulífið hér á svæðinu.
Þaö verður þó aö gæta þess
að samráð verður að vera
milli sveitarfélaganna og
yfirvalda um þessar fram-
kvæmdir og skipulagningu
við þær. Framkvæmdirnar í
Helguvík munu taka um 6-7
ár og þvf alveg Ijóst að ekki
verður um neina „sprengju"
í atvinnulífinu að ræöa, því
allmikið af þeirri vinnu er
véla- og tækjavinna. Helgu-
víkurmálið fór fyrst í gang á
sínum tíma vegna kröfu frá
bæjarstjórnum Keflavikur
og Njarðvíkur vegna meng-
unarhættu og skipulags-
vanda, sem leiðslurnar og
uppskipunin valda, og þaö
sem hefur kannski hraðað
Helguvíkurmálinu mest er
óhappiö sem varð í Kefla-
víkurhöfn er olíubryggjan
eyðilagðist, sem þýðir að
fiskihöfnin er lokuð þegar
olíuskip landa hér.
Flugstööin gæti tekið um
3-4 ár og sú framkvæmd er
til viðbótar við Helguvíkur-
framkvæmdirnar. Það má
þó ekki gleyma nauðsyn
beggja þessara fram-
kvæmda. Flugstöðin fyrir
flugið og bætta starfsað-
stöðu fyrir starfsfólkið og
hins vegar aðskilnaðinn á
varnarliðinu og hinu al-
menna flugi. Meö fram-
kvæmdum í Helguvík
hverfur olíulögnin sem
liggur í gegnum bæina,
tankarnir hér uppfrá hverfa,
og síðast en ekki síst verð-
ur möguleiki til þess að gera
góða höfn í Helguvík."
RAFBUÐ:
Heimilistæki J RAFVERKSTÆÐI:
Allt til raflagna _ Nýlagnir
Ljós og Ijóskastarar ® ™ ™ ™ Viðgerðir
Rafhlutir i bila Hafnargötu 44 - Keflavfk Teikningar
SKIL-handverkfæri Simi 3337 Bílarafmagn
Versliö við fagmanninn.
Þar er þjónustan.
muw/t
® 2211 <z?
Leigubilar - Sendibilar
Nú
a
SuðuriiesjiimS
Hafiö samband viö söluskrifstofu Arnarflugs, Keflavíkurflugvelli
eða umboðsmenn ferðaskrifstofanna í Keflavík.
%
Flugfélag með ferskan blæ
ARNARFLUG
Keflavikurflugvelli Herb. 21
Opið 9-12 virka daga Simi 92-2700
Vangreidd
fasteignagjöld
Hér með er skorað á eigendur fasteigna í
Miðneshreppi sem enn skulda fasteigna-
gjöld, að greiða gjöldin fyrir 1. september
n.k. á skrifstofu hreppsins.
Ógreiddar skuldir þá verða innheimtar með
uppboðsaðgerðum samkvæmt heimild í
lögum um sölu lögveða án undangengins
lögtaks, nr. 49 frá 1951.
Sveitarstjóri Miöneshrepps