Víkurfréttir - 18.08.1983, Blaðsíða 1
NÝBYGGING SPARISJÓÐSINS:
Fokheld og fullfrágengin að utan
fyrir haustið 1984
eru þeir mikiö notaðir og þá
sérstaklega af heimavinn-
andi húsmæðrum, ef koma
þarf börnunum fyrir í stutt-
an tíma að degi til. ( haust
mun verða haldiö námskeið
fyrir það fólk sem vinnur á
þessum heimilum og einnig
mun það verða ætlaö fyrir
dagmömmur. Slíkt nám-
skeið hefur einu sinni veriö
haldið áður og þótti takast
mjög vel. - pket.
LEIKSKÓLAPLÁSS í KEFLAVÍK:
190 börn á biðlista
Tjarnarlundur mun taka þriðjung þessa hóps
alls 190 börn hafa leikskóla-
pláss á þessum þremur
stöðum og samt um 140
börn á biðlista. Á Garðaseli
eru 44 börn meö heils dags
pláss en 17 á Tjarnarseli.
Eftirspurn eftir slíkum
plássum er einnig töluverð,
en forgangshópar, sem eru
m.a. einstæöir foreldrar,
ganga fyrir slíkum plássum.
Auk þessara heimila eru
starfræktir gæsluvellir og
Skortur á leikskólaplássi
fyrir börn er nú mikill i Kefla
vík. 190 börn eru nú á bið-
lista, en innan tíðar mun
verða tekinn í notkun leik-
skóli í húsi Tjarnarlundar
við Tjarnargötu, sem mun
gefa af sér 56 pláss, en það
er aðeins um þriðjungur
þeirra barna.
Leikskólann við Tjarnar-
götu átti að taka í notkun 1.
ágúst, en ýmislegt hefur
tafið framkvæmdirnar,
þannig aö allar líkur eru á
þvf aö nokkurra mánaöa töf
veröi ennþá og svartsýn-
ustu menn segja að það
veröi okki fyrr en um næstu
áramót. Hefur veöurfariö
sett stórt strik í reikninginn,
þannig að ekki hefur einu
sinni veriö hægt að gera
neitt aö ráði á lóðinni við
húsiö. Ýmsar breytingar á
húsinu frá því aö fyrsta
áætlun var gerð, hefur
einnig valdið þessari töf.
Á lóöinni við Garðasel
eiga framkvæmdir þær sem
áætlað var aö gera aö vera
lokið, þegar heimilið opnar
að nýju eftir sumarfrí, en
þaö mun veröa um næstu
mánaðamót. Þarhefurrign-
ingin einnig hamlað fram-
kvæmdum.
Á Garöaseli og Tjarnar-
seli eru nú 134 börn (76 +
58) en eins og áður segir
mun Tjarnarlundur geta
tekið 56 börn, en þá munu
Frá GarOaseli
„Reynum aö láta þetta ekki bitna á möguleikum okkar til útlána,“
segir Tómas Tómasson, sparisjóösstjóri
Vigtuðu þorsk sem kola
- og misstu veiðileyfið í viku
Tveir þeirra dragnóta-
báta sem landa afla í Njarö-
vík, misstu leyfi sin í eina
viku fyrir skemmstu. Voru
þetta bátarnir Reykjaborg
RE 25 og Ægir Jóhanns-
son ÞH 212, en sl. föstudag
hófu þeir veiðar að nýju.
Aö sögn Þórðar Eyþórs-
sonar hjá Sjávarútvegs-
ráðuneytinu, er gert ráð
fyrir því í leyfisbréfinu, að
ekki veröi meira en 15% af
aflanum annað en koli (þ.e.
koli verður að ná 85% afl-
ans). Fari aörar fisktegund-
ir upþ fyrir þessi 15% er afl-
inn geröur upptækur skv.
sérstökum lögum þar að lút-
andi, um upptöku á ólög-
legum sjávarafla.
„Það er oft ekkert við
þessu aö gera þegar mikil
þorskgengd er á miðunum,
eins og nú í upphafi veiði-
tímabilsins, en síðan minnk
ar þetta smátt og smátt fram
eftir hausti. En í tilfellum
þessara báta var málið svo-
lítið annars eðlis, þaö kom í
Ijós að þarna var þorskur í
kolaaflanum vigtaður sem
koli. Þess vegna voru þeir
sviptir leyfi um vikutíma,“
sagöi Þórður.
Annar þessara báta,
Reykjaborg, réri þrátt fyrir
banniö á mánudeginum, og
sagöi Þórður að þar hefði
ekki verið um brot að ræöa,
þar sem hann reri út fyrir
Faxaflóann, en þar haföi
hann einnig leyfi, og þar
fékk hann ágætis kolaafla.
Dragnótabálamir Reykjaborg og Ægir Jóhannsson vió bryggju i
Keflavlk.
„Það ersamhelduráfangi
fyrir þetta og næsta ár, að
ganga frá húsinu fokheldu
og fullfrágengnu að utan.
Framkvæmdir hafa gengiö
eftir áætlun, en við flýtum
okkur hægt og látum þetta
ekki bitna á möguleikum
okkar til útlána til fólksins,"
sagði Tómas Tómasson
sparisjóðsstjóri, í samtali
við Víkur-fréttir.
Eins og áður hefur komið
fram er byggingin 2 hæöir
ásamt risi og kjallara, en
hver hæð er rúmlega 1000
fermetrar. Að sögn Tómas-
ar var fyrst gert ráð fyrir í
áætlun aö klára bygging-
una á 5 árum, en eins og
staðan er í dag mætti gera
ráð fyrir aö flutt yrði inn
tveim árum eftir að húsið er
fokhelt, sem yrði þá að
öllum líkindum árið 1986.
„Þetta mun þó allt fara eftir
stöðunni í peningamálun-
um og í þjóöfélaginu al-
mennt,“ sagði Tómas.
Ekki alls fyrir löngu
keypti Sparisjóöurinn hús
Kaupfélags Suðurnesja í
Njarövík, og mun veröa
byggð önnur hæð ofan á
húsið og einnig mun veröa
gengið frá því að utan fyrir
komandi haust. Ekki hefur
veriö ákveðið hvenær það
verður tekið í notkun, en að
sögn Tómasar er orðið
mjög þröngt um stofnunina
í Njarðvík og nauösyn væri
að það yrði sem fyrst. -
pket.