Víkurfréttir - 18.08.1983, Qupperneq 3
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 18. ágúst 1983 3
Ekki sama hver á í hlut
Þeir voru frekar óhressir
flokksstjórarnir í unglinga-
vinnu Keflavíkurbæjar, sem
höfðu samband við blaðið
síðasta mánudag. Sögðust
þeir hafa falið verkalýðsfé-
lögunum að óska eftir 15%
kauphækkun sér til handa,
en þeir hafa eins og kunn-
ugt er á sinni könnu umsjón
með krökkunum, og þar af
leiöandi hafa þeir á hendi
mannaforráð ásamt stjórn-
un.
Af þeim sökum þótti þeim
ekki óeðlilegt að sækja um
sömu laun og greidd eru
fyrir sömu störf t.d. í Kópa-
vogi og Vestmannaeyjum.
Bæjarráð Keflavíkur hafn
aði kröfu þessari og telur að
ekki sé um að ræða starf
Hver er skemmdarvargurinn?
Þegar símasjálfsalinn við
símstöðina var settur upp,
voru menn ekki bjartsýnir á
að hann fengi að vers í friði
fyrir skemmdarvörgum.
Stöðvarstjóri Pósts og síma,
Björgvin Lúthersson, var á
öðru máli og vísaði í það að í
skólunum fengju ungling-
arnir að kynnast tækjum
þessum og þvi fengju þau
að vera í friði þarna.
Nú hefur hins vegar
brugðið út af því, og hafa
tækin orðið illilega fyrir
barðinu á skemmdarvörg-
um. Af því tilefni höfðum við
enn á ný samband við
Björgvin. Hann sagði að hér
væru sennilega á ferðinni
aðkomumenn, sem ekki
gætu virt þessi tæki. En vera
þeirra hefur komið vel að
gagni í símaleysi því sem nú
er, þ.e. að ekki hefur verið
hægt að anna eftirspurn eft-
ir nýjum simum.
Sagðist hann vilja skora á
almenning að aðstoða sig
við að verja tækin og kom-
ast að því hverjir væru
þarna að verki, því ekki væri
hægt að líða það að ein-
hverjir villingar væru aö
stöðva notkun tækis, sem
almenningur vill hafa í lagi.
epj.
Vantar þig íbúð?
Eins og sést hefur í blað-
inu undanfarnar vikur og
mánuði hefur mjög mikið
verið auglýst eftir leigu-
íbúðum, en skortur á þeim
hér á Suðurnesjum hefur
sjaldan verið meiri. Ekki alls
fyrir löngu birtist í blaöinu
grein þar sem sagt er að
Bandaríkjamenn fái flest
allar íbúðir sem losna hér á
svæðinu og þaö með því að
yfirborga landann, auk þess
sem (slendingar sjálfir vilji
frekar leigja þeim til að fá
dollara auk hærra verðs,
eins og áður segir.
Meðfylgjandi mynd er
tekin í Viking Mall á Kefla-
víkurflugvelli, sem inniheld-
ur bæöi matsölustað og
verslanir auk ýmiss annars
reksturs. Á myndinni, sem
tekin er af töflu í húsinu þar
sem fólk hengir ýmsar aug-
lýsingar á, mátti sjá þessa
auglýsingu, sem greinilega
kemur frá íslendingum. Á
henni stendur eitthvaö á þá
leið, að hægt sé að fá leigð-
ar íbúðir með húsgögnum í
viku eða mánuð, og eins og
sjá má eru síðan tvö síma-
númer þar sem hægt er að
fá nánari upplýsingar.
Það væri gaman að vita
hvort (slendingar gætu
fengið leigðar þessar íbúð-
ir, það sakar ekki að reyna.
pket.
flokksstjóra eins og um full-
gildan vinnuflokk sé að
ræða.
Þótti flokkstjórunum
þetta vera nöturlegt svar á
sama tima og bæjarritaran-
um er færð stórhækkun á
silfurfati, eins og einn
flokksstjórinn oröaði það.
Það sannaðist á þessu, að
ekki væri sama hver ætti í
hlut þegar sótt er um kaup-
hækkun til bæjarins. - epj.
Ekki
druslu
legir
Vegna lesendabréfs í Vík-
-ur-fréttum um að þeir sem
bera út póstinn séu illa til
hafðir í starfi, vil ég mót-
mæla. Þaö fólk sem ber út
póst í því hverfi sem ég bý í
og það sem ég verö vör við á
ferð minni um bæinn, er
yfirleitt vel til haft. Þá hef ég
orðiö vör við aö þeir sem fá
regngalla, nota hann þegar
þannig viðrar.
Þó það séu kannski ör-
fáir sem ekki falla undir
þetta, er óþarfi aö skella
skuldinni á alla, því hinir
hreinlegu eiga það ekki
skilið.
Annar Keflvlkingur
lirinair
glugga- og
hurðaverksmiðja
NJARÐVlK - S(MI 1601
uppl. gefnar í símum 1112 og 3205
-tí^fc, Eignamiðlun Suðurnesja
JifPffliLi Hafnargötu 57 Simar 1700 og 3868
KEFLAVÍK:
2- 3ja herb. efri hæð við Kirkjuveg,
engar veðskuldir. - 680.000.
3ja herb. efri hæð við Kirkjuteig, góð-
ur staður. - 850.000.
3ja herb. nýleg íbúð við Háteig.
900.000.
3ja herb. íbúð við Hringbraut. Rúm-
góð eign. - 860.000.
3ja herb. efri hæð v/Hátún. - 725.000
3ja herb. íbúð við Faxabraut.
750.000.
3- 4ra herb. efri hæð við Hringbraut.
Hugguleg eign. - 1.150.000.
3ja herb. íbúð viö Mávabraut. Lítiö á-
hvílandi, sér inng. - 900.000.
4- 5 herb. efri hæð við Faxabraut.
950.000.
4ra herb. efri hæð við Garðaveg.
790.000.
4-5 herb. efri hæð við Hringbraut.
950.000.
4ra herb. hæð við Hafnargötu ásamt
35 ferm. bílskúr. Hagstætt verð og
skilmálar.
5 herb. rúmgóö íbúð viö Hringbraut.
Hugguleg íbúð. - 1.200.000.
4ra herb. íbúö á efri hæð viö Fram-
nesveg. Lítið áhvílandi. - 1.100.000.
124 ferm. viðlagasjóðshús við Bjarn-
arvelli. Hitaveita, skipti möguleg.
1.550.000.
Glæsilegt 125 ferm. timbur einbýlis-
hús við Suðurvelli ásamt tvöföldum
bílskúr. Skipti möguleg. - 2.200.000.
100 ferm. 4ra herb. einbýlishús við
Garðaveg ásamt bílskúr. -1.300.000.
3ja herb. einbýlishús á tveimur hæð-
um við Vallargötu. - 980.000.
NJARÐVÍK:
Góð 3ja herb. ibúð í nýlegu fjórbýli
við Holtsgötu. - 800.000.
140 ferm. raöhús við Brekkustíg, nýtt
eldhús o.fl. Skipti möguleg.
1.400.000.
Góð nýleg 3ja herb. íbúð við Hjalla-
veg. - 920.000.
Nýlegt 140 ferm. einbýlishús viö Há-
seylu, ásamt 38 ferm. bílskúr.
1.950.000.
3-4ra herb. hæð við Njarðvíkurbraut,
rúmgóö íbúð. - 870.000.
SANDGERÐI:
80 ferm. 3ja herb. efro hæð við
Brekkustíg. - 850.000.
80 ferm. 3ja herb. neðri hæð við Suð-
urgötu. Sér inng. - 800.000.
110 ferm. einbýlishús við Túngötu
ásamt bílskúr. - 780.000.
GARÐUR:
143 ferm. einbýlishús við Gerðaveg
ásamt bílskúrssökkli. Skipti mögu-
leg. - 1.200.000.
2-3ja herb. steinsteypt einbýlishús
viö Gerðaveg. Engar veðskuldir.
970.000.
Opið á laugardögum
frá kl. 10 - 15.
Eignamiðlun
Suðurnesja
Hafnargötu 57 - Keflavik