Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.08.1983, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 18.08.1983, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 18. ágúst 1983 VÍKUR-fréttir PASSAMYNDIR fyrir alla. Tilbúnar strax. nymynD Hafnargötu 26 - Keflavik - Sími 1016 \ Gengiö inn frá bílastæöi. Næsta blað kemur út 25. ágúst Frá Sandgerði Vegna skrifa um leyfis- veitingu dragnótaleyfis til Ægis Jóhannssonar ÞH í síðasta blaði, vlll Hafliði Þórsson, framkvæmda- stjóri Njarðar hf. í Sand- gerði, koma þvi á framfæri, aö þó fyrirtækið sé skráö á Húsavik eins og þrír af fjór- um bátum fyrirtækisins, fer öll starfsemi þess fram í Sandgerði. í Sandgeröi eru því í raun greidd öll helstu gjöld sem bæjarfélagið á rétt á, varð- andi þau gjöld sem ríkið ætti rétt á, skipti ekki máli hvort væru greidd í gegnum umboðsmann í Keflavík eða Húsavík. Bátarnireru gerðir út frá Sandgerði og þaö er aðalmáliö, sagði Hafliöi, þó svo að fyrirtækiö hafi lög- heimili, eins og meirihluti stjórnar þess, á Húsavík. Væru þeir búnir að hafa þennan skipan á málum f 15-16 ár og væru þeir meö eitt stærsta útgeröarfélagiö á Suðurlandi á sinni könnu. epj. Eintak er einkafyrirtæki í síðasta blaði var rætt um eigendaskipti á helming hlutajárs í Eintaki. Nokkurs misskilnings gætti í frótt- inni. Hið sanna er að Árni Margeirsson keypti hlut Ólafs Halldórssonar, og er Árni því einn eigandi fjölrit- unarstofunnar. Biðst blaðið velviröingar á þessum mistökum. - epj. Lögreglufé- lagið fær styrk Á fundi bæjarráðs Kefla- víkur, 30. júni sl„ var tekiö fyrir erindi frá Lögreglufé- lagi Gullbringusýslu þar sem þeir fara fram á styrk vegna byggingar æfinga- og félagsheimilis á lóð lög- reglustöövarinnar i Kefla- vík. Fara þeir fram á kr. 3.000 til 5.000. Bæjarráð samþykkti að veita þeim kr. 5.000 i styrk. .epj. Mjög góður starfsandi Vegna greinarinnar um Hagkaup í síðasta tölublaöi viljum við, starfsfólkið, leið- rétta þann misskilning, að „urgur" sé okkar á meöal. Hér ríkir mjög góður starfs- andi og mættu aörir vinnu- staðir taka hann sér til fyrir- myndar. Trúnaðarmaður starfsfólks Eitthvaö virðist starfs- fólkið hafa misskiliö oröið „urgur", því þó starfsandi sé góður að þeirra sögn, þá getur þó veriö urgur þeirra á meðal. Getur því verið hér um tvennt ólíkt að ræða. epj. Ægir Jóhannsson ÞH 212 i Keflavlkurhöln. Málningavörur viö allra hæfi..... j díopinfi Akstur skólabarna Útboð Hafnahreppur óskar eftir tilboðum í akstur skólabarna skólaárið 1983-'84. Tilboðin skulu lögð inn á skrifstofu hrepps- ins að Djúpavogi 1, Höfnum, fyrir kl. 19 fimmtudaginn 25. ágúst n.k., þar sem þau verða opnuð að bjóðendum viðstöddum. Réttur áskilinn til að taka hvaðatilboði sem er eða hafna öllum. Nánari upplýsingar veitir undirritaður á skrifstofu hreppsins, eða í síma 6931. Sveitarstjóri

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.