Víkurfréttir - 25.08.1983, Síða 1
Umfang íslenskra Aðalverktaka á sl. ári:
750 millj. króna tekjur
renna til Reykjavíkur
meðan atvinnulífið hér drabbast
niður vegna fjársveltis
[ sfðasta Helgarpósti skrif
aöi Einar Páll Svavarsson
mjög athyglisverða grein
um (sienska Aðalverktaka
sf. og kom þar fram, að
tekjur fyrirtækisins námu
28 milljónum dollara á sl.
ári, sem samsvarar um 750
milljónum fsl. króna. Á
sama tfma námu tekjur
Keflavfkurbæjar um 90
millj., og þó tekjur allra
sveitarfélaganna á Suður-
nesjum séu lagðar saman,
eru þær samt töluvert minni
en velta Aðalverktaka.
En hvaö verður um þess-
ar tekjur? Ekki renna þær
hingað til Suöurnesja,
nema f mjög litlum mæli. Jú,
eitthvað af útsvarstekjum
starfsmanna fara hingaö,
en af hagnaði er það aðeins
hlutur fyrirtækisins f Sjó-
efnavinnslunni og sú
upphæð sem lögð var inn í
Sparisjóöinn til aö dekka
vlðbyggingu viö Sjúkrahús-
ið og viö höfum áður skýrt
frá.
Hagnaður fyrirtækisins
undanfarin ár hefur svo til
allur fariö til Reykjavíkur, en
þar hefur fyrirtækið byggt
stórhýsi viö Höföabakka.
Hér syöra eiga þeir engin
hús, ekki einu sinni þau sem
hýsa starfsemina uppi á
flugvelli, þvf þau eru f eigu
Varnarliðsins.
Fái þeir allar þær fram-
kvæmdir sem fyrirhugaöar
eru á vegum Varnarliðsins,
munu tekjurnar aukast
áfram og það stórlega, og
þvf hlýtur sú staöa aö koma
upp, að fyrirtækinu veröi
sett þau skilyrði aö þessum
tekjum verði varið til at-
vinnuuppbyggingar á
Suðurnesjum, eða verði
lagt hér inn svo hægt verði
aö lána þaö innan svæöis.
Draumaland ÍA V. Slórhýsi lA V vió Höfóabakka i Reykjavlk. Hingaó hefur dollara-
Já, þaó er draumur / gróóinn runnió I stifum straumum undanfarin ár, meóan atvinnu-
eó vera meó dáta. / llf Suóurnesjamanna drabbast nióur vegna fjársveltis.
Nóg framboð af lóðum í Keflavík
ina. Nú eru nokkrar stærri
byggingar f gangi, s.s.
Heilsugæslan, sem er langt
komin, verslunarhús Bygg-
ingaverktaka við Hafnar-
götu er fokhelt, hús Spari-
sjóðsins þýtur upp, en hér
er á ferðinni mikiö og stórt
hús sem setur myndarlegan
svip á bæinn.
Þá er eitt stærsta iðnaðar-
hús sem byggt hefur veriö f
Keflavfk orðiö fokhelt. Er
hér um að ræða hús Raf-
magnsverktaka viö löavelli.
Varöandi önnur hús eru það
aðallega hús aldraöra viö
Suðurgötu sem eru aö
verða fokheld, en lítiö ann-
að af stórbyggingum fyrir-
hugað, ef frá er talin stækk-
un sjúkrahússins, sagöi
Steinar aö lokum. - epj.
Að sögn Steinars Geirdal
byggingafulltrúa, eru lóða-
mál nú almennt mjög góð,
því á boöstólum eru lóðir
undir flestar tegundir af
byggingum, hvort sem um
er að ræöa fbúðir eöa iön-
aöarhús.
Enda er mikiö af húsum í
byggingu, þó byggingar-
hraði sé kannski frekar
hægur og rólegur yfir heild-
Nýbygging vió Óóinsvelli
Aö vfsu hefur tvisvar verið
gerö tilraun til aö koma af
staö f gegnum Alþingi,
stofnun Framkvæmdasjóös
Suöurnesja, þarsem megin
tekjulindin yröi sérstakur
skattur af fyrirtækjum á
flugvellinum. En þetta mál
hefur alltaf dagað uppi á Al-
þingi, enda höfum viö ekki
haft þar þá málsverjendur
Framh. A 10. sfðu
Hið glœsilega verslunar- og skrifstofuhús Byggingaverktaka við
Hafnargötu.
Iðnaóarhúsnæði Rafmagnsverktaka við lóavelli, -annaó dæmi um
þaó sem má gera hér nióur frá.
Framkvæmdir í Njarð-
vík með minnsta móti
Framkvæmdir f Njarövfk
hafa veriö meö minnsta
móti á þessu ári. Ástæöan
er sú aö framkvæmdafé
bæjarins var innan viö 13%
af heildar tekjum og aö
krónutölu svipað og áriö
1982, en veröbólgan langt
umfram þaö sem reiknað
var með.
Helstu framkvæmdir hafa
veríð aö leggja tengivegi aö
verslunarhúsum Kaupfé-
lagsins og Hagkaups,
ræktuö hafa verið upp
svæöi til nota fyrir tjald-
búöir á landsmóti UMFÍ
1984, nokkurt átak hefur
veriö gert f aö lagfæra opin
svæði f bænum og einnig
hefur verið unniö aö ýmsu
viöhaldi f gatnakerfinu og
ýmsum stofnunum ( bæn-
um.
Lftillega hefur veriö unnið
við dagheimiliö f Innri-
Njarövfk, en Ijóst er aö
fjármagn vantar til að Ijúka
þvf. Bærinn hefur Iftillega
styrkt þær framkvæmdir
sem unniö er að viö endur-
bætur kirkjunnar f l-Njarö-
vfk, og er vonast til aö fram-
kvæmdum Ijúki viö aö
undirbyggja turn kirkjunn-
ar og þak.
Nú er unniö aö endurbót-
um vatnsveitu f iönaöar-
hverfinu á Fitjasvæöi.
Lftiö hefur veriö um aö
byrjaö sé á nýbyggingum
hjá einstaklingum, en
töluvert unniö aö fullnaöar-
frágangi íbúðarhúsa. Unniö
er af krafti viö íbúöir aldr-
aöra sem bæjarfélagiö
hefur forgöngu um aö
byggja. Gert er ráö fyrir að
lokiö veröi viö aö gera húsiö
fokhelt og frágengiö aö
utan um miðjan nóvember. I
húsinu veröa átta einstakl-
ings-og hjónaíbúöir. - aks.
Ljót aðkoma
Þaö var Ijót aökoma sem
blasti viö mönnum viö
skreiöarhjallana f Grinda-
vfkurhrauni f sföustu viku.
Haföi ein rolla og lamb fest
sig f neti sem lá viö trönurn-
ar, og soltið til bana.
Mörg fyrirtæki hér á Suö-
urnesjum eiga skreiöar-
hjalla á þessu svæöi og hafa
eigendur þeirra sett upp net
A hjallana til aö vargurinn
færi ekki f fiskinn. í þessu
tilviki lágu netin á jöröinni
þar sem ekki haföi verið
gengiö frá þeim, með fyrr-
greindum afleiöingum.
Eru þaö vinsamleg
tilmæli til fyrirtækja sem
þarna eiga skreiöarhjalla,
að ganga betur frá þessum
netum svo svona atvik komi
ekki fyrir aftur. - pket.