Víkurfréttir - 01.09.1983, Qupperneq 5
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 1. september 1983 5
Rigningunni að slota?
Höfuðdagur talinn marktækastur
til veðurspádóma
Höfuðdagur er 29. ágúst
og er til minningar um það
er Heródes konungur lét
hálshöggva Jóhannes skír-
ara, að beiðni Salóme.
Varöandi höfuðdaginn þá
liggur beinast viö að minna
á hina alkunnu veðurtrú.
Fjölmargir dagar voru taldir
marktækir til veöurspá-
dóma, en enginn þó jafn
almennt og höfuðdagur.
Svo segir í bók Árna Björns-
sonar, Saga daganna.
Mikið væri það nú gott ef
við SV-hornsbúar fengjum
kannski nokkra sólardaga
áður en byrjar að snjóa, þaö
er kannski ekki svo langt
þangað til. Hundadagarnir
gerðu okkur lífið leitt, en
þeir 20 dagar þykja ærið
erfiðir ef fyrsti hundadagur-
inn er slæmur hvað veður-
far snertir. Nú, eins er með
höfuðdaginn, að sagter. 29.
ágúst, á mánudaginn var,
fengu SV-hornsbúar að
dreþa augum og finna fyrir
sól en það er fyrirbæri sem
haldið hefur sig fyrir norðan
land í allt sumar, því er nú
ansans ver. En þar sem
höfuödagurinn var mjög
góöur megum við að öllum
llkindum eiga von á góöu
veðri næstu daga og vikur,
þ.e.a.s. sé höfuðdagurinn
jafn marktækur og hunda-
dagurinn fyrsti.
En hverjir hafa grætt á
rigningunni? Þaö eru alltaf
einhverjir sem græða á öllu,
hvort sem það er rigning
eða eitthvað annað. Eig-
endur ferðaskrifstofa brosa
nú sínu breiðasta en það var
ekki breitt bros hjá þeim
eftir gengisfellinguna í vor
og allt útlit var fyrir mikinn
samdrátt i utanlandsflugi
hjá landanum. Aðrir velta
því fyrir sér hvort eigendur
feröaskrifstofa hafi gert
samning við Trausta og co.,
því þeir sýna yfirleitt alltaf
,,rigningu“ á kortinu í sjón-
varpinu. En svona rétt í
svipinn þá man ég eftir ein-
um flokki sem hefur líka
grætt. Leigubílstjórar á
flugvellinum, þaðerbúiöað
vera nóg að gera hjá þeim.
Kanarnir labba nefnilega
ekki í rigningu. Ef það
heldur áfram að rigna hér
fyrir sunnan, þá ætla ég að
skrifa Trausta á veðurstof-
unni. Er það ekki annars
hann sem öllu ræður? Spyr
sá sem ekki veit. |(j
Sóðar á ferð
Þió, sóóar, hafið aldrei verió i vandræóum með að losa
ykkur við ruslið, enda hugsið þið ansi skammt þegar þið
búið til ruslahauga á svæðinu ofan vió Baugholt, neðan
Iðavalla. Vonandi farið þið að hugsa betur um bæinn ykk-
ar og okkar hinna, og gerið eftirfarandi að kjörorði ykkar:
Hreinn bær - okkur kær. - epj.
SYNISHORN
AF VERÐUM:
Strásykur, 2 kg ..
Hveiti, 10 lbs. ...
Flórsykur, DAN .
Púðursykur, DAN
Korn Flakes Keiioggs
Chocula .......
Cocoa Puffs ...
Okkar verö Leyft verö
39,60 51,50
103,25 123,90
14,55 16,75
7,40 14,30
66,50 76,50
75,90 87,30
73,90 88,70
AVEXTIR:
Appelsínur
Epli, græn .
Bananar ...
Sítrónur ...
Grape ....
29,00
59,00
48,00
75,00
66,00
KJOTVORUR:
Kjúklingar..... 85,00
Hangilæri ......... 135,00
London Lamb .. 146,00
Hamborgar-
hryggir ........... 136,00
Kinda-snitsel .... 189,00
Kindahakk ....... 88,00
Folalda-snitsel .. 155,00
HELGARTILBOÐ
Ávaxtaúrval
KJARAPALLAR Grillaðir
* _ _ _kjúklinga
VIKURBÆR
VÖRUMARKADUR