Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.1983, Page 8

Víkurfréttir - 01.09.1983, Page 8
8 Fimmtudagur 1. september 1983 VÍKUR-fréttir Hjúkrunarfræð- ingar, athugið Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs óskar að ráða hjúkrunarfræðing á skurðstofu frá 1. september. Reynsla nauðsynleg. Óskum einnig eftir hjúkrunarfræðingum til starfa. - Upplýsingar veitir hjúkrunarfor- stjóri í síma 1400. Sjúkrahús Keflavíkurlæknishóraðs Ljósmæður, athugið Laus staða Ijósmóður við Sjúkrahús Kefla- víkurlæknishéraðs frá 1. nóvember. Góð starfsaðstaða. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 1400. Sjúkrahús Keflavikurlæknishéraðs Tónlistarskóli Keflavíkur Innritun fer fram í skólanum mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá 1. til 9. sept- ember milli kl. 14.30 og 17.00. Vegna núverandi fyrirkomulags á greiðslu skólagjalda er nauðsynlegt, að forráða- menn nemenda mæti sjálfir við innritun. Skólastjóri Barnaheimilið Gimli, Njarðvík óskar eftir fóstru eða öðrum starfskrafti hálfan daginn, sem fyrst. Upplýsingar gefur forstöðukona í síma 2807 milli kl. 14 og 16. Járniðnaðar- og verkamenn Viljum ráða nú þegar nokkra vélvirkja, rafsuðu- og verkamenn. - Mötuneyti á staðnum. VÉLSMIÐJA OL. OLSEN HF. Njarðvik - Simar 1222 og 2128 Karfan að fara á fulla ferð Reykjanesmótið hefst 10. sept. Gunnar Þorvarðarson þjálfar og leikur með Njarðvík Jónas Jóhannesson með Sandgerðinga Jónas Jóhannesson mun þjálfa Sandgerðinga en hann var meö þá í fyrra. Reykjanesmótið í körfu- bolta hefst 10. sept. og taka 6 lið þátt í mótinu: fBK, UMFN, Reynir, Haukar, Grindavík og Breiðablik. Verður þetta ágætis æfing fyrir liöin áður en alvaran byrjar, en fyrstu leikirnir í íslandsmótinu verða um mánaöamótin sept.-okt. pket. Ráðinn skrif- stofustjóri Samvinnu- bankans Guðjón Sigurðsson, sem verið hefur skrifstofustjóri Hraðfrystihúss Keflavíkur, hefur nú látið af þvistarfi og jafnframt tekið við starfi skrifstofustjóra Samvinnu- bankans að Hafnargötu 62. Tekur Guðjón við starfi Eiríks Sigurðssonar, sem ráðinn hefur verið útibús- stjóri Verslunarbankans í Keflavik. - epj. Innan skamms mun körfu boltinn fara að hoppa á fullu og flest öll lið þegar búin aö ráöa þjálfara. Eins og fram kom i síð- asta blaði mun Brad Miley þjálfa Keflvíkinga, og Njarð- víkingar hafa ráöið Gunnar Þorvaröarson sem þjálfara, en hann mun einnig leika með liðinu. Undir hans stjórn æfir 15-16 manna hópur sem skipa mun liö Njarövíkur í vetur, en þessi hópur er óbreyttur frá því í fyrra. ,,Ég er nokkuð bjartsýnn á komandi tímabil, það er alveg þess virði aö reyna að vera án erlendra leik- manna," sagði Gunnar í samtali viö blaöiö. úr leik UMFN og FH. Ljósm.: Kjartan Már Ekkert mark í þremur leikjum Knattspyrnumenn Suð- urnesjaliðanna voru ekki á skotskónum í síðustu viku. Keflvíkingar léku við Akra- nes og töpuðu eins og kunnugt er með einu marki gegn engu, þrátt fyrir stans- lausa sókn Keflvíkinga all- an leikinn og varótrúlegtaö sjá til leikmanna missa hvert færið á fætur öðru. Sandgerðingar og Garð- menn léku í Sandgeröi sl. föstudag og endaði leikur- inn með markalausu jafn- tefli. Njarðvíkingar léku við FH-inga á föstudag og var þar einnig markalaust jafn- tefli, en meðfylgjandi mynd var tekin úr þeim leik. pket. Skrifið eða hringið til Víkur-frétta Vikur-fréttir hvetja les- endur sína til að skrifa blað- inu um hvaöeina sem hugur þeirra stendur til - eða hringja, ef þeir koma því ekki við aö skrifa. Meöal efnis sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki aö vera vélrituð ef þau eru vel skrif- uð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng veröa að fylgja öllu efni til blaðsins, þó höf- undur óski nafnleyndar. AUGLÝSINGASÍMINN ER 1717 ^ pytsyvflcwiNNp' OPIÐ: föstudaga - fimmtudaga kl. 11.30 - 21.00. föstudaga og laugardaga kl. 11.30 - 04.00 e.m. sunnudaga kl. 15-21. Bílasala Brynleifs Vatnsnesvegl 29a - Keflavík - Sfml 1081 Mikið af bifreiðum á skrá. Komið og kynnið ykkur úrvalið. Opið alla virka daga frá kl. 9-19. Laugardaga frá kl. 10-16. BÍLASALA BRYNLEIFS ATVINNA Óskum að ráða starfsmann við -uppvask. Vakta-- vinna. Til greina kemur hálft starf. Hafnargötu 62 Keflavík

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.