Víkurfréttir - 08.09.1983, Síða 3
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 8. september 1983 3
„Hann er stoltur af
uppruna sínum“
- segir Fjóia Bragadóttir, sem býr í Banda-
ríkjunum, um son sinn Pétur Georgsson
ígegnum ári er það alltaf ákveöinn fjöldi fólks sem alinn er
upp hér á Suöurnesjum og sest aö á erlendri grund. Sumt
af þessu fólki sækir strax um rikisborgararótt i viðkomandi
landi, en annaö heldur viö islenska rikisborgararéttinum
og á lögheimili hér á Suöurnesjum þó það hafi kannski
búiö erlendis iáratugi. Þetta fólk heldurgóöu sambandi viö
ættjörö sina og heimsækir heimahagana af og til. Ein
þessara manneskja er Fjóla Bragadóttir, og af þvi tilefni að
hún var i heimsókn hjá foreldrum sinum Vatgeröi Péturs-
dóttur og Braga Halldórssyni aö Vallargötu 18 iKefiavik nú
fyrir stuttu, tókum við hana tali, m.a. til aö fá vitneskju um
þaö hvernig væri aö vera íslendingur búsettur á erlendri
grund, o.fl. um hennar hagi.
Fyrst spurðum við hana
hvað væri langt sfðan hún
fór erlendis i fyrsta skipti?
„Ég fór út fyrst 1957 á
skátamót í Englandi, en það
var mikill áhugi fyrir þeirri
ferð hér heima. Síðan
ákveða mamma og pabbi að
leyfa mér að fara í skóla í
Englandi og þannig
byrjuðu mín ferðalög.
Síðan ferðaðist ég til Dan-
merkur og Frakklands en
var alltaf hér heima ívinnu á
rnilli."
um tel ég mig aldrei eiga
heima þar, heldur hérna,
enda held ég góðu sam-
bandi hingað heim.“
Þú býrð f Los Angeles og
þar er nokkur fjöldi íslend-
inga. Eruð þlð með sam-
starf ykkar i mllli?
,,Já, það er þarna (slend-
ingafélag, haldnar eru sam-
komur og gefið út íslenskt
blað sem kemur út fjórum
sinnum á ári. Ég sæki þó
aðallega samkomur sem
eru fyrir börn.“
En svo sest þú að I Banda-
rfkjunum?
„Já, eftir að ég hafði verið
í skóla í Frakklandi í 2 ár
kom ég heim og var hér um
tíma, en þá frétti ég af því að
innflytjendalögin í Banda-
ríkjunum séu að breytast og
því ákvað ég að sækja um.
Þannig atvikaðist það að ég
fór til Bandaríkjanna og svo
ílengdist ég þar.“
„Nú eru liðin 15 ár síðan
þú settist að i Bandarikjun-
um, heldur þú enn fslensk-
um rfkisborgararétti?
„Já, ég á enn lögheimili
hér. Þó ég sé í Bandaríkjun-
Nú ert þú gift þarna úti og
átt einn son, hvað getur þú
sagt okkur af þeim?
„Maðurinn minn heitir
Georg Bookasta, en sonur
okkar hinu alíslenska nafni
Pétur Georgsson, en hann
er 9 ára gamall."
Hvernig er það, er töiuð
islenska á ykkar helmili?
„Svo til allar samræður
milli mín og Péturs eru á ís-
lensku, en faðir hans getur
ekki talað íslensku þó hann
segist skilja hana. Enda
talar Pétur góða íslensku og
getur bæði skrifað og lesið
það. Núna eftir að ég kom
Pétur Georgsson búinn aö fá vænan ufsa viö Vatnsnesvita.
40% minna magn =
40% lægra verð.
hingað heim fór ég með
hann inn í Námsgagna-
stofnun og þar var hann
prófaður (lestri og fékk þá
einkunn aö hann væri jafn
fær og jafnaldrar hans hér
heima.“
Hvernlg hafa bandarfsku
skólasystkini hans tekið
honum?
„f fyrstu var hann mótfall-
inn því að við töluöum mál
sem þau skildu ekki, en nú
hefur þetta snúist við. Hann
notar hvert tækifæri sem
gefst til að minna þau á ís-
Fjóla Bragadóttir
lensku og ísland, því hann
er stoltur af uþpruna sínum
þ.e. að hér er hann fæddur.
Enda veit kjarninn i bekkn-
um hans hver saga hans er
og hefur hann mjög gaman
að því að segja þetta og hitt
við þau á íslensku."
Að lokum, Fjóla, heldur
þú að þú eigi eftir að flytja
hingað heim aftur?
,,„Ég er engin spákona
og læt því hverjum degi
nægja sínar þjáningar."
epj.
WMlEf0/>
© 2211 ®
Leigubílar - Sendibílar
0
GROHE
GROHE hefur leitt þróun blöndunartækja
undanfarin 40 ár. Nýjungarnar
koma fyrst frá GROHE.
GROHE býður fullkomna varahluta- og
viðgerðarþjónustu á íslandi.
GROHE gerir tilraunir með íslenskt vatn
við framleiðslu sína.
JÁRN & SKIP
Víkurbraut - Sími 1505, 2616
Eignamiðlun Suðurnesja
m1E3Lb Hafnargötu 57 Símar 1700 og 3868
KEFLAVÍK:
2ja herb. íbúð við Faxabraut, sér inn-
gangur. - 675.000.
3ja herb. ibúð viö Suðurgötu.
725.000.
3ja herb. íbúð við Vesturbraut, sér
inngangur. - 700.000.
3ja herb. nýleg íbúö við Háteig.
900.000.
4ra herb. efri hæð við Garöaveg.
790.000.
124 m2 Viölagasjóöshús við Bjarnar-
velli. Hitaveita, skipti möguleg.
1.650.000.
4ra herb. góð rishæð við Hólabraut.
880.000.
4ra herb. hæö viö Hafnargötu ásamt
bílskúr. Hagstætt verö og skilmálar.
100 m2 einbýlishús ásamt bílskúr viö
Garöaveg. Góöurstaöur.-1.300.000.
110 m2 nýlegt raðhús ásamt bílskúr
viö Heiöarbraut, ekki fullgert.
1.750.000.
Eignamiðlun
Suðurnesja
Hafnargötu 57 - Keflavík