Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.09.1983, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 15.09.1983, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 15. september 1983 VIKUR-fréttir Hjá okkur færðu bílinn réttan, blettaðan og almál- aðan. - önnumst einnig framrúðuskipti. Reynið viðskiptin. BÍLASPRAUTUN FITJAR Njarðvík - Sími 1227 Röskur og reglusamur starfsmaður óskast til ýmissa starfa. Þarf að hafa bílpróf. Umsóknir ásamt upplýs- ingum um fyrri störf sendist afgreiðslu Víkur-frétta, merkt: ,,Atvinna“. Keflvíkingar Suðurnesjamenn Við höfum bæjarins mesta úrval af INNANHÚSSKÓM Einnig mikið úrval af stuttbuxum, bolum og sokkum fyrir leikfimi og innanhússæfingar. Hrlngbraut 92 - Keflavfk Slysavarnadeild kvenna í Keflavík: Gaf 10 þús. til slysavarna í umferðinni Á fundi í umferðarnefnd Keflavíkur sl. fimmtudag af- henti Guðmunda Sumar- liðadóttir, formaður Slysa- varnadeildar kvenna í Kefla- vík, Zakaríasi Hjartarsyni, formanni umferðarnefndar, peningagjöf að upphæð kr. 10.000, sem variö skyldi til slysavarna í umferðinni. Viðstaddir afhendingu þessa voru umferðarnefnd- armenn og konur úr stjórn Slysavarnadeildarinnar. Ákveðið hefur veriö að peningaupphæö þessi verði notuö til að bæta ör- yggi skólabarna að og frá barnaskólanum svo og á leiö þeirra í sund. Af þessu tilefni tókum við þær stjórnarkonur slysa- varnadeildarinnar sem við- staddar voru afhending- una, tali, en þær voru Guð- munda Sumarliðadóttir, Einhildur Pálmadóttir, Guð- rún Ármannsdóttir og Jóna Sigurgísladóttir. Sögðu þær aö deildin afl- aöi tekna meö basar, sölu á minningarkortum og fé- lagsgjöldum. Færu 3/4 hlutar teknanna til Slysa- varnafélags fslands, en af- ganginn mættu þær nota til slysavarna í heimabyggö eða annarra atriöa er tengj- ast slysavörnum, þó með leyfi SVFl hverju sinni. Hafa þær á undanförnum árum t.d. gefiö til sjúkrahússins og Björgunarsveitarinnar Stakks. En á þessu ári hefur Slysavarnafélagi íslands verið færð sérstök gjöf að upphæð kr. 10.000 til minn- ingar um Jónu Guðjóns- dóttur á Framnesi auk áður- nefndrar gjafar sem nú var afhent. Nýr verslunar- stjóri í Hagkaup Nýr verslunarstjóri hefur tekiö viö störfum hjá stór- markaði Hagkaups á Fitjum. Heitir hann Karl West Frederiksen og er hann búsettur í Keflavík. Guðmunda sagöist vilja hvetja konur til að ganga í félagið, þvi það gerði meira en að berjast fyrir slysa- vörnum á sjó, það hugsaði einnig fyrir þeim í landi, eins og sést á þessu. Ættu önnurfélagasamtök aö taka sér þetta félag til fyrirmyndar, því ef eitthvað virkilega róttækt á að gera á Norrænu umferðarári, þá þarf til þess mikla peninga. Þessi félagsskapur aflar meiri hluta tekna sinna meðal eigin félaga, en fé- lagið vinnur meðýmsu móti að slysavörnum og hafa oft áður látið aö sér kveöa í þeim efnum. - epj. Stjórn Slysavarnadeildar kvenna i Keflavik. F.v.: Einhildur Pálmadóttir, Guómunda Sumarliðadóttir, Guðrún Ár- mannsdóttir og Jóna Sigurgisladóttir. Á myndina vantar eftirtaldar stjórnarkonur: Mariu Arnlaugsdóttur, Svövu Runólfsdóttur og Elinu Ólafsdóttur. Trésmiðja Keflavíkur hf. Bolafæti 3, Njarðvík Sími 3516 Óskum að ráða vana trésmiði til starfa sem fyrst. Upplýsingar veittar hjá Trésmiðju Kefla- víkur. ATVINNA Okkur vantar konur í pökkunarsal og síldarfrystingu. Mikil vinna framundan. BRYNJÓLFUR HF., Njarðvík Símí 1264 og hjá verkstjóra heima í síma 2746 epj.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.