Víkurfréttir - 15.09.1983, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 15. september 1983
VIKUR-fréttir
Hjá okkur
færðu bílinn réttan, blettaðan og almál-
aðan. - önnumst einnig framrúðuskipti.
Reynið viðskiptin.
BÍLASPRAUTUN FITJAR
Njarðvík - Sími 1227
Röskur og reglusamur
starfsmaður óskast til ýmissa starfa. Þarf
að hafa bílpróf. Umsóknir ásamt upplýs-
ingum um fyrri störf sendist afgreiðslu
Víkur-frétta, merkt: ,,Atvinna“.
Keflvíkingar
Suðurnesjamenn
Við höfum bæjarins mesta úrval af
INNANHÚSSKÓM
Einnig mikið úrval af stuttbuxum, bolum og
sokkum fyrir leikfimi og innanhússæfingar.
Hrlngbraut 92 - Keflavfk
Slysavarnadeild kvenna í Keflavík:
Gaf 10 þús. til slysavarna í umferðinni
Á fundi í umferðarnefnd
Keflavíkur sl. fimmtudag af-
henti Guðmunda Sumar-
liðadóttir, formaður Slysa-
varnadeildar kvenna í Kefla-
vík, Zakaríasi Hjartarsyni,
formanni umferðarnefndar,
peningagjöf að upphæð kr.
10.000, sem variö skyldi til
slysavarna í umferðinni.
Viðstaddir afhendingu
þessa voru umferðarnefnd-
armenn og konur úr stjórn
Slysavarnadeildarinnar.
Ákveðið hefur veriö að
peningaupphæö þessi
verði notuö til að bæta ör-
yggi skólabarna að og frá
barnaskólanum svo og á
leiö þeirra í sund.
Af þessu tilefni tókum við
þær stjórnarkonur slysa-
varnadeildarinnar sem við-
staddar voru afhending-
una, tali, en þær voru Guð-
munda Sumarliðadóttir,
Einhildur Pálmadóttir, Guð-
rún Ármannsdóttir og Jóna
Sigurgísladóttir.
Sögðu þær aö deildin afl-
aöi tekna meö basar, sölu á
minningarkortum og fé-
lagsgjöldum. Færu 3/4
hlutar teknanna til Slysa-
varnafélags fslands, en af-
ganginn mættu þær nota til
slysavarna í heimabyggö
eða annarra atriöa er tengj-
ast slysavörnum, þó með
leyfi SVFl hverju sinni. Hafa
þær á undanförnum árum
t.d. gefiö til sjúkrahússins
og Björgunarsveitarinnar
Stakks. En á þessu ári hefur
Slysavarnafélagi íslands
verið færð sérstök gjöf að
upphæð kr. 10.000 til minn-
ingar um Jónu Guðjóns-
dóttur á Framnesi auk áður-
nefndrar gjafar sem nú var
afhent.
Nýr verslunar-
stjóri í Hagkaup
Nýr verslunarstjóri hefur
tekiö viö störfum hjá stór-
markaði Hagkaups á
Fitjum. Heitir hann Karl
West Frederiksen og er
hann búsettur í Keflavík.
Guðmunda sagöist vilja
hvetja konur til að ganga í
félagið, þvi það gerði meira
en að berjast fyrir slysa-
vörnum á sjó, það hugsaði
einnig fyrir þeim í landi,
eins og sést á þessu.
Ættu önnurfélagasamtök
aö taka sér þetta félag til
fyrirmyndar, því ef eitthvað
virkilega róttækt á að gera á
Norrænu umferðarári, þá
þarf til þess mikla peninga.
Þessi félagsskapur aflar
meiri hluta tekna sinna
meðal eigin félaga, en fé-
lagið vinnur meðýmsu móti
að slysavörnum og hafa oft
áður látið aö sér kveöa í
þeim efnum. - epj.
Stjórn Slysavarnadeildar kvenna i Keflavik. F.v.: Einhildur
Pálmadóttir, Guómunda Sumarliðadóttir, Guðrún Ár-
mannsdóttir og Jóna Sigurgisladóttir. Á myndina vantar
eftirtaldar stjórnarkonur: Mariu Arnlaugsdóttur, Svövu
Runólfsdóttur og Elinu Ólafsdóttur.
Trésmiðja
Keflavíkur hf.
Bolafæti 3, Njarðvík
Sími 3516
Óskum að ráða vana trésmiði til starfa sem
fyrst.
Upplýsingar veittar hjá Trésmiðju Kefla-
víkur.
ATVINNA
Okkur vantar konur í pökkunarsal og
síldarfrystingu. Mikil vinna framundan.
BRYNJÓLFUR HF., Njarðvík
Símí 1264 og hjá verkstjóra heima
í síma 2746
epj.