Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.09.1983, Page 14

Víkurfréttir - 29.09.1983, Page 14
\)ÍKUR Fimmtudagur 29. september 1983 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er aö Hafnargötu 32, II. hæö. - Sími 1717. SPARISJÓÐURINN Réttað á Ströndinni: „Það næst aldrei allt við fyrstu leit“ - segir Sigurjón Sigurðsson, bóndi í Traðarkoti ,,Ég gæti trúað að það hafi veriö svona á milli 2-3 allt viö fyrstu leit," sagöi Sigurjón Sigurðsson, 81 árs þúsund fjár, en þaðvantaði þó nokkuö, það næstaldrei „Ættum viö aö fara á bak . . . ? bóndi í Traðarkoti á Vatns- leysuströnd, í samtali við Víkur-fréttir, en á miðviku-- dag í síðustu viku var réttað hér á Suðurnesjum á Vatns- leysuströnd. Eins og alltaf vill verða í réttunum var margt manna saman komið, ungir sem aldnir. Búrekstur er ekki mikill á Suðurnesjum og því flest allir bændur sem þarna voru saman komnirsvokall- aðir „tómstundabændur". „Þetta hefur aldrei verið aðalatvinnuvegur hér á Ströndinni, því hér hafa menn stundaö sjóennsku jafnhliöa búskap,” sagði Sigurjón bóndi. Blaðamaður Víkur-frétta var staddur í réttunum og voru meðfylgjandi myndir teknar við það tækifæri. Fjöldi manns var þarna saman kominn, margar rútur úr Keflavík komu með börn af leikskólum í fylgd foreldra sinna og einnig börn úr 6 ára bekkjum og fylgdust þau grannt með gangi mála. Mátti heyra á foreldrum barnanna, að „það væri nauðsynlegt fyrir börnin að komast í tengsl við náttúruna.“ - pket. Smábátahöfn við Miðbryggjuna? Undanfarin misseri hafa farið fram margarathuganir á heppilegu svæöi fyrir gerð smábátahafnar fyrir trillu- karlana í Keflavík og Njarð- vík. Hafa nokkur svæði komið til tals, s.s. að gera höfn í Grófinni, en nú hefur verið frá því horfið þar sem um of kostnaöarsöm mann- virki yrði að ræöa. Á tíma- bili var einnig rætt um að koma upp flotbryggju í Njarðvíkurhöfn, en þaö er einnig úr sögunni. Þá bauð Gerðahreppur öörum sveit- arfélögum hér á svæðinu til samvinnu um gerð hafnar í Garði, en áhugi meðal sveit arfélaganna var ekki fyrir hendi. Er talið að Garðmáliö hefði veriö besti kosturinn, en þar sem ekkert þessara mála gekk upp var kannaö nánar með önnur svæði að forgöngu Félags smábáta- eigenda í Kefiavík og Njarðvík og í samráði við Vilhjálm Grímsson, tækni- fræðing Keflavíkurbæjar. Niðurstöður þessarar at- hugunar liggur nú fyrir og var kynnt á félagsfundi í Framh. á 10. síöu fll k u IfcV Miöbryggjan Trillukarlar viróa fyrir sór aöstööu þá sem gera má. Spurt í föstudags- traffíkinni: Eru 8tressuö(aöur) í dag? Kristin Valgerður Jónsdóttir: „Neeei, það er ég ekki." Jón Emilsson: „Stundum, en ekki í dag.“ Þortákur Friöriksson: „Nei, alls ekki“. Harpa Möller „Ekkert voðalega".

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.