Víkurfréttir - 13.10.1983, Page 1
Glæsilegasti togari Suðurnesjamanna:
Dagstjarnan komin úr
umfangsmiklum endurbótum
Skuttogari Stjörnunnar
hf. í Njarðvík, b/v Dag-
stjarnan KE 3, kom sl.
mánudag úr umtalsverðum
endurbótum sem fram-
kvæmdar voru hjá Slipp-
stöðinni á Akureyri. Eftir
breytingarnarer skipið orð-
ið fullkomnasta togskip á
Suðurnesjum og jafnvel þó
víðar væri leitað.
Af þessu tilefni tókum við
tali Einar Kristinsson, fram-
kvæmdastjóra skipsins, og
báðum hann að lýsa þeim
breytingum sem gerðar
voru.
,,í stórum dráttum er það
endurnýjun á spilkerfi, al-
gjörlega skipt um aðalvindu
og settar 4 grandaravindur,
sagði Einar. ,,Það er komið
tvöfalt kerfi þannig að það
eru tvö troll undirslegin
hverju sinni og er því hægt
að setja annað troll út strax
ef hitt rifnar.
Ennfremur voru lunning-
ar hækkaðar og lest breytt
úr stíum í kassa þannig að
lestin getur nú tekið 4200
kassa, þ.e. 70 lítra kassa,
sem þýðir þá um 180 tonn.
Þá voru mannaíbúðir lag-
færðar og brúin innréttuð
að nýju. Eru þetta helstu
breytingar sem gerðar voru
þannig að skipið er alveg
eins og nýtt í sambandi við
veiðibúnaðinn. Þá var
einnig farið yfir vélar skips-
ins og því á það að vera
samkeppnisfært við önnur
skip eins og það er í dag."
Nánari umfjöllun um skipið, rekstur þess og Sjö-
stjörnunnar hf., er i viðtali viö Einar Kristinsson fram-
kvæmdastjóra, á bls. 2.
Fiskverkun Jóns Erlingssonar, Sandgerði:
Upphitað bílaplan
7 km af rörum fóru í verkið
Að undanförnu hefur
borið nokkuð á því að bæði
fyrirtæki og stofnanir hafa
lagt út í það að leggja hita-
lagnir í innkeyrslur og bíla-
stæði. Auðveldar það mjög
alla vinnu á svæðinu þar
sem ekki nær að safnast
neinn snjór og sparar því
jafnframt moksturskostnað
sem oft vill verða mikill á
hörðum vetrum hér á landi.
7 km af rörum fóru i planið, sem er 1800 m2
Njarðvík:
Engar breytingar orðið á
afstöðu til sameiningar
Nýlega var sagt frá fyrir-
spurn sem Ólafur í. Hann-
esson lagði fyrir bæjar-
stjórn Njarðvíkur þess
efnis, hvort meirihluti bæj-
arstjórnar hafi í laumi hafið
undirbúning að því að
leggja Njarðvikurkaupstað
niður sem sjálfstætt sveitar-
félag t.d. með sameiningu
við Keflavíkurkaupstað.
Þegar greinin var gerð lá
ekki fyrir svar meirihlutans,
en nú hefur okkur borist
það og er það svohljóð-
andi:
„Vegna fyrirspurnar Ól-
afs (. Hannessonar bæjar-
fulltrúa, viljum við undirrit-
aðir bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins taka fram
eftirfarandi: Engar breyt-
ingar hafa orðið á afstöðu
Sjálfstæðisflokksins varð-
andi sameiningu eða sam-
vinnu við Keflavík, og er
sjónarmið okkar, núverandi
bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, það sama og fram
kom i samþykkt bæjarstjórn
ar Njarðvíkur við afgreiðslu
málsins á sfnum tima.
Njarðvík, 6. sept. 1983.
Áki Granz, Helga Óskars-
dóttir, Ingólfur Bárðarson,
Sveinn R. Eiríksson." - epj.
Við Fiskverkun Jóns Erl-
ingssonar i Sandgerði hafa
verið lagðar hitalagnir á um
1800 fermetra svæði og fóru
um 7 km af rörum í verkið.
Yfir rörin er síðan malbikað
og þá komin hin besta snjó-
bræðsla. Orka frá frystivél-
um er síðan notuð til að hita
upp planið. Fyrirtækið
Pípulagnir sf. sá um lagn-
ingu og hönnun á rörunum
og tók verkið um einn dag
og er það vel af sér vikið
þegar um svona stórt svæði
er að ræða. Kostnaður við
lagnir og malbik er á milli
7-800 þús. kr.
Að sögn Jóns Erlings-
sonar mun þetta gera alla
vinnu á planinu miklu auð-
veldari, sem felst í mikilli
keyrslu lyftara og vörubíla,
auk þess sem hægt verður
að nýta það betur til að
geyma fiskikassa, en það
hefur oft á tíðum verið erfitt
þegar snjór hefur þakið
planið. - pket.