Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.1983, Síða 11

Víkurfréttir - 20.10.1983, Síða 11
Fimmtudagur 20. október 1983 11 Kvennaklúbbur Karlakórs Keflavíkur: Kaffisala - Karlakórshúsið til sýnis Eins og áöur hefur komiö fram hér í blaðinu hefurefri hæö Félagsheimilis Karla- kórs Keflavíkur við Vestur- braut veriö tekin í notkun. Aðastaða öll er þarna mjög glæsileg og vekur athygli aö skuldir kórsins eru ekki teljandi vegna byggingar- innar, því hún hefur að miklu leyti veriö unnin í sjálfboöavinnu af kórfélög- um. Þá hafa eiginkonur kórfé- laga stutt dyggilega viö menn sína með ýmsum fjár- öflunum, og n.k. sunnudag verður á þeirra vegum kaffi- sala í húsinu og því tókum viö tali Einhildi Pálmadótt- ur, formann klúbbsins, nú nýverið. N.k. sunnudag frá kl. 15 ætlum við að hafa kaffisölu í Karlakórshúsinu til styrktar Biblían talar starfsemi kórsins," sagði Einhildur. ,,Við höfum haft basar á hverju ári undan- farin ár, en nú ætlum við að skiptayfirog hafakaffisölu, bæði til þess að sýna bæjar- búum húsið og kynna starf- semi kvennaklúbbsins. Við höfum það að markmiði og höfum haft það í þessi 23 ár sem klúbburinn hefurstarf- að, að styðja við bakið á eig- inmönnum okkar og styðja þá fjárhagslega í þessum framkvæmdum. Við verðum með hlaðborð með ýmsu heimabökuðu og viljum við endilega hvetja bæjarbúa til að styrkja okkur og skoða húsið um leið." Ásamatímaog þærverða með kaffisöluna stendur Listasafnsnefnd Keflavíkur fyrir sýningu á málverkum í eigu bæjarins, í húsinu. epj. Frá efri hæö Karlakórshússins. Höldum lengur í æskuljómann Tilsögn í andlits-barm-og líkamssnyrtingu f rá f remsta húðsnyrtivöruframleiðanda Frakklands. I þessu tölublaði hefst nýr þáttur er nefnist „Biblían talar". Þar verður að finna ritningartexta til uppörvun- ar og hvatningar. í margar aldir hefur Biblían veitt manninum styrk og hugar- ró, enda eru þar að finna orð skaparans, orð full af orku sem endurnýjar hvert það líf sem það kemst í snertingu við. Ekki hafa þau orð misst neitt af mætti sínum þó svo að milljónir manna hafi meðtekið llfsorku hennar, því þar er að finna ótæm- andi uppsprettu. Jesús agði viðsamversku konuna sem hann hitti við Jakobsbrunninn: ,,Ef þú þekkir gjöf Guðs og hver sá er, sem segir við þig: Gef mér að drekka! Þá mundir þú biðja hann, og hann mundi gefa þér lifandi vatn. Hvern þann sem drekkur af vatninu, sem ég mun gefa honum, mun aldrei að eillfu þyrsta, heldur mun vatnið, sem ég mun gefa honum, verða í honum að lind, er sprettur upp til eilífs lífs." Jóh. 4:10,14. Til viðbótar við þennan þátt hér í blaðinu verður þjónusta símsvarans Biblí- an talar sími 1221 endur- bætt. Þar hefur veriö að finna stuttar hugvekjur um orð Drottins og verður því haldið áfram með þeirri breytingu að ný hugvekja verður í símsvaranum á hverjum virkum degi. Er það ósk okkar að Suður- neskabúar njóti góðs af. Með kærri kveðju frá Söfnuði Sjöunda dags Aðventista á Suðurnesjum Aukið upplag Án efa hafa lesendur blaðsins tekið eftir að meira framboð var af blaðinu þegar það kom út síðast en veriö hefur. Stafar þetta af því að upplag blaðsins hefur verið aukið í 3500ein- tök, og ættu því nú fleiri að geta fengið blað. NÚ ER CLARINS KOMIN í KEFLAVÍK Dagný Helgadóttir - CLARINS snyrtisérfræð- ingur, verður á staðnum og til viðtals í dag, fimmtudag 20/10 og morgun, föstudag 21/10. APÖTEK KEFLAVÍKUR Suðurgötu 2 - Sími 1280 cfo David Pitt & Co. h.f Klapparstíg 16, Sími 13333, Pósthólf 1297, Reykjavík. KYNNINC Á CLARINS CLARINS bvður upp a nýtt tíma- bil þar sem atvinnumennska situr í fyrirrúmi við framleiðslu og notkun snyrtivara. CLARINS hefur frá upphafi stefnt að því aðfinna raunhæfa lausn á fegurðar- málum kvenna. CLARINS sérhæfir sig í húðsnyrtingu alls líkamans. Áhugamál okkar er áferð og styrkleiki húðarinnar- ekki aðeins í and- liti heldur um allan líkamann. Þess vegna er ekkert sparað til á rannsóknarstofum CLARINS og hráefni öll í hæsta gæðaflokki. UNGLEGT ANDLIT CLARINS hefur meðalið til þess að styrkja andlitsvöðva, bæta áferð húðar, draga úr smáhrukkum og þrota kringum augu og til þess að slétta og mýkja hálsinn. STÆLTUR LÍKAMI Hjá CLARINS fara saman hug- tökin stæltur og grannur. Konan verður að skilja þær breytingar, sem verða á húðvefnum og innri sam- setningu hans, þegar um þyngdarbreytingu (t.d. megrun, þungun, streitu, þreytu, öldrun) er að ræða. Reynsla CLARINS hefur leitt til framleiðslu áhrifaríkra efna, sem hjálpa konum á öllum aldri, til þess að auka teygjanleika húðarinnar, mýkja hana og styrkja. Vörn þín gegn hrörnun felst í því sem þú gerir núna til þess að viðhalda unglegu andliti, stinnum barmi og stæltum líkama.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.