Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.10.1983, Side 1

Víkurfréttir - 27.10.1983, Side 1
Fullnægir nú eigin raforkuþörf Ný 500 kw túrbína gerir það kleift Sjóefnavinnslan á Reykja- nesi hefur nú tekið í notkun nýja gufutúrbínu og mun hún nýta gufu frá borholu 8 og framleiða rafmagn til notkunar á svæði fyrirtæk- isins á Reykjanesi. „Með til- komu túrbínunnar mun Sjó- efnavinnslan nú fullnægja eigin raforkuþörf," sagði Finnbogi Björnsson í sam- tali við Víkur-fréttir. Túrbínan, eða gufuhverf- illinn, hefur framleiðslu- getu upp á500 kw, sem mun fullnægja raforkuþörf fyrir- tækisins þar til frekari stækkunaráfangar á svæð- inu verða. Túrbínan er keypt frá Þýskalandi og auk þess komu þýskir verkfræö- ingarsem sáu um uppsetn- ingu og prófun, en verð hennar er um 4.9 milljónir ísl. króna. í sumar hefur staðið yfir bygging á húsi fyrir rafstöð- ina, sem nú er lokið, svo og varðandi ýmsan stjórnbún- að sem til staðar er í raf- stöðvarhúsi. Að sögn Finnboga kom tvennt til greina þegar ákveðið var að hefja upp- setningu túrbínunnar, en það var að leggja nýja línu- lögn til Svartsengis, Grinda- víkur eða Hafna, samkvæmt úttektinni sem gerð var á kostnaði þessara tveggja þátta, þ.e. 500 kw túrbín- unnar eða línulagnarinnar, þá var fyrri kosturinn hag- stæöari. Mun rafmagns- framleiðsla hefjast í þess- ari viku. Eins og sagt var frá hér í blaðinu fyrir skömmu, þá var hleypt í blástur nýrri holu á Reykjanesi, holu 9. Endanlegar mælingar á holunni hafa ekki farið fram en talið er að með eim- svalahverfli (Condense túr- bínu) gæti holan gefið allt að 20 megavött. Þetta hefur þó ekki veriö staðfest ennþá þar sem mælingar eru ennþá í fullum gangi. Að sögn fróðra manna er álitið að raforkuþörf byggðarlag- anna á Suðurnesjum og Keflavíkurflugvallar sé um 23 megavött. Þá má einnig geta þess að nú blæs van- nýtt borhola í Eldvörpum sem unnin var á vegum Hitaveitu Suðurnesja og er talið að stærð hennar sé lík stærð áðurnefndrar holu. pket. Rafstöövarhúsió á Reykjanesi Hjólagarpur í Heiðarbyggð L,ösm pke, Þröngt um atvinnu hjá konum Þrátt fyrir að nokkuð gott atvinnuástand sé nú hjá karlmönnum á Suðurnesj- um, virðist annað vera uppi á teningnum þegar um kvenfólk er að ræða. Undir þetta tóku bæði Guörún Ólafsdóttir, for- maður Verkakvennafélags Keflavíkur og Njarövíkur, og María Valdimarsdóttir á skrifstofu Félagsmálafull- trúa Keflavikurbæjar, í við- tali viö blaðið sl. mánudag. Spilar þarna töluvert inn í hin lélegu aflabrögð sem veriö hafa að undanförnu, en vegna þess hefur fallið niður vinna í nokkrum fisk- verkunarstöðvum af og til, nokkra daga f einu. Þá virð- ist nú vera meiri aösókn hjá konum inn á atvinnumark- aöinn, konum, sem ekki hafa verið þar mörg undan- farin ár, og þar spilar ef til vill verri kaupmáttur al- mennings inn (. Þá er það orðiö nokkuð bagalegt fyrir þann stóra at- vinnumarkaö sem Suöur- nes eru, að mjög lítið er um störf sem ekki tengjast sjáv- arútvegi, eins og þó á sér stað þegar um störf karl- manna er að ræða, því hjá þeim viröist útlitið vera nokkuð bjart framundan. Þar spilar nokkuð stórt inn í aukning á störfum sem til- heyraveru varnarliðsins hér á landi, s.s. bygging flug- skýla, væntanleg bygging flugstöðvar, framkvæmdir í Helguvík o.fl. o.fl. Sagði Guðrún Ólafsdóttir að þetta ástand væri orðiö nokkuð bagalegt og þyrfti úrbóta við mjög fljótlega, og undir sama streng tók María Valdimarsdóttir. Guðrún sagöi ennfremur að ef einhversíld kæmi hingað til vinnslu, myndi það bæta ástandiö, en aðeins um stundarsakir, meira þyrfti til. - epj. 70 þúsund Margir lesendur hafa haft samband við blaðið vegna ákvörðunar stjórnar Hita- veitu Suðurnesja, að verja kr. 145 þús. í gerð kvik- myndar, sem sýnd verður í orkuverinu í Svartsengi og sagt var frá í síðasta blaði, og ekki síður þá staðreynd, að stjórn HS skuli hafa sam- þykkt að taka þátt í ferða- kostnaði ÞóroddarTh. Sig- urðssonar á orkuráðstefnu á Indlandi, með 70 þús. kr. framlagi. Benda þeir sem haft hafa samband við blaðið á, að ekki væri lengur hægt aö líöa það bruðl sem er í kringum þetta fyrirtæki, meðan önnur fyrirtæki á vegum SSS eru með allan kostnað í lágmarki. Enda falla báöar þessar fjárveit- ingarvarla undirannað, eða ætlar HS aö læra um orku- sparnað á þurrkasvæðun- um á Indlandi? Væri ekki nær, ef hagur - til hvers? fyrirtækisins er þetta góður, að þeir geti með sóma leyft sér þetta, að fénu væri varið til að lækka orkugjaldið þannig að það kæmi frekar almennum notendum til góða en þetta? - epj. 100 video- spólum stolið í síöustu viku var brotist inn í Videoking, sem er til húsa í gömlu lögreglustöö- inni við Hafnargötu, og stolið öllum VHS videospól- um sem til voru, eða um 100 spólum. Var brotin upp hurð og allar spólurnar hreinsaðar úr einni hillunni. Þjófurinn eða þjófarnir virðast aöeins hafa haft áhuga fyrir VHS-spólum, því þeir skildu eftir allar Beta-spólurnar. VHS-spól- urnar voru flestar nýjar eða nýlegar. - epj.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.