Víkurfréttir - 10.11.1983, Blaðsíða 3
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 10. nóvember 1983 3
/
Grunnskólamót Suðurnesja
í frjálsum íþróttum:
Njarðvíkingar sigurvegarar
Frjálsíþróttamót grunn-
skólanna á Suöurnesjum
var haldið í fyrsta sinn 2.
nóv. sl. í íþróttahúsinu í
Njarðvík. Rétt til þátttöku í
mótinu höfðu nemendurfrá
grunnskólunum í Garði,
Grindavík, Sandgeröi, Vog-
um, Njarðvík og Keflavík.
Keppt var í 6greinum: há-
stökki og langstökki
drengja og stúlkna, og þrí-
stökki drengja án atrennu,
og svo boðhlaupi beggja
kynja. Keppendur voru 10
frá hverjum skóla, 6 drengir
og 4 stúlkur.
Keppt var um þrjá verð-
launagripi, farandgrip sem
veittur var fyrir flest saman-
lögð stig í keppninni, og var
hann gefinn af Njarðvíkur-
bæ. Tveir verðlaunagripir
voru veittir til eignar, en það
var fyrir flest samanlögð
stig stúlkna og drengja, og
voru þeir gefnir af Bústoð i
Keflavík.
Úrslit í stigakeppninni
urðu þessi: stig:
Njarðvík ........... 107.0
Keflavík ............ 98.0
Grindavík............ 97.5
Sandgerði ........... 72.5
Vogar ............... 59.0
Garður .............. 42.0
Eins og sjá má á þessum
tölum var keppni mjög jöfn
og spennandi.
( boðhlaupinu voru nem-
endur úr Grunnskóla Kefla-
víkur hlutskarpastir, í öðru
sæti Njarðvíkingar og
Grindvíkingar í þriðja.
Þessi keppni sýndi það
og sannaði að Suðurnesja-
mönnum er fleira til lista
lagt en að leika sér með
bolta. - GS/pket.
Ijl j í'I):| | . —...
IS
Frá Foreldra- og kennarafélagi
Barnaskólans í Keflavík
Foreldra- og kennarafé-
lag Barnaskólans í Keflavík
gerði tilraun til að halda
aðalfund 7. nóv. sl. Vegna
mjög Wegrarfundarsóknar
varö aðj^esta téðum fundi.
Við stiorum hér með á for-
eldra og forráðamenn
bárna að láta ekki aðra til-
raun til aðalfundar fara út
um þúfur. Hristiö af ykkur
drungann, sleppið ,,Dallas"
og mætið sem fulltrúar
barna ykkar, miðvikudag-
inn 16. nóvember kl. 20.30.
Engin mæting - ekkertfé-
lag.
Stjórnin
Þakkir til Samkaupsmanna
Fyrir stuttu síðan átti ég
fertugsafmæli, sem í sjálfu
sér er ekki í frásögu fær-
andi, en þar sem ég átti von
á fjölda gesta, var ákveðiö
að bjóða upp á kjötmáltíð
og var kjötiö keypt í Sam-
kaup.
En þegar líða tók að þeim
tíma sem gestirnir áttu að
koma, kom í Ijós að kjötið
var skemmt og nú voru góð
ráð dýr. Ég hafði þegar
samband við Kristján Hans-
son, deildarstjóra í Sam-
kaupum, og skýrði gang
mála.
Nú, áður en ég vissi af var
Kristján mættur heim til mín
ásamt matreiðslumanni frá
Samkaup, að nafni Eiríkur
Hansen, og tveimur tímum
eftir að málið hafði komið í
Ijós, voru þeir aftur mættir
og nú með tilbúinn rétt, mér
algjörlega að kostnaðar-
lausu.
Þetta var slík f rábær þjón-
usta, að ég mátti til með aö
láta það fréttast, enda tókst
þeim að bjarga veislunni al-
gjörleg, þó illt hafi verið í
efni í upphafi. Eiga þeir
þakkir skilið fyrir.
Eignamiölun Suðurnesja
Hafnargötu 57 - Keflavík - Sfmar 1700, 3868
L
■■ fi~® ff I
-
Háaleiti 11, Keflavik:
Gott 157 m2 einbýlishús, sem skiptist
i 4 svefnherb. og stofu, allt meira og
minna endurnýjað fyrir 2 árum. -
2.800.000.
Greniteigur 21, Keflavfk:
148 m2 raðhús, skipti á minni eign
möguleg. Litlar veðskuldir. -
2.100.000.
Garðavegur 5, Kefiavik:
100 m2 einbýlishús, sem skiptist í 3
svefnherb. og stofu. Góður staður.
1.300.000.
Stafnesvegur 6, n.h., Sandgerði:
Góð 3ja herb. neðri hæð, ásamt bíl-
skúr, mikiö endurnýjuð. - 950.000.
KEFLAVÍK:
Mjög góð 2ja herb. íbúð við Ásabraut,
sér inngangur. - 700.000.
3ja herb. íbúð við Vesturgötu, sér inn-
gangur. - 700.000.
Glæsileg 3ja herb. endaíbúð við
Mávabraut, sér inngangur, nýtt
parket á gólfum o.fl. - 1.050.000.
3ja herb. íbúð við Faxabraut, laus
fljótlega. - 865.000.
Mjög góð100m2hæðviðHringbraut,
ásamt bílskúr. - 1.400.000.
Glæsilegt 136 m2 endaraðhús við
Faxabraut, ásamt 45 m2 bílskúr. Sér-
lega bjart og skemmtilegt hús. -
1.900.000.
Góð 120 m2 hæð við Miðtún, mikið
endurnýjuð. - 1.300.000.
Glæsileg 135 m2 5 herb. íbúð við
Hringbraut 136, ásamt bílskúr. Litlar
veðskuldir. - 1.500.000.
155 m2 parhús við Hátún, nýtt eldhús
o.fI. - 1.850.000.
Gott 136 m2 endaraðhús við Faxa-
braut ásamt bílskúr. Skipti möguleg.
1.750.000.
Mjög gott 146 m2 einbýlishús við
Austurbraut, ásamt bílskúr. Ræktað-
ur garður o.fl. Skipti á minni eign
möguleg. - 2.750.000.
Nýlegt 125 m2 einbýlishús viðSuður-
velli, ásamt bílskúr. Skipti á minni
eign möguleg. - 2.200.000.
NJARÐVÍK:
Mjög gott 124 m2 einbýlishús við
Borgarveg, ásamt 50 m2 bílskúr.
Heitur pottur o.fl. - 2.200.000.
Góð 2ja herb. ibúð við Hjallaveg. -
880.000.
Góð 3ja herb. íbúð við Hjallaveg.
Ákveðin sala. - 925.000.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
frá kl. 10 - 15.
VERIÐ VELKOMIN.