Víkurfréttir - 10.11.1983, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 10. nóvember 1983
VÍKUR-fréttir
Körfuknattleikur - Úrvalsdeild
ÍBK - VALUR 78:106
Bílasölu Brynleifs
- SÝNISHORN AF ÚRVALINU -
Keflvíkingar mættu ofjörlum sínum
Valsmenn rufu fyrstir 100 stiga múrinn
Volvo 244 GL 79, ekinn 66
þús. km., toppbíll.
Mazda 929 HT '80, ekinn 55
þús. km., toppbíll.
Ford Mustang '80, toppbíll,
ekinn 78 þús. km.
Mazda 626 '80, ekinn 64
þús. km. Góöur bíll.
Fiat Ritmo 65 '82, ekinn 13
þús. km., sem nýr.
Cherokee jeppi '75, i góöu
ástandi.
Datsun Vloiet 160 J '80, ek-
inn 51 þús. km.
Saab 900 GLS ’81, ekinn 25 þús., toppbíll.
Honda Quintett ’81, ekinn 27 þús.
Honda Prelude ’80, ekinn 57 þús. Fallegur
bíll.
Athugiö: Mikið af jeppum, amerískum og
fjölda annarra bíltegunda á skrá.
Bílasala Brynleifs
Vatnesvegi 29a - Keflavik - Sími 1081
Á hverjum
fimmtu-
degi.
Keflvíkingar fengu svo
sannarlega aö kenna á Vals-
mönnum í úrvalsdeildinni á
föstudagskvöldið, en þá
voru þeir gjörsamlega yfir-
spilaðir af sterku liði Vals og
töpuðu stórt, 78:106, eftir
að staðan i hálfleik hafði
verið 36:49. Valur er því
fyrsta liðið í úrvalsdeildinni
íársem rýfur100 stigamúr-
inn og meira aðsegjaöstig-
um betur.
Keflvíkingar héldu í við
Valsmenn fyrstu 2 mín., en
þá var staðan 6:6. Eftir það
var alger einstefna þeirra
Valsmanna og skoruðu
þeir úr hverri sókn naestu 7
mín. á meðan ekkert gekk
hjá Keflvíkingum, og staðan
þá orðin 26:12, en mestur
varð munurinn 35:19. Eitt-
hvað rönkuðu Keflvíkingar
þá viö sér en náðu þó aldrei
að ógna forskoti Vals-
manna og staðan í hálfleik
49:36, Val í hag.
Sama var uppi á teningn-
um í seinni hálfleik og juku
Valsmenn enn við forskot
sitt. Voru þeir yfirleitt þetta
20-25 stigum yfir og þegar
tæplega 4 mín. voru eftir
setti Miley alla sína vara-
menn inn á, enda engin von
að ná Valsmönnum, og varð
munurinn þá mestur í leikn-
um, 106:74. Keflvíkingar
skoruðu síðan fjögur síð-
ustu stigin í leiknum og
lokatölurnar urðu 106:78,
stórsigur Vals staðreynd.
Keflvikingar voru í þess-
um leik heilum ,,klassa“
neðar en Valsmenn hvað
körfuknattleik varðar. Yfir-
buröir Vals voru gífurlegir
og þá helst í fráköstum. Áttu
þeir eiginlega öll sín varnar-
fráköst og allt of mörg sókn-
arfráköst og vantar því Kefl-
víkinga auðsjáanlega stór-
an og sterkan mann undir
körfu sína. Einnig ,,stálu“
Valsmenn oft boltanum af
Keflvíkingum og skoruðu
því margar ódýrar körfur á
mikilvægum tímum í fyrri
hálfleik. Með ónákvæmum
sendingum Keflvíkinga
fengu Valsmenn einnig að
sýna hraða sinn í hraðaupp-
hlaupum, enda skoruðu
þeir grimmt úr þeim.
Bestur í liði Keflvíkinga
var Jón Kr. og sýndi hann
íslenskt-franskt eldhús sf.
Hafnargötu 30, Keflavík,
tilkynnir:
Tökum að okkur að sjá um veislumat.
Nýstárlegar hugmyndir í franskri og
íslenskri matargerðarlist,
eins og hún er best. - Reynið viðskiptin.
Upplýsingar í síma 3073.
mikla yfirburði. Þá sýndi 16
ára nýliði, Guðjón Skúla-
son, hvað í honum bjó og
lék mjög vel í sínum fyrsta
leik. Leikmaður með góða
takta en vantar meiri
reynslu, og er alveg furðu-
legt að hann skuli ekki hafa
fengið að spila áður, því hér
er á ferðinni framtíðarmað-
ur. Þorsteinn var allt of
seinn í gang og vantaöi
Keflvíkinga auðsjáanlega
skorið hans í fyrri hálfleik,
en þá skoraði hann aðeins 6
stig. Björn V. gat ekki leikið
með vegna meiðsla.
Stig ÍBK: Jón Kr. 27, Þor-
steinn 20, Guðjón 12, Pétur
7, Hrannar4, Hafþór, Óskar,
Guðbrandur og Sigurður 2
hver.
Kristján Ágústsson var
bestur í annars sterku liði
Vals og skoraði hann 30
stig. Tómas Holton gerði
17, Jó St. 16, Torfi 14, og
Jóhannes Magnússon 14,
en aðrir gerðu minna.
Leikinn dæmdu þeir Jón
Otti og Hörður Tuliníus og
höfðu þeir lítið fyrir því að
dæma leikinn, en eitthvað
virðist sá síðarnefndi vera
óvinsæll meðal keflvískra
áhorfenda, sem voru fjöl-
margir að venju og hvöttu
sína menn þrátt fyrir
stórtap. Einn ósið mættu
þeir þó leggja niður, en sá
er að henda leikskrám og
öðru drasli niður á leik-
vanginn, sem veldur leik-
mönnum og dómurum
miklu ónæði, svo ekki sé
talað um óþrifnaðinn. - val.
Guöfón Skúlason, einn al framtióarmönnum IBK-Iiósins, skorar
hér glæsilega körfu.
ÍBK tapaði fyrir
Ármanni
3. deildar lið ÍBK í hand-
bolta lék við Ármenninga í
íþróttahúsi Seljaskóla sl.
laugardag. Lokatölur urðu
26:21 fyrir Ármann eftir að
staðan í hálfleik hafði verið
19:7, þeim í vil.
Eftir hroðalegan fyrri
hálfleik hjá ÍBK þá tóku þeir
sig heldur betur á í þeim
seinni og náðu að minnka
muninn með góðum leik,
þrátt fyrir að þeim tækist
ekki að jafna.
Ragnar Margeirsson lék
með fBK og þótti standa sig
vel í þessum leik, og með
æfingu þá getur hann orðið
mjög góður handboltamað-
ur. Sigurður Björgvinsson
var markahæstur hjá ÍBK
með 9 mörk, Björgvin bróð-
ir hans með 5. - pket.
Úrvalsdeild:
ÍBK - KR
á morgun, föstu-
dag kl. 20.