Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.11.1983, Síða 8

Víkurfréttir - 10.11.1983, Síða 8
8 Fimmtudagur 10. nóvember 1983 VÍKUR-fréttir Þverrendurnar við Sparkaup bera árangur 26. október sl. hélt um- ferðarnefnd Keflavíkur nefndarfund og þar kom m.a. fram, aö lögreglan gerði athugun, að beiðni nefndarinnar, á lækkun um- ferðarhraða vegna þver- randa sem settar voru á ak- brautina inn í bæinn á Hringbraut norðan við Sparkaup. (Ijós hefur kom- ið, aö áður voru 36.9% öku- tækja mæld á 50 km hraða miðað við klst. eða minna, en eftir að þverrandirnar voru settar upp var þessi tala komin upp í 85.2% á 50 km hraða eða minna. Að mati nefndarinnar er þessi árangur framar öllum vonum. Upplýst er að íbúar við götuna hafa lýst ánægju sinni með verulegar breyt- ingar til batnaöar. Nefndin leggur áherslu á að gengið verði frá gang- brautinni yfir Hringbraut noröan Vesturgötu. Þá mun nefndin fylgjast áfram með umferðinni á Hringbraut og meta síðar hvort aðgerðirnar sem nú hafa verið gerðar séu full- nægjandi. Nefndin leggur til að bætt verði við skilti við Hringbraut á móts við rað- húsin norður undir gatna- mótum við Vesturbraut, með orðsendingu til öku- manna um lækkun há- markshraða. - epj. VÍKUR-fréttir vikulega. Ódýrt - Ódýrt Barna- og unglingaföt á mjög góðu verði, til sýnis og sölu að Grundarvegi 11,1. hæð, Njarðvík. FURUHILLUR Hillustærðir: 30x80 og 50x80 Uppistöður: 61, 112 og 176 cm j dropinn Hafnargötu 80 - Keflavík - Siml 2652 SOLBAÐSSTOFAN Hafnargötu 32 - Keflavík Höfum hina vinsælu MA SOLARIUM PROFESSIONAL lampa, sem eru með quarts andlitsperum. Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 7 - 23, laugardaga og sunnudaga frá kl. 8 - 21. Við minnum á að við höfum enn opið að Þórustíg 1 í Njarðvík, sími 1243. Bjóðum nú í fyrsta sinn á Suður- nesjum Slendertone Profissonal rafeinda- og vöðvaþjálfunartæki (sjá auglýsingu annars staðar blaðinu). SÓLBAÐSSTOFAN Hafnargötu 32 - Keflavík Til hamingju, Hilmar Alltof oft vill það brenna við aö húsbyggjendur dragi þaö alltof lengi aö ganga frá ytra útliti húsa og umhverfi. Þessu ersvo sannarlega ekki þannig varið um hús þaö sem séstá meöfylgjandi mynd og stendur viö Birkiteig i Keflavík. Sá aöili, sem hér hefur veriö aö verki, hefur áöur skilaö afsér húsi hér i bæ, sem hefur veriö meö frágang og ytra útlit húsbyggjandanum til sóma, en þessi aöili er Hilmar Haf- steinsson i Njarövik. - epj. Breski miðillinn Eileen Roberts: Fyllti húsið þrátt fyrir Dallas Annar miðill væntanlegur Á miðvikudagskvöldiö í síðustu viku fór fram í Karla- kórshúsinu skyggnilýsing- arfundur með breska miðl- inum Eileen Roberts, á veg- um Sálarrannsóknarfélags Suðurnesja. Þrátt fyrir að fundartími hafi verið á svo- kölluðu Dallaskvöldi, þegar meiri hluti þjóðarinnar er yfirleitt bundinn fyrir fram- an sjónvarpið, sóttu milli 140-150 manns fundinn og komust færri að en vildu. 16. nóvember n.k. áSRFS von á öðrum breskum miðli hingað. Er hér um að ræða læknamiðilinn JOAN REID, og mun hún dvelja hjá fé- laginu í 3 vikur og takafólk í einkatíma og framkvæma haldayfirlagningu. Joan Reid er heimsfrægur lækna- miðill og hefur m.a. starfað í Finnlandi, Sviss, Kanadaog hér á landi, en hingað hefur hún komið árlega sl. 13 ár. Þar sem aöeins takmark- aður fjöldi kemst aö hjá henni, ættu þeirfélagarsem hug hafa á tíma, að tryggja sér þá tímanlega, en þeir verða seldir n.k. sunnudag í húsi félagsins, Túngötu 22, frá kl. 13. - epj. Reykjaborgin missti aftur snurvoðaleyfið Á meöfylgjandi mynd sjást snurvoöabátarnir þrir sem leggja upp afla i Njarövikum, i Keflavikurhöfn umsl. helgi, en sá i miöjunni, Reykjaborg RE 25, hefur nú aftur misst leyfiö fyrir brot á veiöireglum., en áöur missti hann leyfiö i ágúst sl. Á sama tíma er fjóröi báturinn frá frá Keflavik geröur út á þetta veiöarfæri og fær ekki aö vera hér i bugt- inni, og hefur þvi veriö geröur út frá Þorlákshöfn aö und- anförnu. Er það Vikar Árnason. - epj. Tilefnið vantaði ( síðasta tölublaði var sagt frá mótmælum Sigurð- ar Friðrikssonar varöandi vinnubrögð bygginga- nefndar Miðneshrepps. Þau mistök urðu í handritagerö, að niður féll ástæöan fyrir þvi að þessi mótmæli komu fram. En ástæðan er sú, að á fundi í bygginganefnd 28. júlí ísumarvorulagöarfram teikningar af þrem húsum í Sandgerði, þ.e. svínabúinu við Strandgötu, iönaðar- húsi aö Strandvegi 21 og viöbyggingu fiskverkunar- húss aö Strandgötu 22. Taldi Siguröur að teikn- ingar þessara húsa hefðu verið lagðar fram löngu eftir að framkvæmdir viö húsin hófust. - epj.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.