Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.11.1983, Síða 10

Víkurfréttir - 10.11.1983, Síða 10
10 Fimmtudagur 10. nóvember 1983 VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 10. nóvember 1983 11 Myndatökur við /a\\ra hœfi. > Hafnargötu 26 - Keflavik - Stmi 1016 Gengiö inn frá bílastæöi. Námskeið í jólaföndri verður haldið dagana 19. og 20. nóvember. Nánari upplýsingar í síma 2669 (Anna) milli kl. 19.30 - 21 virka daga og kl. 13 - 21 laug- ardaga og sunnudaga. Aðalfundur 1983 verður haldinn í húsi félagsins, Tjarnar- götu 3, Keflavík, laugardaginn 12. nóvem- ber kl. 2 e.h. DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf Skýrslur lífeyrissjóða Útgáfa iðnaðarmannatals Erindi Jóns E. Unndórssonar, iðnráð- gjafa Suðurnesja, um iðnþróun á Suðurnesjum. Félagar, mætið vel og stundvíslega. Stjórnin Áður Sól Saloon SÓLBAÐSSTOFA Háteig 13 - Keflavík Vorum að fá sterku perurnar. Opið frá: mánud. - föstud. 7-23 laugardaga .... 10-20 sunnudaga ..13-20 Sími 3680 Eftir VÍKUR-fréttir Heimsókn í Baðstofuna Á fimmtudögum i hverri viku kemur saman um 15 manna hópur i kennslustofu einni i Gagnfræðaskólanum i Keflavík. Er hér um aö ræöa hóp á vegum Baðstofunnar, og þaö sem fram fer iþessari stofu er myndlistarkennsla og er hún i umsjá eins þekktasta myndlistarmanns íslendinga i dag, sá heitir Eirikur Smith, Hafnfiröingur, eöa gaflari, eins og hann segir sjálfur. Baðstofan hefur i sinni um- sjá 2 deildir í myndlist, er önnur í umsjá Eiriks og hin, sem kemur saman á öðrum tima undir leiösögn Jóns Gunnarssonar, einnig úr Hafnarfiröi. Forsvarsmaður hennar er Elsa Hertervig. Til aö fræöast örlítiö meira um þessa starfsemi og einnig af einskærri forvitni, sló blaðamaður Vikur-frétta til og heimsótti annan hópipn sl. fimmtudag og spjallaði við nokkra áhugasama nemendur og Eirik, leiöbeinanda þeirra. „Ég sagði nei við Erling, en hann hafði það á endanunV - segir Eiríkur Smith, listmálari og kennari í Baðstofunni „Þetta byrjaði nú eigin- lega þannig, að Erlingur Jónsson, stofnandi Bað- stofunnar, hringir í mig eitt kvöldið og spyr mig hvort ég geti komið og kennt myndlist hérna í Keflavík, einu sinni í viku. Ég var nú ekkert á því og sagði bara nei, en Erlingurvarekkertá því að gefa sig og suðaði í mér, og þegar hann varfar- inn að kjökra, svona meira í gríni sagt, þá gaf ég mig. Þetta var haustið 1975 og þetta er því níundi veturinn hjá mér nú.“ Þessi orð mælir Eiríkur Smith, einn þekktasti listmálari okkar (slendinga í dag, en hann er kennari við myndlistardeild Baðstofunnar. „Já, það má eiginlega segja að þetta sé bein kennsla, og það verður að segjast eins og er, að ég hef mjög gaman að því að starfa meö þessu fólki, enda er þetta allt orðið nánir vinir manns eftir öll þessi ár. Kennslan verður mun áhugaverðari og skemmti- legri þegar nemendurnir eru áhugasamir og leggja sig fram, og það er einmitt sem þetta fólk hérna hjá mér gerir. Þegar maður skoðar svo málið nánar, þá munar mig ekkert um að keyra hingað til Keflavíkur einu sinni í viku." Hvaö er hópurinn stór, og hvernig er kennslu háttaö? „Við komum saman á fimmtudagskvöldum í hverri viku og höfum að- stöðu í Gagnfræðaskólan- um í Keflavík. Hópinn skipa um 15 manns, bæði karlar og konur, og er það mjög æskileg stærð á svona hóp að vera, svo að hægt sé að ná til hvers og eins. Nú, kennslutímabilinu er skipt á þann veg, að fyrir jól teikn- um við, en eftir áramót er málað, bæði olía og vatns- litir. Annað hvert ár er svo haldin sýning á verkum hópsins. Þessu fólki hér hetur farið mikið fram, sé einnig tekið tillit til þess að við komum bara saman einu sinni í viku, 3 tíma í senn. Aftur á móti vilji fólk ná enn betri árangri þá er æskilegt að það máli heima, og stór hluti hópsins ef ekki flestir, gera það.“ En aö læra aö mála, er þaö fyrir hvern sem er, - „Jú, ég verð að viður- kenna það, og ósjaldan hittir maður fólk á förnum vegi sem segir beint við mann: „Ég verð að fara að fá mynd hjá þér“, og þannig er nú statt hjá mér núna, að margar myndir stoppa orðið stutt hjá mér og ef ég ætlaði að halda sýningu, þá yrði ég að hægjaásölunni." Pálmi Viöar og Eirikur viröa fyrir sér myndefniö. verður maöur ekki aö hafa þetta I sér, eins og sagt er? „Það sem þarf er fyrst og fremst áhugi, ákveðinn neisti, og ef hann er fyrir hendi, þá lætur árangurinn ekki á sér standa." Nú, svo ég spyrjl þig aö- eins út í þlg sjálfan, þá hefur eftirsókn i myndir þínar aukist mjög á undanförn- um árum? Fá myndlistarmenn ekki oft verkefni sem hinir ýmsu aöilar biöja um? „Vissulega. Fyrir 2 árum síðan fékk ég t.d. það verk- efni að mála mynd af ánni sem Karl Bretaprins veiðir í þegar hann kemur til ís- lands, og var það gjöf frá ís- lendingum til hans og Díönu á brúðkaupsafmæli þeirra." Hvert sækir þú aðallega þitt myndefni? „Ég sæki það mest héðan af Suðurnesjum og einnig umhverfis Hafnarfjörð, þessi svæði bjóða upp á mikla möguleika," sagði Eiríkur Smith, listmálarinn kunni, að lokum. „Fer beint að mála eftir vinnu“ - segir Soffía Þorkelsdóttir „Teikningin er náttúrlega undirstaðan, en ég hef Soffia Þorkelsdóttir mundar blýantinn. gaman að bæði málning- unni og teikningunni,“ sagði Soffía Þorkelsdóttir. „Þetta er níundi veturinn hjá mér og þetta er mjög skemmtilegt, hópurinn mjög góðurog leiðbeinand- inn okkar hann Eiríkur, er alveg skínandi góður. Já, ég mála all mikið, þegar ég er búin að vinna klukkan sex þá fer ég oft beint að mála, og svo er ég einnig að á kvöldin og um helgar. Halda áfram? Jú, hver ósköp, á meðan áhuginn er fyrir hendi þá geri ég þaö,“ sagði Soffía Þorkelsdóttir. „Mest fyrir olíuna - segir Guðmundur Maríasson „Ég er búinn að vera i Baðstofunni frá 1974 og vorum við þá undir leiðsögn Guðmundar Karls og síðan þeirra Péturs Friðriks og Ragnars Páls, þartil Eiríkur Guömundur Mariasson lætur handarmeiósl ekki aftra sér frá áhugamálinu. Ljosm. og texti: pket. Ásta Árnadóttir og Eirikur mæla út, eins og sjá má, á einfaldan máta. Aörir á myndinni, Sigriöur Rósinkransdóttir og Nikulai Bjarnason. Smith byrjaði 1975 og hefur verið síðan,“ segir Guð- mundur Maríasson. „Ég tek þetta grafalvarlega," sagði hann og hló, „eyði öllum mínum frístundum í að mála og er nánast á hverju kvöldi með pensilinn í höndunum. Olían heillar mig og ég er eingöngu í henni og mála mest sjávarlífsmyndir og myndir frá gamla tímanum. Það er alveg sérstakur andi í þessum hóp okkar, sérstök stemmning sem ríkir og ég er alveg ákveðinn að halda þessu áhugamáli mínu á- fram á meðan ég get,“ sagði Guðmundur. „Viðerum eins og stór fjölskylda“ - segir Ásta Árnadóttir „Ég byrjaði fyrst árið 1970, en þá hófst starfsemi Baðstofunnar undir stjórn Erlings Jónssonar, og vorum við þá aðallega í leir- mótun og tréskurði, mynd- listin kom svo síðar. Bað- stofunafnið er síðan á þessum árum Erlings, og í dag er þessi hópur sem við erum í núna, einungis deild innan Baðstofunnar," sagði Ásta Árnadóttir, en hún ásamt Sigríöi Rósinkrans- dóttur, eru forsvarsmenn deildarinnar. „Árið eftir að ég byrjaði hjá Erlingi tók ég svo við verslun héríbæog kom lítið sem ekkert nálægt þessu í 10 ár, eða þar til ég seldi verslunina árið 1981, og þá byrjaði ég af fullum krafti aftur. Að vísu tók ég aðeins þátt í sýningunni vorið 1980 og átti þá nokkrar myndir á þeirri sýningu, og meðal annars þessa," sagði Ásta og benti á vegg einn í eld- húsinu. Er þetta eltthvaö i þér, eöa læröiröu eitthvað á fyrri árum? (blaöamaöur yfir sig hrifinn af myndinni). „Ég var tvo vetur í Handíöa- og myndlistar- skólanum í Reykjavík árin ’39 og ’41 og var þá þýskur kennari og gyðingur, Kurt Zier að nafni, mjög góður, og er meðal annars einn af kennurum Eiríks Smith." H vernig er aö vera i svona hóp og undlr leiðsögn þekkts listmálara eins og Eiríkur er? „Þetta er mjög góður hópur og það má segja að við séum eins og stór fjöl- skylda og að vera undir leið- sögn Eiríks erum við alveg sérstaklega ánægð með og stolt að hafa svona góðan listamann að kenna okkur hér á Suðurnesjum,” sagði Ásta Árnadóttir. GÖLF- og VEGGDÚKAR við allra hæfi. j dropinn Hafnargötu 80 - Keflavik - Siml 2652 Meiri háttar Sanrio-sending Vinsælu stimplarnir eru komnir Jólakjólllnn i ár kr. 324 Kfnajakkar kr. 595 VERIÐ VELKOMIN SENDUM í PÓSTKRÖFU NEPAL Hafnargötu 26, Keflavík, sími 3943

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.