Víkurfréttir - 10.11.1983, Side 13
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 10. nóvember 1983 13
Skiptar skoðanir um
ágæti tengivegarins
Sl. mánudag var opnað-
ur tengivegur sá, sem sagt
var frá í síöasta blaði og er
ætlaður fyrir skólabílinn f
Njarðvík. Opnun þessi
hefur hlotiö misjafnar und-
irtektir Njarðvíkinga og
kom ágreiningur í raun fram
strax þegar málið var af-
greitt frá bæjarstjórn Njarð-
víkur.
Þá greiddi Áki Granz
atkvæði á móti, þar sem
hann taldi of mikla hættu á
að aðrir misnotuöu opnun-
ina. Einnig óskaði Albert K.
Sanders bæjarstjóri bókun-
ar um aö hann væri andvíg-
ur þessari ákvörðun fyrir
sitt leyti, þar sem skipulag
gerði ráð fyrir að Grundar-
vegurinn sé lokuð gata.
En hvaö sem því líður
hefur tengivegurinn verið
opnaður eins og fyrr segir,
þó í raun megi telja furðu-
legt hvernig hann er gerð-
ur, þvf hér er aöeins um aö
ræða mjóa ræmu þar sem
mjög verður að reyna á
hæfni bílstjórans, ef hann á
Njarðvík gat hann ekki los-
að þau úr bílnum fyrr en
búiö var aö fara á alla viö-
komustaöi í Vtri-Njarövík,
og þá var oft orðiö æði
þröngt, en nú fer hann strax
og losar þau úr bílnum.
Síöan sagði Steindór:
„Maður vonar bara að
íbúarnir í nágrenninu láti
vita um það sem betur má
fara þarna og eins þess, að
þessi tengivegur verði virtur
þannig að aðeins skólabíll-
inn aki þar um. Það eru
margir hræddir viö þetta, en
ég hef enga ástæöu til að
ætla að Njarðvíkingar séu
frekar ólöghlýönir í þessu
en öðru, hvenær sjást t.d.
Suðurnesjamenn aka fram
úr þar sem ekki má í Njarð-
vík og Keflavík, eða aka
móti einstefnumerki t.d. á
Suöurgötu?
Varðandi þessa tengi-
götu þá er það krókur fyrir
flesta bíla að aka þar um, til
dæmisfrá höfninni. Þettaer
hins vegar öryggisatriöi
fyrir börnin í staö þess aö
Skólabillinn fer fyrstu feróina
að geta ekiö þennan kráku-
stíg.
Við tókum því tali Steln-
dór Sigurðsson, sem fór
fram á þessa opnun, og tvo
aðila frá sitt hvoru sjónar-
horninu, þ.e. annars vegar
móður úr Innri-Njarðvík,
sem einnig er í skólanefnd,
og hins vegar íbúa við þann
hluta Grundarvegarsem nú
breyttist úr lokuðum botn-
langa yfir í götu með tengi-
veg fyrir skólabílinn.
Steindór sagði að ástæð-
an fyrir því að hann fórfram
á þetta hafi veriö breyting á
leið í gegnum Ytri-Njarövík,
því með hringakstri sem nú
er kominn á, getur hann
farið upp í efri hverfi s.s.
Móahverfið, Borgarveg og
Hlíðarveg, en það var ekki
framkvæmanlegt öðruvísi.
Því áður var endastöð við
skólann og þar var snúið
við, oft við mjög erfiðar að-
stæður og vart framkvæm-
anlegt.
Við fyrri biöstööina við
skólann þurftu börnin að
hanga úti við Brekkustíg-
inn íhvaðaveöri semvar, en
nú geta þau veriö inni í
glerskýli þartil bíllinn kem-
ur og fara síðan eftir gang-
stétt yfir í bílinn, en áður
urðu þau að hlaupa yfir
grasið og allt sem fyrir var.
Auk þess var það þannig
áður, aö þegar bíllinn kom
með krakkana úr Innri-
um hinn umdeilda tengiveg.
taka þau á Brekkustígnum,
því þar er mikill umferðar-
hraði og engar varúðar-
merkingar um börn í kring-
um skólann. Hins vegar er
ég mjög hissa á að þaö skuli
vera opið fyrir bíla upp með
Grundarvegi 2, því umferð
um þann vegarslóöa er
skellt á þennan tengiveg.
Því ætti aö loka þeim vegar-
slóða.“
Björg Valtýsdóttir i Innri-
Njarðvík er í skólanefnd auk
þess sem hún er móðir
þriggja barna sem nota
skólabílinn. Hún sagöi: „Ég
fékk oft að kynnast þessu
aðstöðuleysi barnanna
áður en Grundarvegurinn
var opnaður. Þá þurftu
krakkarnir að bíða úti og því
fór oft svo að þau komu
rennblaut alveg inn að
skinni. Að vísu er smá skot
sem þau gátu verið í, en það
var svo þröngt að þau urðu
að slást um að fá skjól þar,
sem endaði bæði með
meiðslum og leiðindum oft
á tíöum. Við höfum reynslu
af því hvernig Hafnabíllinn
hefur farið þá leiö sem
Steindór tekur nú upp, og
þaö hefur gefið mjög góöa
raun, því þágeta þau beöið í
glerhúsinu og sjá þegar bíll-
inn kemur."
Ólafur Guðmundsson
býr að Grundarvegi 1 og
hann er á öndverðum meiði
um þetta mál, en hann sagði
m.a.: ..Þetta er algjörlega
fáránlegt, þaö er óþarfi að
vera að breyta svona skipu-
lagi fyrir verktaka í byggð-
arlaginu. Þetta stóreykur
slysahættu hérviðskólann,
með það eru alveg hreinar
línur, því það er ekki bara
skólabíllinn sem ekur þarna
í gegn, þarna er stanslaus
straumur í gegn, bæði á
vörubílum og öðrum. Þetta
er alls ekki til fyrirmyndar
og hreint ótrúlegt að menn
skuli gera svona hluti til að
stytta sér leiö fyrir eina til
tvær mínútur.11 - epj.
SÓLBAÐSSTOFAN
Hafnargötu 32 - Keflavík - Sími 2390
SLENDERTONE RAFEINDA- OG
VÖÐVAÞJÁLFUNARTÆKI
Tækið styrkir og þjálfarvöðva, auk
þess sem það er notað til fegrunar
og megrunar, og er þettatæki það
fullkomnasta á markaðnum í dag.
Nokkur orö um SLENDERTONE
SLENDERTONE gefur okkur möguleika á mikl-
um árangri á fljótan og þægilegan hátt á nákvæm-
lega þeim stöðum líkamans, sem þú helst vilt.
SLENDERTONE tækiö sendir frá sér elektrónísk
boð, sem einna helst líkjast boöum þeim, sem
heilinn sendir til vöövanna til að fá þá á hreyfingu.
Boð þessi berast í gegnum mjúkar gúmmíplötur
til nákvæmlega þeirra staöa á líkamanum sem
óskað er og koma þannig af stað vöðvum og
vefjum á áhrifaríkari hátt en þú getur sjálf(ur).
Slappir vöðvar (t.d. á maga eða lærum) verða
stæltir og lifandi, og spenntir vöövar (t.d. í herö-
um og hnakka) mýkjast og ná þannig eðlilegri og
þægilegri starfsemi. Viö þetta eykst einnig blóð-
streymið, svo þú hreinsast og styrkist. Allt gerist
þetta á stysta hugsanlegum tíma á meöan þú ligg-
ur, slappar af og hefur það gott.
mm