Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.11.1983, Page 9

Víkurfréttir - 24.11.1983, Page 9
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 24. nóvember 1983 9 Björn Vifill Þorleifsson (t.v.) og Ragnar örn Pétursson, i aðalsal efri hæöar Karlakórshúss- ins, sem þeir munu opna 10. des. n.k. þá út saman eöa í sitt hvoru lagi, þar sem mjög auðvelt er að aðskilja þá. Verður hægt að leigja salina út þá daga sem kórinn er ekki með til sinna nota. Eldhúsið verður tekið í notkun í des- ember og við munum selja út mat í veislur þann mán- uð, en í janúar verður eld- húsið svo komið í fullan gang. í húsinu verður ekki um oþna matsölu að ræða eins og á Glóðinni, heldur einungis til mannfagnaða og slíks." Hvernig veröur rekstri á neöri hæöinni háttaö? ,,Hún mun að mestu leyti verða opin um helgar. Höf- um við hug á því að bjóða upp á eitthvað nýtt þegar hann verður opnaður, s.s. rokk-kvöld, kabarett-kvöld og ýmislegt fleira. Lifandi músík verðurallsráðandi en auk þess verður hægt að hafa eitthvað annað á efri hæðinni á sama tíma, hvort heldur gömlu dansana eða diskótek. Hægt verður aö hafa opið í gegn eða lokað. Staður og stund mun þó fyrst og fremst ráða i þessu, þ.e. hvernig skipulagi verður háttað, en margir möguleikar eru fyrir hendi í húsinu. Neðri hæðin mun taka 350 manns í sæti, en með renneríi verður þetta 800-1000 manna salur.“ Hvaö mun svo staöurlnn heita? „Hlutafélagið þar sem við erum aöalhluthafar, heitir Veisla hf., en nafnið á efri hæðinni verður „Veitinga- salir KK“. Nafn á neðri hæð- ina hefur ekki verið ákveðið ennþá, sem mun verða hið eiginlega nafn hússins, en allar abendingar og hug- myndir frá fólki eru vel þegnar í því sambandi." Aö lokum, geriö þiö ykkur vonir um aö Suöurnesja- menn muni minnka feröir sínar tll borgarinnar meö tll- komu staöarlns? „Fólk mun nú geta hætt að hugsa um Reykjavík, þar sem tveir vínveitingastaðir munu nú verða fyrir í Kefla- vík. Því gerum við okkur vonir um að Reykjavíkurráp muni minnka og að Suður- nesjamenn muni fara að sækja sína eigin staði,“ sögðu þeir Björn Vifill og Ragnar örn að lokum. pket. Jólabasar í Garðinum Hinn árlegi jólabasar Kvenfólagsins Gefn i Garði, verður haldinn i Dagheimilinu þar n.k. laugardag kl. 14. Margt góðra muna verða þarna á kjaraverði, s.s. barnaföt, dúkku- föt og ýmsar jólavörur, og að sjálfsögðu kökur, en ágóðinn rennur til liknarmála. Ættu velunnarar félagsins og aðrir Suðurnesjamenn að líta við og sjá hvort ekki megi fá þarna eitthvað, en konurnar ifélaginu hafa sjálfar unnið alla mun- ina og bakað kökurnar, og hefur vinna vió munina staðið frá siðustu jólum. - epj. Húsgagna- og gólfteppasýning sunnudaginn 27. nóvember kl 14-18 Vatnsnesvegi 12 - Keflavík - Simi 3377 Við sýnum m.a. nýju linuna i Happy-húsgögn- um, eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar, parket og húsgögn í allar vistarverur. Sjón er sögu ríkari. - Verið velkomin.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.