Víkurfréttir - 08.12.1983, Blaðsíða 5
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 8. desember 1983 5
2. deild - Handbolti
Þorbergur átti ekkert í Ólaf
Skoraði aðeins 2 mörk er Þór vann Reyni
Þorbergur Aðalsteinsson
átti ekki sjö dagana sæla i
leik Þórs og Reynis í 2.
deildinni í handbolta sl.
föstudag. Hinn mikli marka-
skorari var tekinn úr um-
ferð og skoraði aðeins 2
mörk, því þegar hann losn-
aði úr gæslunni þá mætti
hann ofjarli sínum í marki
Reynis, sem var Ólafur Ró-
bertsson, sem varði meira
að segja víti frá stórskytt-
unni ásamt fjölda skota. En
það dugði skammt. Reynis-
menn töpuðu leiknum með
23 mörkum gegn 15, en
staðan í hálfleik var 13:9
fyrir Þór.
Afmælishátíð
hjá Karlakórnum
( tilefni af 30 ára afmæli
Karlakórs Keflavíkur, sem
var 1. des. sl., heldur kórinn
afmæliskonsert n.k. laugar-
dag kl. 16 í Félagsbíói.
Tónleikarnir verða mjög
fjölbreyttir. Auk kórsins
koma fram 5 einsöngvarar,
sem eru úr röðum kórsins,
þeir Jón Kristinsson, Sævar
Helgason, Haukur Þórðar-
son, Sverrir Guðmundsson
og Steinn Erlingsson. Kefla-
víkurkvartettinn syngur
nokkur lög. Ingvar Hall-
grímsson syngur nú í kvart-
ettinum í stað Ólafs heitins
Guðmundssonar, sem söng
í honum áður fyrr.
Hinn ungi og efnilegi
Keflvíkingur, Steinar Guö-
mundsson, stjórnar nú
kórnum ífyrstasinn. Kórfé-
lagar eru 54 og hafa aldrei
verið jafn margir.
Afmælishátíð verður svo i
Stapa kl. 20 um kvöldið,
húsið verður opnað kl. 19.
Nokkrir aðgöngumiðar eru
óseldir, og verða eldri fé-
lagar kórsins og styrktarfé-
lagar látnir ganga fyrir á
meðan miðar endast. -J.L.
Nú vantar bara herslumuninn hjá Hauk . ..
Leikurinn var mjög jafn til
að byrja með. Reynir komst
2:3 og þegar 5 mín. voru til
hálfleiks var staðan 9:8 fyrir
Þór. Þá kom slæmur kafli
hjá Reyni og Þór náði góöri
forystu í leikhléi. Fyrstu 15
mín. i seinni hálfleik skor-
Gangbrautar-
vörður ráðinn
Fyrir stuttu auglýsti bæj-
arstjórinn í Keflavík laust
starf gangbrautarvaróar,
sem staðsettur verður á
Hafnargötunni við Skóla-
veg. Tvær umsóknir bárust,
og var samþykkt að ráða
Kristínu Ingimarsdóttur,
enda er hún atvinnulaus,
segir í bókun bæjarráðs frá
17. nóv. sl. - epj.
uðu heimamenn aðeins 2
mörk á fyrstu 15 mín. á
meðan Þórsarar hlóðu upp
mörkum og komust í 20:11.
Lokatölur urðu síðan 23:15.
Þórsarar léku þennan leik
ekki stórkostlega, enda
fengu þeir ekki mótspyrnu
nema fyrstu 25 minútur
leiksins. Gylfi Birgisson var
langbesti maður Þórs með
11 mörk, ásamt markverð-
inum Sigmari Þresti. Ólafur
Róbertsson, markvörður
Reynis, átti mjög góðan leik
og einnig átti Arinbjörn
mjög góða byrjun og átti 3
fyrstu mörk Reynis, en dal-
aði þegar á leikinn leið.
Mörk Reynis: Daniel 5,
Arinbjörn 3, Jón Kr. 3, Páll 2
Kristinn og Freyr 1 hvor.
pket.
Daniel skorar hér i leik gegn HK, hann varmeö 5 mörk gegn Þór og
var langt frá sinu besta.
Siml1540
LEIKFÖNG - GJAFAVÖRUR - ÚTVÖRP
BÚSÁHÖLD - RAFMAGNSTÆKI
FATNAÐUR - MATVÖRUR
OG OKKAR GLÆSILEGA KJÖTBORÐ.
Allt á einu gólfi.
VÖRUKYNNING: Marabou konfekt
á morgun frá kl. 15. - Kynningarafsláttur.
Sími 1540 SAMKAUP Sími 1540
Föstudagur 9. des.
DANSLEIKUR
Matur framreiddur
frá kl. 20.
MÆTUM ÖLL
í STUÐI.
PANTANIR
í síma 1777
fimmtudag og föstudag.
Laugardagur 10. des.:
DANSLEIKUR
Matur framreiddur
frá kl. 20.
MÆTUM ÖLL
í STUÐl.
SNYRTILEGUR KLÆÐNAÐUR - ALDURSTAKMARK 20 AR
****************************Neðri salur ****************************
NÝR MATSEÐILL
Komið inn úr kuldanum og bragðið á jólaglögginu hjá okkur.
Við erum komin í jólaskap.