Víkurfréttir - 08.12.1983, Síða 8
8 Fimmtudagur 8. desember 1983
VÍKUR-fréttir
Njarðvíkingar gáfu
toppsætið eftir
Ekki voru Keflvíkingar
einir um að tapa i úrvals-
deildinni um helgina, því á
sunnudaginn töpuðu Njarð-
vikingar fyrir KR-ingum í
Hagaskólanum með 73
stigum gegn 76, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið
33:31, KR-ingum í vil. Tróna
því KR-ingar nú einir á
toppi deildarinnar með 12
stig, en Njarðvíkingar og
Valsmenn koma naestir með
10 stig.
Leikur þessi var jafn og
tvísýnn allan tímann og
byrjuðu Njarðvíkingar
heldur betur, en KR-ingar
slepptu þeim þó aldrei langt
frá sér og voru oftast nokk-
ur stig sem skildu liöin að.
Tölurnar 23:23, 33:31 og
VcTVIatStofaii
k'ÍSlllk'ÍHH
Brehhustig 37 • simi 3688
Njardvih
Ávallt í
leiðinni
Heitt súkkulaði
og vöfflur með rjóma.
- 0O0 -
Snittur og brauðtertur
með litlum fyrirvara.
- 0O0 -
Sjáum einnig um veislur.
- 0O0 -
Opið frá kl. 9 - 20.
53:53, lýsa því vel gangi
leiksins, en undir lokin tókst
KR-ingum að komast
nokkrum stigum yfir og
héldu þeir því forskoti til
leiksloka.
Stigahæstur Njarðvík-
inga var Valur Ingimundar
með 26 stig, Gunnar gerði
22 og Ingimar 15, en aörir
gerðu minna.
Hjá KR-ingum var Jón
Sig. stigahaestur og gerði
22 stig. - val.
Slóðaskapur
Myndin af slorbílnum á
Sandgerðisrúntinum, sem
birt var í Vikur-fréttum um
daginn, gefur tilefni til um-
ræðu um þann slóðaskap
og tillitsleysi sem oft á sér
stað varðandi hleðslu og
búnað á þessum flutnings-
vögnum. Þeir eru með alls
konar farma sem leka eða
fjúka af þeim þegar þeir
þeysa eftir vegum jafnt inn-
anbæjar sem utan.
Hafa mætti með í þessari
mynd eigendur aftaníkerra.
sem eru haldnir þeirri hvim-
leiðu áráttu, aö koma af sér
rusli alls staðar utan vega.
Ég hef verið að velta því fyrir
mér varðandi verksmiöjur
sem reistar eru á Reykja-
nesi, minnugur þess sem á
undan er gengið i mjöl-
vinnslu hér, hver séu sam-
skipti náttúruverndar og
aðstandenda fyrirtækj
anna. Ég hef ekkert á móti
því að komið sé upp sorp-
eyðingarstöð eða fyrirtækj-
um, og þvi til staðfestingar
og tillitsleysi
vil ég vekja máls á því, hvort
mjölverksmiðjan gæti nýtt
allt það þang, sem hleðst
upp við ákveðin veðurskil-
yrði útí á Garðskaga og
jafnvel víðar. Það mætti
fleyta því í netatrossum
suður i Hafnir eða Junkara-
gerði, þar sem koma mætti
fyrir móttökubúnaði.
Ég er á móti þvi að fyrir-
tækjum þurfi að fylgjasóða-
skapur, og því til sönnunar
er Brynjólfur hf. í Innri-
Njarðvík, sem blaðið hefur
birt myndir af. Einnig þætti
mér gaman að vita, hvort
leyft verði að aka fiskúr-
gangi til mjölverksmiðjunn-
ar á Reykjanesi á þann hátt
sem myndin af vörubílnum
sýnir?
Mun verða leyft að hafa
opnar móttökuþrær, til að
hæna að vargfugl, sem er
sjaldséður þarna, og gæti
raskað stórum fuglalífi á
staðnum? Þarna er þó
nokkurt varp, sem veiði-
bjallan yrði fljót að afgreiða.
S.B.
JÓLAGJÖFIN FÆST HJÁ
Gallabuxur
Verð kr. 780. -
Allar stærðir
- Póstsendum -
VINNUFATABÚÐIN
Hafnargötu 61 - Simi 1075
OKKUR!
MITTISÚLPUR með hettu á
börn og fullorðna.
Litur: grænn og blár
Verð 1.800. -
MITTISJAKKAR
Stærðir: Small - Medium - Large
Verð: 1.485. -
Leikfanga-
bingó hjá
UMFN
Knattspyrnudeild UMFN
verður með leikfangabingó
n.k. sunnudag, 11. des., í
Sjálfstæðishúsinu í Njarð-
vik. Hefst það kl. 15.
öll leikföng eru frá heild-
verslun Ólafs Thordersen.
Verða spjöldin þannig út-
búin, að börn munu eiga
auðvelt með að vera með
ásamt foreldrum og öllum
þeim sem áhuga hafa.
pket.
l-X-2
„Sá fyrsti
í 10 ár
,,Vá, maður, þaðersvo
langt siðan ég gerði
þetta síðast, að þú verð-
ur hreinlegaað sýna mér
það,“ sagði Guðmund-
ur Hannah, úrsmiður.
,,Maður er alveg dottinn
út úr þessu, að visu tipp-
aði ég all mikiö fyrir 10
árum síðan, en þá voru
líka liö í 1. deildinni sem
eru jafnvel komin niður í
þá fjórðu núna. Ég er
mikill aðdáandi Man-
chester United og ég
reyni að fylgjast með
þeim íensku knattspyrn-
unni þegarhúnerálaug-
ardögum í sjónvarpinu,"
sagði Guömundur.
Heildarspá hans er
svona:
Coventry - Liverpool .. 2
Everton - Aston Villa .. 1
Ipswich - Man. United . 2
Leicester - Wolves .... X
Notts County - Sunderl. 1
Stoke - Luton ..... 2
Tottenh. - Southampton 1
Watford - Nott'm Forest 2
W.B.A. - Q.P.R..... 1
West Ham - Arsenal ... 1
Barnsley - Chelsea .... X
Man. City - Sheff. Wed. 1
Stórspámaðurinn
með 3 rétta
Kristinn Helgason, ,,60
seöla maðurinn", átti
greinilega ekki von á þvi
að öll toppliöin, að Liver-
pool frátöldu, myndu
bregðast honum Sú varð
þó raunin og var hann
því aðeins með 3 rétta.
Ástráöur heidur því enn
forystu með 7 rétta.
pket.
l-X-2