Víkurfréttir - 08.12.1983, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 8. desember 1983
VÍKUR-fréttir
Gestir á aímæti bókasatnsins, f.v. i fremstu röó: Áki Granz, Karvel Ögmundsson, Sigurbjörn Ketils-
son og kona hans, og loks Guólaug Karvelsdóttir.
40 ára afmæli Bókasafns Njarðvíkur:
Bókakostur um 9 þúsund bindi
numynD
Fyrsta atriðið var um
stofnun bókasafnsins, sem
var erindi flutt af Sigurbirni
Ketilssyni, en hann er fyrr-
verandi skólastjóri, og auk
þess var hann bókavörður í
26 ár. Því næst flutti Re-
bekka Guðfinnsdóttir bóka-
vörður, erindi um bókasafn-
ið og kom m.a. fram að á sl.
ári voru lánaðar úr safninu
17.409 bækur, en það sam-
svarar 8-9 bókum á hvern
íbúa bæjarins. Bókakostur
almenningssafnsins er hátt
á níunda þúsund bindi og
sagði Rebekka að húsakost
urværi orðinn mjög þröng-
ur þar sem afnot skólans af
safninu hefði aukist til
muna. Guðjón Sigurbjörns-
son flutti næst fróðleik um
Njarðvík, en hann var sam-
inn af Guðmundi Finnboga-
syni, sem ekki sásérfærtað
mæta á afmælishátíðina.
Magnús Einarsson, ungtog
upprennandi Ijóðaskáld,
flutti frumort Ijóð, og áður
en hlé var gert á kynning-
unni las Karvel Ögmunds-
son smá þætti úr óútkom-
inni bók sinni. ( hléi var
boðið upp á kaffi og smurt
brauð.
Eftir kaffihlé flutti Aðal-
steinn Ingólfsson erindi
sem hann kallaði „Játning-
ar um bóklestur". Jón Böðv-
arsson kom því næst og las
úr Ijóðabók sinni ,,Hnoðr-
ar“. Skólameistarinn er
greinilega ekki allur þar
sem hann er séður. Albert
K. Sanders, bæjarstjóri, las
síðan úr bók Karvels Ög-
mundssonar, „Sjómanns-
ævi", og síðasta atriðið á
dagskránni var frumsamin
tónlist eftir Magnús Þór Sig-
mundsson. Á kynningunni
voru auk þess sýnd mál-
verk og var safninu gefið
eitt verk, en það var Áki
Granz sem það gerði.
Þótti kynning þessi tak-
ast mjög vel, en hana sóttu
meðal annars forsvars-
menn bókasafna á Suður-
nesjum auk fleira fólks.
pket.
Bókasafnsnefnd Njarð-
víkurbæjar hélt upp á 40 ára
afmæli bókasafnsins sl.
laugardag, með bók-
menntakynningu, auk
ýmiss annars fróðlegs efnis
í dagskrá. Var hún öll samin
og flutt af Njarðvíkingum.
Dagskráin hófst á því að
Guðlaug Karvelsdóttir
bauð gesti velkomna og var
jafnframt kynnir.
Jón Böövarsson las úr eigin Ijóðabók.
Rebekka Guöfinnsdóttir, núverandi bókavöróur safnsins.
GAMANLEIKRITIÐ
Spanskflugan
í Samkomuhúsinu, Garöi
Fimmtudaginn 8. des. kl. 20.30.
Sunnudaginn 11. des. kl. 20.30.
Forsala aögöngumiöa i HLJÓMVAL.
og viö innganginn báöa sýningardagana
frá kl. 18.
ATH: Ekki sýnt annars staöar
á Suðurnesjum.
L. L.
Áttu góöa grein í jólablaðiö?
Hafðu þá samband sem fyrst í síma 1717.
Nú er sól í Keflavík
Höfum opnað eina best útbúnu sólbaðs-
stofu á Suðurnesjum, að Tjarnargötu 41,
Keflavík. höfum á boðstólum m.a. Internat-
ional sólarbekki, sem eru þeir fullkomn-
ustu sem völ er á hér á landi.
Dömur og herrar velkomin.
Góð baðaðstaða.
Snyrtiaðstaða jafnt fyrir dömur sem herra.
SLENDERTONE vöðvaþjálfunartækið, til
grenningar, vöðvastyrkingar og við vöðva-
bólgu. Tæki þessi hafa reynst vel
við staðbundinni fitu.
Notaleg setustofa og alltaf heitt á könnunni
Á meðan mamma og pabbi sóla sig, baða
og snyrta, dunda börnin sér
I vel búnu barnaherbergi.
Viljir þú verða brún(n) um jólin eða grennri
og betur á þig komin(n) til þess að gæða
þér á jólasteikinni , líttu þá við hjá
SÓLINNI, sólbaösstofu,
Tjarnargötu 41, niöri, sími 3327.
Opið sem hér segir:
Mánudaga til föstudaga frá kl. 7-23
Laugardaga frá kl. 7-20
Sunnudaga frá kl. 13-20
3500
eintök vikulega.