Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.12.1983, Síða 19

Víkurfréttir - 08.12.1983, Síða 19
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 8. desember 1983 19 Svipleiftur Suðurnesja Fyrir nokkru birti ég hér í I leiftur Suðurnesja. Áður en blaðinu hlutverkaskrá og lengra er haldið er rétt að söngtexta úr revíunni Svip- I ræða örlítið um þann texta, „BAKARINN ALLRA BRAUÐA" Bíóbragur Lag: Bom fadi rifati Bakarinn okkar bakaði bíó, bíó þetta stendur hér. Nú bakar hann aftur - Tríó-Bíó, úr Kalla, Frisa og sjálfum sér. Hundaþúfa heita skal, hollt er að koma í þennan sal. - Bom fa di rí fa di ral la la - Frissi þetta hugsar með hita: Hvað skal gera við þetta mál? Þarna fæ ég feitan bita, félaga og eina skál. Þá verður lífið leikur einn, að leika sér er ei vandi neinn. - Bom .... Kalli var heldur súr á svipinn, svona til að byrja með. Hann var allur ofsa gripinn, og ei gat fylgi þessu léð. Hann vildi heldur svelta í hel, en éta illa bakað mél. - Bom .... Frissi og Árni syngja saman, sælir um nýja bíóið, en það er sko ekki gaman, ef einn vantar í tríóið. En þeim er það sjálfum samt í hag, ef syngja vilja þetta lag: Bom .... Bakarinn tekur snúðabakkann og labbar syngj- andi út hinum megin á sviðinu. Næst koma Ballvísur. Nú ball skulum halda, því ball er gott, á ballinu skulum við hafa það flott, því við höfum dömur að dansa við, já, dásamlegt verður þar kvenfólkið. Þar koma sportmenn og spekúlantar, sprúttsalar, formenn og bakarar, háttsettir drengir og delerantar, dragfínir kaupmenn og rakarar. Með hárfínar konur þeir koma hér. sem kunna á böllum að haga sér, í dragsíðum kjólum þær dansa inn, sem duftinu sópa um gólflötinn. Við skulum svo ekki segja meira, af sælu hver persóna verður rík. Það má oft broslega brandara heyra, af böllunum hérna í Keflavík. Fleiri söngtextar birtast síðar. Skúli Magnússon Fóstrur Staða forstöðumanns við dagheimilið og leikskólann við Tjarnargötu í Keflavík er laus til umsóknar. Áskilið er að umsækjendur hafi fóstru- menntun. Staðan veitist frá 1. jan. 1984. Upplýsingar um stöðuna eru veittar hjá fé- lagsmálafulltrúa, Ftafnargötu 32, sími 92- 1555, frá kl. 9-12 alla virka daga. Skriflegar umsóknir þurfa að berast félagsmálafull- trúa fyrir 12. des. n.k. Félagsmálaráð Keflavíkurbæjar sem birtist um daginn. Liðin eru 43 ár frá upp- færslu revíunnar í Ungó. Hætt er við að ýmsir þekki þvi ekki til þessarar sýning- ar. Revýan var skopstæling á lífinu i Keflavík á þeim árum og söngtextarnir sömuleiðis. Undir skopinu leyndist stundum nokkur ádeila, en fáir fengust um það, jafnvel þó ýmsir væru nefndir með réttum nöfn- um. Samning revíanna Svipleiftur Suðurnesja (1940) og Draumalandið (1941) var engin tilviljun. Á þessum árum var blóma- tími revíanna í reykjavík, og margir frá Suðurnesjum sáu þær revíur sem sýndar voru þar innfrá. Söngtextinn sem birtist síðast fjallar um verkfall hjá útgerðarmönnum í Kefla- vík. Ekki er ég viss um hvaða verkfall það var. Ef til vill deilur þær sem urðu hér á kreppuárunum þegar Verkalýðsfélagið var stofn- að. Aðalpersónan í kvæð- inu er Ólafur Thors, alþing- ismaður. Á þeim árum hjálpaði hann ýmsum sem hér stóðu í togaraútgerð, en gekk illa sökum kreppunn- ar. í textanum eru nefndir þrír útgerðarmenn: „Litli- Björn, Einar og Salli". Litla Björn þekki ég ekki, en Einar er trúlega Einar Guð- bergur og Salli Axel Pálsson. Forvitnilegt væri ef ein- hver gamall áhorfandi vildi senda blaðinu línur um þessar sýningar svo og skemmtanalíf í Keflavík á þessum árum styrjaldar og breskrar hersetu. Einnig væri fróðlegt ef hægt væri að birta Ijósmyndir frá upp- færslu revíanna beggja eða annarra leikrita frá þessum árum. Fátt af slíku er til á prenti. Saga skemmtanalífs er ekki siðurathyglisverðen til dæmis þróun verklegra framkvæmda, verslunar og útgerðar. Allt er þetta hluti af mannlífinu. Allir punktar yrðu þvi vel þegnir, jafnvel þó mönnumfinnistþeirlétt- vægir í augnablikinu. Heim- ildir um skemmtanalíf í Keflavík á þessum árum eru ekki ýkja margar, þó enn sé á lífi fólk sem man þau ár. Þegar heildarsaga verður skráð koma slík atriði að góðum notum. Næsti söngtexti fjallar um Eyjólf Ásberg, sem rak hér brauðgerð og bió - Nýja Bió. Með honum í bíórekstr- inum voru þeir Karl Guð- jónsson og Friðrik Þor- steinsson. Karl er einn þeirra á lífi, og starfaði lengi á Keflavíkur-radíói. Textinn birtist orðréttur, en ég hef orðið að laga greinarmerki og bæta við kommum og fleiru sliku, sem þeir Ung- mennafélagar hugsuðu ekki alltaf um. Ég vona að greinarmerkin séu rétt. Jólablaðið kemur út 15. des. pARÁÐU Nú hafa |Suðurnesjabúar sína eigln Arnarflugsskrifstofu Nú geta allir ferðalangar á Suðurnesjum sparað sér sporin og fengið ferða- ^5» upplýsingar og flugþjónustu á eigin skrifstofu á Keflavík- urflugvelli. Þar bókum við flugfarseðla til allra heims- w horna með ótal flugfél- ögum, seljum pakkaferðir Arnarflugs á hagstæðu heildarverði, og önnumst alla aðra almenna fyrir- greiðslu. Við erum Corda- tengd við umheiminn og tryggjum þannig fyrsta ^ flokks þjónustu á auga- bragði. 3^' Amsterdam Verö frá kr. 10.908. Kanaríeyjar Verö frá kr. 22.572. Flugfélag með ferskan blæ ARNARFLUG Flugstöðinni - herbergi 21, sími 92-2700 Prjónakonur athugið Lopavörumóttaka okkar er að Iðavöllum 14b. Kaupum hnepptar peysur í öllum stærðum. Móttakan verður opin sem hér segir: Frá kl. 9 - 12, miðvikudaginn 14. desember n.k. æiSLENZKUR MARKADUR HF. DSBfiíiSÁEO' Félagsheimilið Stapi - Forstöðumaður Staða forstöðumanns við Félagsheimilið Stapa, Njarðvík, er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 11. desember. Nán- ari upplýsingar veitir undirritaður. Bæjarstjóri Njarðvíkur

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.