Víkurfréttir - 15.12.1983, Qupperneq 21
VÍKUR-fréttir
JOLABLAÐ
Iðnaðarmannatal Suðurnesja
Iðnaðarmannatal Suður- I
nesja er ekki einasta |
l-X-2
„Þá hlógu
Englendingar“
„Ég sá mitt lið, Liver-
pool, gera jafntefli við
Spurs um daginn, 2:2, en
ég held líka upp á Ips-
wich," sagði Kristinn
Danivalsson, rútubíl-
stjóri og umboðsmaður
með meiru. Séð marga
leiki? ,,Já, þeireruorðnir
nokkrir. Sá fyrsti var
leikur Liverpool gegn
Ferencvaros í Englandi
daginn áður en (BK tap-
aði fyrir Everton 6:2. Eg
gleymi því aldrei þegar
við stigum út úr DC-6
flugvélinni, að bróðir
þinn, Vilhjáimur Ketils-
son, varð bálvondur
vegna þess aö þeir sem
tóku á móti vélinni hlógu
svo dátt. Hann hélt að
fólkið væri að hlæja að
eskimóunum frá (slandi
og sagði hann þá við mig
að það yrði ekki hlegið á
vellinum, - ,,við komum
þeim á óvart", sagði Villi
við mig, sem kom svo á
daginn. Það kom siðar í
Ijós, aö Englendingar
voru einungis aö hlæja
að DC-6 vélinni sem viö
komum i, sem þá var
orðin antik-gripur þar í
landi," sagði Kristinn um
þessa eftirminnilegu
ferð.
Heildarsþá Kidda Dan
er svona:
Arsenai - Watford .... 2
Aston Villa - Ipswich .. 1
Norwich - Coventry ... X
Nott. For. - West Ham . 1
Q.P.R. - Everton ..... 2
Wolves - Stoke ....... X
Brighton - Newcastle .. 1
Cambridge - Man. City 1
Carlisle - Barnsley .... X
Derby - Shrewsbury ... 1
Huddersf. - Middlesbro 2
Swansea - Portsmouth 1
Guðmundur með
5 rétta
Siðasti spámaöur,
Guðmundur Hannah,
var með 5 rétta. Kannski
nær Kiddi að slá Ástráð
út, sjáum til. - pket.
l-X-2
u p p I ýs i n g a n á m a um
iðnaðarmenn á þessu
landssvæði, heldur er það
veigamikið framlag til
almennrar persónusögu og
mannfræði á Suðurnesjum.
Iðnaðarmannatalið mun í
framtíðinni verða hagnýtt
uppsláttarrit við almennar
ættfræði rannsóknir því
innan hverrar ættar og fjöl-
skyldu er iðnaðarmaður. I
ritinu er að finna æviágrip
um iðnaðarmenn á Suður-
nesjum í rúmar tvær aldir. í
hinum 950 æviágripum sem
i ritinu eru, er um 12.000
manna getið. Það er sam-
dóma álit að Iðnaðarmanna
tal Suðurnesja sé ein hag-
nýtasta, stærsta og
glæsilegasta bók sem út
hefur verið gefin út hér á
landi á árinu 1983. Með til-
liti til þess að Iðnaðar-
mannatalið er að sama
skapi dýr bók, því tilkostn-
aður var all verulegur.
Iðnfélögin á Suðurnesjum
vilja því stuðla að allir sem
æviágrip eiga í ritinu svo og
aðstandendur fráfallinna
iðnaðarmanna eigi þess
kost að eignast hið
gagnmerka rit. Því hafa Iðn-
félögin ákveðið að þeirsem
ekki eiga þess kost að stað-
greiða ritið, að selja þeim
aðilum ritið með mánaðar-
legum afborgunarskilmál-
um. Iðnaðarmannatalið
verður því á meðan birgðir
endast, framvegis afgreitt á
skrifstofu Iðnsveinafélags-
ins að Tjarnargötu 7 i
Keflavík helgina 17-18 des.
og síðan á skrifstofutíma.
Síðbúin kveðja
Ný hljómplata
fra Geimsteini
Hljómplötuútgáfan Geim-
steinn gefur út nýja hljóm-
plötu um þessar mundir
með G. Rúnari Júlíussyni,
og ber hún nafnið Síðbúin
kveðja.
Hljómplata þessi hefur
nokkra sérstöðu vegna
þess að hún er gerð í minn-
ingu erlends tón- og texta-
skálds, TIM HARDIN að
nafni, og eru öll lög og Ijóð á
Ævintýraplata
frá Geimsteini
Hljómplötuútgáfan Geim-
steinn gefur út nýja hljóm-
plötu i hinum svokallaða
ævintýraplötu-flokki, þar
sem hinn landskunni Gylfi
Ægisson semurlög og texta
við sígild ævintýri.
( þetta sinn eru það Stíg-
vélaði kötturinn og Kiðling-
arnir sjö, sem nú koma út
(áður hafa komið út Rauð-
hetta, Hans og Gréta, Eld-
færin, Tumi þumall og Jói
og baunagrasið).
Mikið af landsþekktum
skemmtikröftum og lista-
mönnum þjóðarinnar koma
við sögu og gerð þessarar
hljómplötu, m.a. Hermann
Gunnarsson, Laddi, Þórir
Baldursson, Páll Hjálmtýs-
son, Gylfi Ægisson o.fl. o.fl.
Hljóöritun fór fram í upp-
tökuheimili Geimsteins í
ágúst, sept. og nóv. 1983,
og sá Þórir Baldursson um
upptökur, hljóðblöndun og
allar útsetningar. Ernst
Backman hannaði umslag-
ið.
plötunni samin af honum
og öll sungin áfrummálinu.
Tim Hardin fæddist í
Ameríku 23. des, 1940 og
lést 29. des. 1980 í íbúð
sinni í Hollywood, aðeins 40
ára gamall, vegna ofneyslu
fíkniefna. Hann er og var
þekktur fyrir stórgóð lög og
Ijóð um ástina og fleira. En
markmið með útgáfu
þessari er að varðveita og
viðhalda verkum þessum,
sem mörg hver eiga eftir að
verða sígild, eins og öll góð
verk.
Þetta er önnur sólóplata
G. Rúnars Júlíussonar, sú
fyrri kom út 1976 og hét
Hvað dreymdi sveininn? G.
Rúnar sér að mestu leyti um
allan hljóðfæraleik og söng
á skífu þessari fyrir utan að-
stoð nokkurra valinkunnra
manna eins og Þóris Bald-
urssonar, Vignis Bergmann
og LEE, guitar, Griffins.
Upptökur fóru fram í
upptökuheimili Geimsteins
1982-1983. Um hljóðblönd-
un sá Þórir Baldursson.
Framleiðandi er Geim-
steinn.
G. Rúnar hefurað undan-
förnu komið fram á Broad-
way í Bítlaæðinu svokalH
aða, sem gerir mikla lukku
sem stendur, en öll lögin á
þessari plötu eru einmitt frá
sjötta áratungum.
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum mjög gott samstarl
vió aö nýta netariöilinn.
ísbrek hf., sími 2656
Úrval
jóla-
gjafa
LJÓSKASTARAR
yfir 30 gerðir
LOFT1.JÓS
mikið úrval
BORÐLAMPAR
Lirval smærri
HEIMILISTÆKJA
INNISERÍUR
ÚTISERÍUR
(útbúuiri eftir máli)
Ryksugur
verð frá kr. 5.975
Kaffikönnur
Verð frá kr. 1.196
______191BL_
Vöfflu-krullujárn
verð frá kr. 1.195
LJÓSAKROSSAR
á leiði
Sf(fL
-handverkfæri
Brauðristar
Verð frá kr. 1.195
VERSLID VII) FAGMANNINN
ÞAH ER ÞJÓNUSTAN.
R.Ó. RAFBÚÐ
Hafnargötu 44 - Keflavík - Sími 3337
Ef ykkur vantar
ilmandi jólagjöf
FYRIR DÖMUR EÐA HERRA,
þá fæst hún hjá okkur.
GLEÐILEG JÓL.
Snyrtistofan DANA
Túngötu 12 - Keflavik