Víkurfréttir - 15.12.1983, Blaðsíða 26
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Leita verður umsagnar
bygginganefndar
- ef settur er upp einver rekstur í íbúðahverfi
Að undanförnu hefur eða öðrum húshlutum inni i
hver sólbaðsstofan á faetur miðju íbúðahverfum. Þar
annarri verið sett ástofn, og sem blaðinu er kunnugt um
annar smárekstur. Mest af að margir þessir staðir séu
þessu á sér stað í bílskúrum settir á stofn án leyfis við-
Útgerðarmenn,
Skipstjórar
athugið
Hafið samband við apótekið þegar yfirfara
þarf skipsapótekið.
Til að komast hjá óþarfa flutningum, verða
lyfjakisturnar framvegis yfirfarnar um borð.
APÓTEK KEFLAVÍKUR
Sími 1280
komandi yfirvalda, höfðum
bið samband við Steinar
Geirdal, byggingafulltrúa.
„Heimaiðnaður er í raun
ekki mikill hér,“ sagði Stein-
ar, ,,ef frá eru taldar hár-
greiðslustofur í einu her-
bergi víða um baeinn. Með
þær hefur ekkert verið gert,
því þær valda litlu ónæði.
Annað er þegar menn opna
sólbaðsstofur út um allan
bæ og valda meiri umferð i
íbúöahverfum, þá er málið
annað. Um sl. áramót bætt-
ist það inn í byggingalög,
að ef breytingar verði gerð-
ar á byggðum hverfum, þá
þarf að leita umsagnar ná-
grannanna. Enda þegar
búið er að skipuleggja
íbúðahverfi t.d. með lokuð-
um botnlöngum og þarmeð
ekki reiknað með neinni
gegnum-umferð, þá koma
kannski tveir menn og opna
sólbaðsstofu, barnapössun
eða jafnvel blómasölu, og
rugla með þessu skipulag-
inu. Þá kemur upp sú spurn-
ing, hvers þeireigi aögjalda
sem búið hafa í þessum
botnlanga með börn sín og
hafa farið eftir öllum sett-
Rammar & Gler
er ekki í alfaraleið, en þar fæst
ótrúlegt úrval
jóla- og tækifærisgjafa.
Postulín-
Kristal-
og silfur-
MATAR- og
KAFFISTELL
Kristal-glös í miklu úrvali.
Ódýrir rammar. - Innrömmun.
Rammar & Gler
Sólvallagötu 11 - Keflavík - Sími 1342
um skilyrðum, eru þeir
orðnir réttlausir allt í einu?
Nei, öðru nær.
Svo er annað, hvað segja
heilbrigðisyf irvöld, lærðir
nuddarar o.fl. við því að ein-
hver maöur opnar t.d. sól-
baðsstofu og býður upp á
nuddtæki og tekur fjölda
viðskiptavina inn, er þetta
t.d. forsvaranlegt gagnvart
heilbrigðisreglum og
öðru?" sagði Steinar Geir-
dal að lokum. En þessari
spurningu látum við ósvar-
að. - epj.
Orð í tíma töluð
í síðasta tölublaði var frá-
sögn á baksíðu frá sam-
þykkt Brunavarna Suður-
nesja þar sem þeir kvarta
yfir því að þygginganefnd
fylgist ekki nægjanlega
með því að unnið sé eftir
samþykktum teikningum.
Vegna þessaspurðum við
Steinar Geirdal um málið,
og sagði hanh að þarna
væru orð í tima töluð, því
mál væru miklu stífari en
áður. Menn hefðu hins
vegar ekki viljað setja sig
inn í, það hvað þetta væri
orðiö strangt.
,,Meðan enginn truflar þá
halda þeir bara áfram, það
er ekki nægjanlegt að setja
skilyrði ef ekki er farið eftir
þeim. Nú höfum við rættvið
byggingameistara og þeir
vita að framvegis verður
tekið harkalega á málum, ef
þau eru ekki unnin sam-
kvæmt samþykktum teikn-
ingurn," sagði bygginga-
fulltrúinn í Keflavík. - epj.
Óskum Garðbúum og
öllum Suðurnesjamönnum
GLEÐILEGRA JÓLA OG
FARSÆLS KOMANDI ÁRS.
Þökkum stuðninginn á árinu
sem er að liða.
BJÖRGUNARSVEITIN ÆGIR, Garði
NÓTTIN FYRIR AÐFANGADAG
Reynið að gera þessa mynd af jólasveininum sem er að hella úr
pokanum sínum, fallegri með því að mála hana, annaðhvort
með vatnslitum eða litblýöntum.
Halldór Páls-
son í stjórn
lífeyrissjóðsins
Fulltrúafundur Lífeyris-
sjóðs verkalýðsfélaga á
Suðurnesjum var haldinn í
síðasta mánuði. Á fundin-
um var flutt skýrsla stjórnar
sjóðsins og ársreikningar
fyrir árið 1982 lagðir fram.
Á fundinum var Halldór
Pálsson, framkvæmdastjóri
Iðnsveinafélags Suður-
nesja, kosinn í stjórn til
næstu 4 ára í stað Ólafs Sig-
urðssonar, Garði. Aðrir í
stjórn eru María G. Jóns-
dóttir frá Verkakvennafé-
laginu, og að hálfu vinnu-
veitenda Jón Ægir Ólafs-
son og Margeir Jónsson,
sem er formaður. Fram-
kvæmdastjóri sjóðsins er
Daníel Arason. - epj.