Víkurfréttir - 15.12.1983, Side 31
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
Þrautir - leikir - skrýtlur
Skemmtilegur leikur
Klippið pappakassa þannig til, að hann myndi fjögur
hvöss horn, eins og greinilega kemur fram á myndinni.
Klippið síðan pappahringi, sem þið notið til þess að
kasta. Að þessu loknu skrifið þið stigatölur á hvert
horn kassans og að því loknu getur leikurinn hafist.
Góða skemmtun.
Katta-
hljómlist
Hvarflar það nokkurn
tíma að þér, þegar þú
horfir á Tomma og Jenna,
að mýs geti sungið? Senni-
lega eru það fáir, sem vita
að mýs gefa frá sér hljóð,
sem minna á söng kanarí-
fugla. Tónarnir eru þó svo
háir, að venjulega er
ógerningur fyrir fólk að
heyra þá.
Agœtur
sjónauki
Er unnt að búa til sjón-
auka, sem hefur hvorki lins-
ur né stækkunargler?
Vissulega. Finndu þér
þunnan pappa og vefðu hon-
um saman eins og sést á
myndinni. Kíktu síðan í
gegnum hann með öðru
auga og þú verður sennilega
öldungis hissa, þegar þú sérð
hlutina skýrar en ella þrátt
fyrir allt.
Hver
skoraði
mark?
Reykjavíkurmóti
í knattspyrnu er
lokið — Islands-
mótið er hafið og
ekki er að efa, að
mörg mörk verða
skoruð í sumar. A
myndinni sjáið þið
fjóra leikmenn,
sem fagna marki.
En hver þeirra
skoraði? Þú getur
fundið það með því
að fylgja strikun-
um frá leikmönn-
unum.
Vinna fgrir
„svífandi
menní(
Eiffelturninn í París,
sem allur er byggður úr
járni og var tækniundur
síns tíma, var vígður 31.
mars 1889. Turninn er
nákvæmlega 300,65 metr-
ar á hæð nema í frosti,
því að kuldinn lætur
málminn „hlaupa". Sólin
getur hins vegar látið
málminn þenjast út, og
munurinn á hæð turnsins
getur verið allt að 18 cm.
Sjöunda hvert ár er
turninn málaður og þá
eykst þyngd hans um 45
tonn. Það er þyngd máln-
ingarinnar, 33.753 lítra,
sem 30 „svífandi menn“
eru átta mánuði að bera
á turninn.
HVERNIG?
Drengurinn og hundurinn hafa ákveðið með sér, að beinið á
ekki að liggja á milli þeirra lengur. En — þeir hafa líka
ákveðið, að hvorugur þeirra má snerta það, sparka því eða
koma við það á annan hátt. Hvernig eiga þeir að fara að því
að breyta því að beinið liggi á milli þeirra?
j9<J QIA JBQIiq |i; Q|UI»q
ja 9^ ‘uinuiq 9 BUiQuq qia ;s22a| ‘2|6 Juæj Jío ddn jnpua^s BJjiacJ jcuuy lusnnq