Víkurfréttir - 15.12.1983, Side 35
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
,,Eyddi afgangnum af yfirfærslunni i málverkabækur. .. “
hefur alltaf átt sterk ítök í
mér og hef ég starfað mikið
með Leikfélagi Keflavíkur.
Árið 1976 endurreistum við
félagið eftir að það hafði
legið niðri í 2 ár, og fluttum
þá leikritið ,,Er á meðan er“.
Soffía Karls sagði mér að
þetta verk hefði gengið
frekar illa í Þjóðleikhúsinu
og var ekki bjartsýn. Við
héldum samt 10 sýningar
og hættum fyrir fullu húsi
og fengum mjög góða
aðsókn. En vegna þess að
þetta var 20 manna sýning
var ekki hægt að halda
áfram. Vinsælasta leikritið
sem hér hefur verið flutt er
þó Lína langsokkur."
Nú hefur þú skrifað
nokkrar bækur?
„Jú, það hefur verið stórt
áhugamál hjá mér. Oft hef
ég íhugað þennan mikla
tíma sem fer í félagsmál, og
reynt að draga úr honum,
en það er nú einu sinni
þannig, að viljurðu verða
rithöfundur, þá er nauðsyn-
legt að vera í tengslum við
mannlífið og það er best í
gegnum félagsmál. Ég hef
skrifað 8 bækur og eitt leik-
rit, „Útkall í klúbbinn", sem
Gunnar Eyjólfsson svið-
setti. Fjallaði það um lífið á
Keflavíkurflugvelli. Ekki
ætla ég að fara að leggja
neinn dóm á það, en ég fékk
góða dóma hjá þekktu
leiklistarfólki. Minn draum-
ekki yfir neinu að kvarta, því
bærinn hefur veitt vel til
safnsins, enda er útlán á
hvern íbúa um 10 bækur á
ári, sem telst mjög gott.
Hvað varöar húsnæði bóka-
safnsins þá var það mikil
bót þegar það flutti úr hinu
þrönga húsnæði í barna-
skólanum yfir i hús Björns
heitins Sigurðssonar lækn-
is. Það var þó að vísu ekki
mjög heppilegt húsnæði,
það er á 3 hæðum, enda
fyrrum ibúðarhús og því
talsvert trimm sem þessu
fylgir. Núna erum við að
knýja fast á dyr bæjar-
stjórnar um að tekin verði
ákvörðun um nýjan stað
fyrir bókasafn og síðan
verði farið að teikna. Ég hef
vilyrði bæjarráðsmanna
fyrir því, að staðarákvörð-
un verði tekin innan
skamms".
Þú sem stórtemplar, hvað
(innst þér um tilkomu vín-
veitingastaða i Keflavik?
„Ég er ekki hress yfir því.
Menn sem þekkja þessi mál
segja, að vínveitingastaðir
séu jafnvel verri heldur en
áfengisútsölur".
En bjórinn, á að leyfa
hann?
„Kannanir hafa sýnt, að
yngra fólk drekkur bjór og
mín skoðun er sú, að
áfengisneysla muni aukast
með tilkomu hans. Erlendis
drekkur yngra og efna-
minna fólk bjór. Ég hefði nú
haldið, að ástandið hjá
unglingum hér sé ekki það
gott, að ástæða sé að bæta
bjórnum við. Fyrir nokkrum
árum sendi alþjóðaheil-
brigðisstofnunin frá sér
neyðaróp vegna áfengis-
neyslu á vesturhveli jarðar
um það, að þessar þjóðir
yrðu að gera eitthvað til að
draga úr áfengisneyslu.
Ávarp þetta, sem stofnunin
sendi frá sér, var svo harð-
ort, að það hefði getað verið
frá okkur templurum. Tvær
af mestu vínneysluþjóðum
vesturlanda tóku þessi að-
vörunarorð mjög alvarlega
og nú er svo komið, að það
hefur dregið úr neyslu bæði
hjá Frökkum og Spánverj-
um vegna aðgerða yfir-
valda. Á sama tima tók einn
ráðherra sig til hér á landi
og lengdi opnunartíma vin-
veitingastaða, þvert ofan i
vilja meirihluta Alþingis.”
Er ekki tilvalið að slá end-
ann í viðtal þetta með þvi að
þú segir okkur frá menntun
þinni og uppruna?
„Ég er ekki innfæddur
Suðurnesjamaður, en hef
þó samlagast furðu vel lífi
hér. Ég er austfirðingur og
sveitamaður að því leytinu
til. Hef lítið sem ekkert farið
á sjó og þarf ekki að fara
nema niður á bryqgju til að
verða sjóveikur. Eg stund-
aði nám við Menntaskól-
ann í Reykjavík, en þegar ég
átti eftir eitt ár í stúdents-
próf þá veiktist ég og lauk
aldrei menntaskólanámi.
Seinna, þegar heilsan lag-
aðist, þá hafði ég ekki
áhuga á að Ijúka námi, hélt
þess í stað til Frakklands og
var skrifaður inn áeinhverja
útlendingadeild í Sorbonne
og var að myndast við að
læra frönsku. Ég lifði eins
og Fransari og drakk mitt
rauðvín með mat. En þar
sem ég var slæmur í maga
þá ráðlögðu vinir mínir mér
að fara á náttúrulækninga-
fæði. Þetta gerði ég og tókst
vel og þar byrjaði mín
templaratið.
Þegar ég hætti að lifa á
franska vísu átti ég alltaf
töluvert eftir af yfirfærsl-
unni, sem ég eyddi i kaup á
málverkabókum. Þetta ár,
sem ég var í Frakklandi, not-
aði ég mikið til að skoða
mannlífið. Fór í leikhús og
kvikmyndahús og var í raun
á þeysireið um borgina og
hafði mjög gaman að. Það
er hægt að sjá ákaflega
mikið í París. Þetta er alls-
herjarmiðstöð fyrir menn-
ingu og list, og mjög auð-
velt að eyða tímanum þar.
Eins og ég sagði áður,
lauk ég ekki stúdentsprófi
en hef verið að mennta mig í
gegnum árin, meðal annars
hefi ég sótt námskeið í Há-
skólanum vegnastarfs míns
sem bókavörður. Ég séekki
eftir að hafa ekki lokið því
prófi, þegar maður er
kominn í ritstörf, þá felst
menntun ekki í prófum,"
sagði Hilmar Jónsson að
lokum. - pket.
„Þaö hefur alltaf verið draumur hjá mér, aö „Útkall iklúbb-
inn" veröi kvikmyndað ..."
ÚTBOÐ
Framkvæmdanefnd íbúða aldraða, f.h.
Njarðvíkurbæjar, óskar eftir tilboðum í að
fullgera íbúðir aldraðra að Vallarbraut 2,
Njarðvík.
Um er að ræða fullnaðarfrágang 8 íbúða
fjölbýlishúss, sem nú er fokhelt og frá-
gengið að utan.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Njarðvíkurbæjar, Fitjum, gegn 1.000 kr.
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 29. des.
1983 kl. 11 á sama staö.
Framkvæmdanefnd íbúða aldraðra
Njarðvík
ur er þó að verkið verði film-
að, það færi betur þar, enda
stutt og möguleikar í út-
sendingu eru þar meiri. Nú,
ég hef verið að skrifa leikrit,
sem fjallar um ævi Jóns
Steingrímssonar, eldklerks.
Á síðasta ári fékk ég í fyrsta
sinn starfslaun þó ég hafi
áður fengið ritlaun. Mér
hefur miðað nokkuð vel
áfram í sumar, en enn á ég
mikið eftir."
Hvað ertu búinn að starfa
lengi sem bókavörður?
„Ég er að verða með elstu
forstöðumönnum bóka-
safna hér á landi, eða frá
1957, en þá var ég búinn að
vera 2 ár í Reykjavík við
sama starf."
„Er bókaiestur mikill hjá
almenningi, og hvernig er
búið að safninu?
„Já, hann er það. I
upphafi var bókakostur
safnsins lítill og lélegur, eða
um 1600 bindi. ( dag hef ég
^Óskum landsmönnum öllum
gleðilegra jóla árs og friðar.
Þökkum viðskiptin á liðnum
m.
Umboð KefJavíJk - Njarðvík
tcr ■