Víkurfréttir - 15.12.1983, Side 39
VÍKUR-fréttir
JOLABLAÐ
K - KAUPMAÐURINN:
„Aðra hverja viku tilboð, - og þau
munu verða ótrúlega hagstæð"
- segir Jónas í Nonna & Bubba í samtali við Víkur-
fréttir um sameiginlegt átak kaupmanna
Jónas Ragnarsson, kaupmaður
Kaupmenn á suðvestur-
horni landsins hafa nú
kynnt stofnun samtaka,
K-KAUPMAÐURINN heita
þau og hafa það að mark-
miði að vinna saman að
ýmsum málum, sem snerta
báða aðila, viðskiptavininn
og kaupmanninn.
VlKUR-fréttir höfðu
fregnir af því að einn helsti
hvatamaðurinn að stofnun
samtakanna og öllum und-
irbúningi tilboða þeirra K-
kaupmanna, væri Jónas
Ragnarsson, kaupmaður í
Nonna & Bubba Blaðiðtók
Jónas tali og innti hann eftir
ýmsu af því sem samtökin
hyggjast beita sér fyrir í
framtíðinni.
,,Til að byrja með verðum
við saman með auglýsingar
á samtökunum og verslun-
um innan þeirra. Við köllum
okkur ..stærsta stórmarkað
landsins'' og tel ég það með
réttu gert. Nú, við verðum
með sameiginleg innkaup
45 kaupmenn eða fleiri og
höfum við náð umtalsverð-
um árangri í þessum efnum,
náð að gera sérlega hag-
stæða samninga við ýmsa
þá aðila sem birgja okkur
upp af vörum. Aðra hverja
viku munum við gera við-
skiptavinum okkar heyrin-
kunn tilboð okkar, - og þau
munu verða ótrúlega hag-
stæð, því get ég lofað".
Þetta er þá væntanlega til
að mæta þeirri samkeppni,
sem stóru markaðirnir veita
kaupmanninum?
,,Ja, það er nú svo með
mig, að éghefekkiorðiðvar
við þessa miklu samkeppni
við markaðina. Það væri
frekar að ég væri í sam-
keppni við aðra kaupmenn
hér í nándinni. Missi ég við-
skiptavin, sem gerist bless-
unarlega sjaldan, þá er það
sú samkeppni, ekki mark-
aðirnir. Og reyndar óttast
ég þá ekki svo mjög. Þeir
eru að sjálfsögðu tímanna
tákn og fátt nema gott um
þá að segja. Hins vegar er
það eðli allrar góðrar kaup-
mennsku að reyna að færa
viðskiptavininum lifsbjörg-
ina á sem viðráðanlegustu
verði. Það segir sig sjálft, að
það er ekki okkar hagur að
halda vöruverði háu þannig
að enginn fái notið vörunn-
ar. Við viljum fá hana úr hill-
unum sem fyrst".
Nú er á döfinni mikil
breyting, frjáls verðlagning.
Þýðir þetta ekki að matvara
hlaupi upp úr öllu valdi i
verði?
,,Nei, ég held þvert á móti
að í þessari miklu sam-
keppni sem er á markaðn-
um mun þetta verða við-
skiptavinum til hagsbóta
fyrst og fremst. Ég er og hef
alltaf verið fylgjandi þvi að
verðlagið sé frjálst. Það
mun koma á daginn að það
verður öllum til góða''.
Svo við vikjum aftur aö til-
boðum ykkar K-kaup-
manna. Nú eru tilboðin
bundin við nokkrar tegund-
ir vara vikulega. Verður ekki
einhver munur á verðlagi
einstakra vörutegunda milli
verslana eftir sem áður?
Eða öllu heldur, verður ekki
áframhald á samkeppni
kaupmanna?
„Jú, mikil ósköp. Við
gerum okkur allir fulla grein
fyrir þessu. Við erum í sam-
keppni. Hins vegar sjáum
við hag viðskiptavina betur
borgið með samstarfi við
sameiginleg innkaup og
auglýsingar. Samkeppnin
heldur hins vegar áfram
milli kaupmanna. Þaðerog
hlýtur að verða aðalsmerki
kaupmanna að keppa sín á
milli”.
Að lokum. Er ætlunin að
útvikka þetta samstarf
kaupmanna?
„Það kemur fyllilega til
greina. Samstarf sem þetta
er að fyrimynd kaupmanna
á Norðurlöndum þar sem
það hefur gengið mjög vel
um fjölmargra ára skeið
Við sem að þessu stondum
erum allir félagar i Kaup-
mannasamtokum íslands
og annað hvort mundu þau
samtók eða K-samtökin
fara út í áframhaldandi að-
gerðir. Um þetta er of
snemmt aö fullyrða nokk-
uð. Fyrst i stað leggjum við
alla aherslu á tilboðsmalin
okkar og munum gera allt
sem hægt er til að ná mður
vöruverði í verslunum okk-
ar. Aðalatriöið tel ég að
kaupmenn munu standa
styrkari fótum á eftir, - og
viðskiptavinir okkar njóta
þess i leiðinni". - J.B.P.
■.......
TAKAGILDI í DAG
í þessum verslunum
á Suðurnesjum:
Nonni & Bubbi, Keflavík
Víkurbær, Keflavík
Brekkubúðin, Keflavík
Kostur, Keflavík
Skiphóll, Sandgerði
Þorláksbúð, Garði
Bragakjör, Grindavík
Vogabær, Vogum
og ná yfir eftirtalda
vöruflokka:
VERÐ:
Þetta er aðalsmerki K-verslana
R-epli
Kókómalt T.V.
Sukkulíki
Kerti
WC-pappír
Cfí
o-
o
tf)
fD
(O
V