Víkurfréttir - 08.11.1984, Blaðsíða 11
VÍKUR-ffréttir
Fimmtudagur 8. nóvember 1984 11
Vilborg Ámundadóttir gjaldkeri, tekur við heiðursskjali
úr hendi formanns, Soffiu Karlsdóttur.
gerðu þær til þess að lífga
upp á tilveru bæjarbúa. Má
þar nefna ótal námskeið
sem tengjast hannyrðum
og jafnvel leikfiminám-
skeið. I mörg ár hafa Kven-
félagskonur haldið jólatrés-
skemmtun fyrir unga jafnt
sem aldna. Margt fleira
mætti nefna sem þetta dug-
mikla félag hefur staðið
fyrir.
Kvenfélagið hefur gefið
Sjúkrahúsi Keflavíkur
margar góðar gjafir og nú
síðast gáfu þær Heilsu-
gæslustöðinni hjartarita og
þrekhjól að verðmæti kr.
180.000. Þærvoruogeinnig
þátttakendur með öðrum
félagasamtökum í kaupum
á sjúkrarúmum til Garð-
vangs nú nýlega. Félags-
konur hafa mikið unnið að
orlofsmálum húsmæðra og
eru eignaraðilar að Orlofs-
húsinu í Gufudal ásamt
öðrum kvenfélögum.
Afmælishátíð þessa dug-
mikla félags á Glóðinni
tókst mjög vel í alla staði og
var gestum boðið upp á
glæsilegar veitingar. For-
maður, Soffia Karlsdóttir,
bauð alla velkomna og skip-
aði Guðrúnu Árnadóttur
sem fundarstýru og stjórn-
aði hún hátíðinni með mikl-
um myndarbrag. Heiðraðir
voru átta konur sem starfað
hafa ötullega með félaginu,
en þæreru: Eiríka Árnadótt-
ir, Ólöf Pálsdóttir, Steinunn
Þorsteinsdóttir, Guðrún
Bergmann, Ásgerður Eyj-
ólfsdóttir, Guðbjörg Jóns-
dóttir, Sesselja Magnús-
dóttir og Vilborg Ámunda-
dóttir. Heiðursfélagar voru
fjórar áður, þær Ágústa
Guðmundsdóttir, Þorgerð-
ur Einarsdóttir, Jóna Ein-
arsdóttir og Emelía Snorra-
dóttir.
Ýmislegt var til skemmt-
unar fyrir gesti. Böðvar
Pálsson flutti frumsamdar
gamanvísur, Jón Kristins-
son og Haukur Þórðarson
sungu tvísöng við undirleik
Ragnheiðar Skúladóttur.
Formenn ýmissa kvenfé-
laga í Gullbringu- og Kjós-
arsýslu voru þarna mættar
og gáfu þær félaginu
margar fallegar blóma-
skreytingar. Fulltrúi bæjar-
stjóra var á staðnum og gaf
Þessar ungu dömur héldu nýlega hlutaveltu að Fagragaröi
12 i Keflavík og hafa afhent ágóðann, 205 kr„ til Þroska-
hjálpar á Suðurnesjum. Þaer heita talið f.v.: Rut Þorsteins-
dóttir, íris Reynisdóttir, Elva Sif Grétarsdóttir og Anna
Karina Sigurðardóttir. - epj.
Þessar 3 stúlkur héldu nýlega hlutaveltu og hafa þær varið
ágóðanum, 400 kr„ tilstyrktar Þroskahjálp á Suðurnesjum.
Þær heita f.v.: Arndis Sigurðardóttir, Sólveig Steinunn Vil-
hjálmsdóttir og Lovisa Aðalheiður Guðmundsdóttir.
félaginu blómaskreytingu
fyrir hönd bæjarstjórnar
Keflavíkur. Formaður Sam-
bands kvenfélaga á íslandi
flutti erindi umstörf kvenfé-
laga og jafnframt talaði hún
um jafnréttismál. Síðan af-
henti hún félaginu bók að
gjöf, sem heitir „Margar
hlýjar hendur".
Mikill hátíðarandi ríkti á
staðnum og ýmislegt var
skrafað áður en fundar-
stýra sleit hátíðarfundinum
eftir nær 3ja tima veislu-
höld.
Rétt er að geta þess, aö
kvenfélög á íslandi eru
stærstu samtök kvenna hér
á landi, og eru félagskonur
nú um 22.400 talsins.
Fundir eru haldnir einu
sinni i mánuði yfir vetrar-
mánuðina og eru nýirfélag-
ar velkomnir.
Kökubasar verður hald-
inn í Holtaskóla laugardag-
inn 24. nóv. Næsti fundur
félagsins verður 3. desem-
ber og hefst hann kl. 19 á
Glóðinni. Gaman þætti fé-
lagskonum að fá fleiri ung-
ar stúlkur i félagið svo
haldið geti áfram þetta öfl-
uga félagsstarf um ókomin
ár. Þetta eru eldhressar
konur sem reyna að hafa
fundi sína sem líflegasta.
Við tökum undir með
henni Guðrúnu Árnadóttur,
sem sleit hátíðarfundinum
með þessum orðum: „Kven-
félagið lengi lifi, húrra,
húrra, húrra“! - me.
Heiðursfélagar Kvenfélags Keflavikur
GÓLFDÚKAFt
GÚMMÍDÚKAR
TEPPI
FLÍSAR
FRÁBÆRT ÚRVAL
diopinn
HAFNARGÖTU 90 - SIMI 2652 og 2690