Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.11.1984, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 08.11.1984, Blaðsíða 19
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 8. nóvember 1984 19 ÉG SELDI ÞANN KJÓL FYRIR VISKÝ OG RJÓL.. Ja, nú var illa komið fyrir mörgum landanum, ekki síst fyrir samviskunni, þegar hún hafði ekki lengur neitt að reykja og að maður tali ekki um að drekka (ég meina sterkt). Þannig var það nú samt í okkar frjálsa landi, að ekki fengu allir það sem þeir vildu og þá kannski sérstaklega ekki þegar lengi hafði staðið verkfall eins og nú var. Tó- baksvörur voru með öllu ófáanlegar í verslunum og sumirtóbaksunnendur með öllu orðnir uppiskroppa. Menn sáust hlaupa á milli húsa og biðja eða spyrja hvort viðkomandi eigi ekki eins og eina ,,rettu“ í versta falli einn stubb til að lána fyrir eitt ,,karton“ þegar verkfall leysist. Virðulegar skrifstofuglanspíur, sem alla jafna reykja ekkert nema ,,léttar“sáust nú totta stóra vindla sem löngum hafa verið kenndir við borg eina á Kúbu, Havana, þar Umboðsmenn og frétta- ritarar Víkur-frétta Að undanförnu hefur rit- stjórn Víkur-frétta unnið að því að ráða fréttaritara og/eða umboðsmenn fyrir blaðið í öðrum sveitarfélög- um á Suðurnesjum en Kefla vík-Njarðvík. Er þetta nú frágengið í öllum þessum byggðarlögum nema Sand- gerði, en á næstunni verður tilkynnt um fréttaritara okkar þar. Þeir sem koma þurfa fréttum í blaðið og búa á þessum stöðum er því bent á að hafa samband við við- komandi eða sjálfa rit- stjórnina í Keflavík, en hún hefur síma 1717. Þeir sem hafa tekið að sér að vera umboðsmenn, sjá Umboösmaöur og dreifingarstjóri Víkur-frétta i Grindavik, Helga Pétursdóttir, aö störfum. Gólfslípun - Steypuvinna Tökum að okkur að leggja steypu og gólf- slípun. Önnumst alla undirbúningsvinnu. - Föst tilboð. - GÓLFSLÍPUN SF., sími 3708 og 1945 Einar Torfi Kælitækjaviðgerðir M.a. viðgerðir á ísskápum og frystikistum. GÍSLI WÍUM Hátúni 11, Keflavík, sími 92-2598 um dreifingu blaðsinsá við- komandi stöðum, en annars staðar sér ritstjórnin sjálf um dreifinguna. Þessir aðilar eru: Fréttaritarar: Garður: Eiríkur Her- mannsson, Björk, s. 7048. Grindavik: Eyjólfur Þ. Guðlaugsson, Suðurvör 11, s. 8447, og Klara Gestsdótt- ir, Leynisbraut 9, s. 8198. Vogar: Eyjólfur Guð- mundsson, Brekkugötu 18, s. 6639. Umboðsmenn: Grindavík: Helga Péturs- dóttir, Vesturbraut 10, s. 8543. Hafnir: Jón Borgarsson, Jaðri, s. 6919. 1 i sem Kastró ræður ríkjur, já víða eru áhrif kommanna. Forstokkuð karlrembusvín voru komin með hálfgerða hægðalömun af því að reyna að reykja þessar ,,léttu“, alla vega orðnir mjög kinnfiskasognir. Verndararnir okkar eru ekki eins almennilegir og af er látið, þegar á reynir því að þeir höfðu nú í annað skipt- ið á þessu ári brugðist okkur hrapallega. Fyrst lok- uðu þeir fyrir bjórsjálfsal- ana og nú á versta tíma lok- uðu þeir sígarettusjálfsöl- unum. . —unuiii. Þettaeru nú vinir í raun. Það sem ég held þrátt fyrir allt verkfall er það að þetta er enn eitt dæmið um það að nú á enn að sverfa að reykingafólki. Það er búið að setja á okkur ýmis höft og bönn í sambandi við reykingar okkar. Okkur er sagt að þetta sé beinlínis stórvafasöm iðja, þaðerþað sjálfsagt, ekki efa ég það. Líka er okkur sagt að eftir áramót sé búið að banna okkur að reykja á almanna- færi eða því sem næst. Þetta með að þetta sé svo og svo hættulegt, það er bara eins og að það sé ekkert hættu- legt sem maður gerir. Það er til dæmis stórhættulegt að keyra bíl. Hvað verða mörg slys í umferðinni? Það er stórhættulegt að róa til fiskjar og fljúga í flugvél og bara yfirleitt að vera lifandi., Ekki batnar það neitt þó vinir vorir á Alþingi setji einhver lög um reykinga- varnir. Hvaða rétt höfum við þeir sem reykjum? Við borgum jú okkar skatta og útsvar, þó megum við ekki gera það reykjandi eftir áramót. Við borgum lika meira í ríkissjóðen þeirsem ekki reykja því að við versl- um við ríkið sem hefureink- arétt á þvi að selja okkur þessa stórhættulegu vöru. Nei, nú er mál að linni þessum stanslausa áróðri og mál fyrirokkurreykinga- fólk að snúa vörn í sókn og heimta aftur þau sjálfsögðu mannréttindi að fá að reykja í friði. Já, hvernig væri bara Áttu góða grein í blaðið? Hafðu þá samband við ritstjórn blaðsins. Síminn er 1717 að við færum að bjóða til þings. Þetta er þó mál bæði kvenna og karla, svo að sjá má að það fer ekki eftir kyni hvers og eins. Það ætti að vera hægt að ná nokkrum inn á þing þó ekki nema bara til að rödd okkar heyrðist meðal reykinga- manna þar. Upp með íslenskt reyklið. Hvað er ekki sagt um þá flokka sem sitja á þingi? Þetta er allt saman sama tóbakið. Það er bara ekki alveg rétt, það er ekki tóbak það er eitthvað allt annað. Því er nú verr. Heyrðu! Nú verð ég að hætta. Ég frétti af einum frænda mínum austur á landi sem lúrir á nokkrum pökkum af vindlum. Ég verð að ná flugvél. Ég læt þó eina vísu fylgja að lokum. Nú skal reykja, reykja allt reykur finnst mér góöur Tóbak bæói súrt og salt er soddan úrvalsfóóur. P.S. Það verður eitthvað ef það verður skortur á aftur- endaþurkum. Þá verður sko fjör á hlaupunum. NAUÐUNGARUPPBOÐ sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Ásabraut 8 í Sandgerði, þinglýst eign Aðalsteins Sigfús- sonar, ferfram á eigninni sjálfri að kröfu Ólafs Gústafsson- ar hdl., miðvikudaginn 14. nóv. 1984 kl. 15.00. Sýslumaðurinn I Gullbrlngusýslu NAUÐUNGARUPPBOÐ annað og síðasta á fasteigninni Heiðarból 4, ibúð merkt 0102, þinglýst eign Baldvins Níelsen, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms Þórhallssonar hrl. og Inga H. Sig- urðssonar hdl., fimmtudaginn 15. nóv. 1984 kl. 11.00. Bæjarfógetlnn I Keflavlk NAUÐUNGARUPPBOÐ annað og síðasta á fasteigninni Þórustígur 28, miðhæð, þinglýst eign Lúðvíks Vignis Ingvarssonar, ferfram áeign- inni sjálfri að kröfu Jóns Ingólfssonar hdl. og Njarðvíkur- bæjar, fimmtudaginn 15. nóv. 1984 kl. 11.15. Bæjarfógetinn I NJarðvfk NAUÐUNGARUPPBOÐ annað og síðasta á fasteigninni Austurvegur 24 í Grinda- vík, þinglýst eign Lovísu Sveinsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Jóns G. Briem hdl., Iðnlánasjóðs, Brynjólfs Kjartanssonar hrl., Ásgeirs Thoroddsen hdl. og Lands- banka Islands, fimmtudaginn 15. nóv. 1984 kl. 15.45. Bæjarfógetinn I Grlndavfk NAUÐUNGARUPPBOÐ sem auglýst hefur verið i Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Miögarður 2 í Grindavík, þinglýst eign Netagerðarinnar Möskvi sf., fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Iðnlánasjóðs, Byggðasjóðs og Hákonar H. Kristjónssonar hdl., fimmtu- daginn 15. nóv. 1984 kl. 15.00. Bæjarfógetlnn I Grlndavfk NAUÐUNGARUPPBOÐ sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaðinu á m.b. Jó- hannesi Jónssyni KE79, þinglýsteign Jóhannesar Jóhann- essonar, fer fram við bátinn sjálfan í Keflavíkurhöfn, aö kröfu Byggðasjóðs, Tryggingastofnun ríkisins, Lands- banka íslands og Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., fimmtu- daginn 15. nóvember 1984 kl. 10.30. Bæjarlógetlnn I Keflavfk NAUÐUNGARUPPBOÐ sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Grófin 5 í Keflavík, þinglýst eign Þórhalls Guöjónssonar o.fl., fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms H. Vil- hjálmssonar hdl. og innheimtumanns ríkissjóðs, fimmtu- daginn 15. nóv. 1984 kl. 10.45. Bæjarfógetlnn I Keflavfk NAUÐUNGARUPPBOÐ sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Kirkjuteigur 15 í Keflavík, þinglýst eign Rúnars Guðjóns- sonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Tryggingastofnunarríkisins, Hafsteins Sigurðssonar hrl., Jóns G. Briem hdl., Jóns Hjaltasonar hrl. og Vilhjálms Þórhalssonar hrl., fimmtudaginn 15. nóv. 1984 kl. 10.15. Bæjarfógetlnn I Keflavfk

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.