Víkurfréttir - 04.05.1985, Blaðsíða 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 2. maí 1985 7
Björgvin Berndsen (t.v.) og Ástvaldur Kristjánsson við hausinga-
vélina.
Rúnar Ármannsson farandverkamaður
Rúnar Ármannsson hefur
verið farandverkamaður í 5
ár á ýmsum stöðum, Vest-
mannaeyjum, Þorlákshöfn,
Breiðdalsvík og nú í
Grindavík.
„Svo var ég á to§ara
þegar ég var heima á Sauð-
árkróki, ég er Skagfirð-
ingur“.
Hvernig líkar þér í
Grindavík?
„Ég er nú bara búinn að
vera hérna í Vi mánuð, en
mér líkar alveg skínandi vel
hérna. Þetta er miklu upp-
lýstara pláss en Breiðdals-
vík“.
„Hann lýgur þessu,
hann er alveg að gefast upp
hérna“, segir einhver.
„Nei, ég lýg þessu ekkert,
það er gott að vera hérna
hjá Hópsnesi".
Hvað finnst þér um launa-
mál fiskvinnslufólks?
„Launin eru ágæt miðað
við landvinnu, þ.e.a.s. með
þessu bónuskerfi. Góð vika
hérna gefur svona 11-12
þúsund kall og venjuleg
vika er um 8-9 þúsund".
Hvernig er aðbúnaður
ykkar í verbúðinni?
„Hann er alveg frábær,
sérlega góður og ódýr. Við
borgum 240 krónur á dag
fyrir allan mat, allan sólar-
hringinn ef því er að skipta.
Verbúðin er líka mjög
snyrtileg og góð. En við
þurfum náttúrlega að þvo
af okkur sjálfir".
Tekur þú þátt í starfi
stéttarfélaganna?
„Já, ég gerði það heima
og ég fylgist með kjara-
Hvað finnst þér um launa-
málin og starfið hér?
„Launin eru góð ef það
er mikil vinna. Þannig er
þetta í fiskinum. Og ég segi
eins og Ási, þetta er leiði-
gjarnt ef maður er alltaf í
því sama, en ágætt ef maður
er settur í að bóna Litlu
gulu hænuna", segir Björg-
vin og glottir. „En það er
annars mjög gott að vinna
hér og gott fólk, fínn mór-
all. Svo sakar ekíci að kokk-
urinn okkar í verbúðinni er
alveg frábær. Þetta er alveg
eins og heima, nema maður
sleppur alveg við að vaska
upp“.
samningum og kjaramál-
um. Mér finnst að það eigi
að gera betur við fisk-
vinnslufólk, sjómennskan
er miklu betur launuð en
landvinna“.
Opið föstudags- og
laugardagskvöld
MIÐLARNIR leika fyrir dansi.
KK-Pöbbinn opinn fimmtudag. föstudag
og laugardag. - Lokað sunnudag.
Snyrtilegur Aldurstakmark
klæðnaður 20 ára
HAFNARGÖTU 90 - SÍMI 2652 og 2690
diopinn
Margra ára reynsla sannar gæði
þakmálningunar frá Málningu hf.
ÞOL er sérframleidd alkýðmálning,
sem innlend reynsla hefur
skipað í sérflokk vegna endingar
og nýtni.
ÞAKMALNING SEM ENDIST
ÞOLer framleitt í fjölbreyttu litaúrvali.
Handhægt litakort auðveldar
valið á réttum lit.
ÞOL tryggir þér fallegt útlit
og góða endingu.
málning'lf
Nýr bygginga-
fulltrúi í Garði
Nú um mánaðarmótin
tók nýr maður við starfi
byggingafulltrúa í Garði.
Hann heitir Brynjólfur
Guðmundsson, ættaður úr
Keflavík. Hefur hann m.a.
unnið hjá Verkfræðistofu
Suðurnesja. Tók hann við
starfi Hreggviðs Guðgeirs-
sonar sem gegndi starfi
byggingafulltrúa til dags-
ins í gær.
Mun Brynjólfur starfa í
Garðinum 2 daga í viku, en
að öðru leytihjá Verkfræði-
stofu Suðurnesja.
ÚTSÖLUNNI
_____ lýkur um helgina ...
GERIÐ 7 *
REYFARAKAUP!
ATH:
OPIÐ ALLA DAGA
TIL KL. 23.30
VISA
E
Sandgerði - Sími 7415
epj.