Víkurfréttir - 04.05.1985, Side 14
14 Fimmtudagur 2. maí 1985
VÍKUR-fréttir
Tónlistarskóli
Njarðvíkur
Sigurður Pétur Bragason baritonsöngvari
og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari,
halda tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju, laug-
ardaginn 4. maí n.k. kl. 16.
Sigurður er nýkominn heim frá Ítalíu þar
sem hann stundaði nám hjá einum fræg-
asta söngkennara ítala, Pierra Miranda
Ferraro.
Þóra Fríða stundaði nám í Þýskalandi þar
sem hún lauk prófum frátveimurvirtum há-
skólum með meðleik sem sérgrein. Aðal-
kennari hennar var prófessor Richter.
Á efnisskránni eru ítölsk lög, óperuaríur,
ásamt íslenskum lögum.
Skólastjóri
Njarðvíkurbær
Félagsmálaráð
Njarðvíkur
óskar eftir starfskrafti í heimilishjálp nú þegar.
Þarf að hafa bíl til umráða.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Sigbjörns-
son í síma 1079 og 1202.
Félagsmálaráð Njarðvíkur
Frá Verkakvennafé-
lagi Keflavíkur
og Njarðvíkur
Ákveðið hefur verið að fara í 1 dags ferð í
Húsafell laugardaginn 11. maí n.k.
Konur, látið eiginmennina um heimili og
börnin í 1 dag og skellið ykkur í Húsafell.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Verkakvenna-
félagsins.
Stjómin
2ja herb. íbúð að Heiðarhrauni 30b er til
sölu, með umsóknarfresti til 15. maí n.k.
Umsóknareyðublöð ásamt frekari upplýs-
ingum fást á skrifstofu bæjarins.
Grindavík, 23. apríl 1985
Stjórn verkamannabústaða í Grindavík
- Auglýsingasíminn er 4717 -
Þessir nemendur skólans eiga að fara í útvarpsupptöku í tilefni af því að útvarpið aetlar að hafa sérstaka
dagskrá þ. 1. okt. n.k., sem tileinkuð er ári tónlistarinnar og ári æskunnar. Þar munu nemendur ýmissa
tónlistarskóla leika verk eftir ýmsa höfunda.
Kynning á Tónlistarskól-
anum í Keflavík
- í tilefni evrópska tónlistarársins
Tónlistarskólinn í Kefla-
vík lýkur nú 27. starfsári
sínu. Skólinn var stofnað-
ur árið 1957 og var aðal-
hvatamaður að stofnun
hans Guðmundur Nordal.
Fyrstu kennarar skólans
voru Guðmundur Nordal,
Vigdís Jakobsdóttir og
Björn Guðjónsson.
Kennslan fór fyrst fram í
Ungmennafélagshúsinu,
síðan í kjallara Nýja Bíós,
því næst fluttist hún í
bílskúr við Tjarnargötu og
að lokum í Æskulýðsheim-
ilið við Austurgötu þar sem
aðalhúsnæði skólans er nú.
Fyrirhugað er að stækka
það húsnæði á næstu árum
til muna.
Fyrsti skólastjóri skól-
ans var ráðinn Ragnar
Björnsson árið 1960. Hann
gegndi því starfi í 16 ár, eða
til 1976. Það ár tók Herbert
H. Agústsson við starfi
skólastjóra og hefur gegnt
því starfi síðan.
Árið 1979 var stofnað
útibú frá skólanum í Garði
að ósk Tónlistarfélagsins
þar. Yfirkennari í Garði er
Jónína Guðmundsdóttir.
Margir frábærir kennar-
ar hafa starfað við skólann
á undanförnum árum. Þar
má nefna Árna Arinbjarn-
arson fiðlukennara, Pétur
Þorvaldsson cellókennara
og ýmsa fleiri. Fyrsti nem-
andi sem útskrifaðist frá
skólanum var Unnur Páls-
dóttir, fiðluleikari. Hún var
nemandi Árna. Unnur
starfar nú sem fiðluleikari í
Herbert H. Ágústsson
skólastjóri
hljómsveit Barcelonaborg-
ar á Spáni.
1 dag eru um 170 nem-
endur í skólanum og starfa
þeir í ýmsum deildum inn-
an skólans. Mikil áhersla er
lögð á forskólanám og geta
Píanódeildin er fjölmenn
börn byrjað þar á 5. aldurs-
ári, en meiningin er að þau
séu 3 ár í forskóla. Þau
kynnast helstu hljóðfærum
og reyna að nota þau. Þess-
um forskóla lýkur svo með
því að nemandinn sjálfur
ákveður endanlegt val þess
hljóðfæris sem hann hefur
mestan áhuga á. Kennari í
forskólanum er Siguróli
Geirsson. Ennfremur
starfar á vegum skólans
unglingalúðrasveit (ULK)
og eru nemendur hennar
valdir úr barnaskólanum.
Reynt er að finna nemend-
ur sem hafa áhuga og hæfi-
leika á tónlistarsviði. Hér er
eingöngu um hópkennslu
að ræða og er aðalkennari
og stjórnandi sveitarinnar
Jónas Þ. Dagbjartsson.
Stærsta deild skólans er
píanódeildin. Þar starfa nú
4 kennarar en aðalkennari
er Ragnheiður Skúladóttir.
Átta fiðlunemendur eru í
skólanum og er kennari
þeirra Kjartan Már Kjart-
ansson. Kennt er á öll
algengustu hljóðfæri í skól-
anum og má þar nefna
þverflautu, orgel, klarinett,
blásturshljóðfæri ýmis kon-
ar, harmonikkur, ásláttar-
hljóðfæri og fleira.
Kjarnagreinar, s.s. tón-
fræði, hljómfræði, tón-
heyrn og tónlistarsaga, eru
einnig kenndar og eru aðal-
kennarar þar Kjartan og
Herbert.
Nemendur úr Fjöl-
brautaskólanum stunda
nám í skólanum og fá það
metið til eininga þar.
Að lokum skal þetta
sagt: Tónlistarnám er mjög
krefjandi og tímafrekt
nám. Góður hljómlistar-
maður er allt sitt líf að læra
og aéfa.
Framtíðar fíðlusnillingar? Ekki nokkur vafi.