Víkurfréttir - 04.05.1985, Side 20
Fimmtudagur 2. maí 1985
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Hafnargötu 32, II. hæð. - Sími 4717
SPARISJÓÐURINN
NJARÐVÍK
hefur opnað
á nýjum stað
að Grundarvegi 23.
Sparisjóðuriim opnar
nýtt og glæsilegt
útíbú í Njarðvík
Sl. mánudag opnaði
Sparisjóðurinn Njarðvík á
nýjum stað, Grundarvegi
23. Formleg opnun hans
var hins vegar á miðviku-
daginn í sl. viku.
Magnús Haraldsson,
skrifstofustjóri, sem einnig
átti sæti í byggingarnefnd
hússins, flutti opnunar-
ræðu þar sem hann þakk-
aði iðnaðarmönnum vel
unnin störf. Magnús sagði
að þetta nýja útibú hefði
verið byggt til að leysa hús-
næðisvandamál Sparisjóðs-
Magnús Haraldsson ávarpar gesti við formlega opnun Sparisjóðs-
ins.
Starfsfólk Sparisjóðsins í Njarðvík ásamt sparisjóðsstjórum, Tómasi Tómassyni og Páli Jónssyni.
ins í Keflavík og Njarðvík
um sinn.
Nýja húsnæðið er um 600
ferm. á þremur hæðum og
er neðsta hæðin þar sem af-
greiðslan er, um 340 ferm.,
sem er um þrefalt stærra en
gamla útibúið í Njarðvík,
en það var opnað árið 1977
og verður 8 ára í sept. n.k.
Verktakar sem unnu við
bygginguna voru eftirtald-
ir: Hilmar Hafsteinsson var
byggingarmeistari, banka-
innréttingar eru frá Kristj-
áni Siggeirssyni, keyptar í
gegnum húsgagnaverslun-
ina DUUS, aðrar innrétt-
ingar smíðaði Héðinn
Framh. á 2. síðu
Björgunarsveitir í stórræðum i
Björgunarsveitin
Stakkur í Keflavík og
Hjálparsveit skáta í Njarð-
.víkeru nú að byggjaoginn-
rétta sín eigin hús.
Stakkur hefur keypt hús
að Iðavöllum 3 í Keflavík
og eru Stakksmenn nú að
innrétta það húsnæði. Hús-
ið er um 360/erm. á tveim-
ur hæðum. Á neðri hæð er
bílageymsla og þar er einn-
ig geymdur stærri búnaður
sveitarinnar svo sem^ vél-
sleði og gúmmíbátur. Á efri
hæð er fundarsalur, fjar-
skiptaherbergi auk
geymslu fyrir smærri búnað
Að sögn Þorsteins Mart-
einssonar, formanns
Stakks, er ætlunin að reyna
að ljúka framkvæmdum á
þessu ári en óvíst hvort að
það takist. „Þetta starf er
að öllu leyti unnið í sjálf-
boðavinnu og erum við svo
heppnir að hafa bæði smiði
og rafvirkja svo og aðra
iðnaðarmenn innan
sveitarinnar“ sagði Þorst-
einn. I Björgunarsveitinni
Stakk eru nú um 50 virkir
félagar en u.þ.b. 35 sem eru
tilbúnir í útkall nánast
hvenær sem er. I sveitinni
eru 6 stúlkur og sagði
Þorsteinn að þær stöllur
gæfu karlpeningnum
ekkert eftir.
Hjálparsveit skáta í
Njarðvík stendur í
nýbyggingu. Þeir eru búnir
að reisa 318 ferm. hús á
einni hæð og stendur það
við Grænásbrekkuna.
Framkvæmdir eru ekki
hafnar að innanverðu en
samt er nú ætlun Hjálpar-
sveitarmanna að taka alla
vega helming hússins í
notkun í ár. Þar er einnig
öll byggingavinna unnin í
sjálfboðavinnu að mestu
leyti. Árni Stefánsson,
formaður Hjálparsveitar-
inna sagði félaga vera um
108 frá upphafi en á
útkallslista væru nú um 35
manns.
Hjálparsveit skáta og
Björgunarsveitin Stakkur
vinna mikið saman og er
Framh. á 18. síðu
Bækistöð Stakks er flutt að Iðavöllum 3 í Keflavík
200 böm fóm á Kardimommubæinn
Það var mikil eftirvxnting sem skein úr augum krakkanna á Tjarnarseli sl. sunnudag, er blaðið festi þau
á filmu. Var hér á ferðinni rúmlega 200 manna hópur sem samanstóð af börnum, foreldrum og fóstrum
á leið i rútur frá SBK, sem ætluðu að flytja þau í Þjóðleikhúsið til að sjá Kardimommubæinn. - epj.
Spumingin:
Ert þú tónlistar-
unnandí?
Gunnar Baldvinsson:
„Já, já, er fyrir rokkið“.
Reynir Arason:
„Já, bara mátulega mik-
ið, þá helst öll létt tónlist“.
Bjarkar Adólfsson:
„Já, að litlu leyti, varð-
andi dægurlagamúsík".
Kristinn Danivalsson:
„Já, já, þó engin sérstök
tónlist".