Víkurfréttir - 05.12.1985, Page 1
Meingölluð tékkalöggjöf:
Gúmmítékkar aug-
lýstir til sölu
Sá sem tekur við gúmmftékka situr uppi
með hann. - Ábyrgð bankanna of Iftil.
í síðustu viku mátti sjá
óvanalega útstillingu í
glugga einnar verslunar í
Keflavík. Auglýstir voru
til sölu tékkar sem versl-
unin hafði fengið til baka
frá banka, þar sem inni-
stæða reyndist ekki vera
fyrir þeim. Að vísu er
þetta ekki einsdæmi að
menn verði að grípa til
þessa ráðs varðandi inni-
stæðulausra tékka, því
fyrir nokkrum misserum
greip önnur verslun til
slíkra ráða.
Að sögn aðila á staðn-
um urðu all mikil við-
brögð við þessari inn-
heimtuaðferð og aðilar
sem gáfu út viðkomandi
ávísanir, komu sumir
hverjir og björguðu mál-
um sínum til þess að
■
■ ^Bft IH8 §■1 w 1 ít I Kntfmnimmi 1
ávísunin með nafni þeirra
hangi ekki uppi fyrir aug-
um almennings.
Þessi aðferð varpar
fram ýmsum spurning-
um og því hafði blaðið
samband við umráða-
menn einnar verslunar
sem mikið fær af slíkum
tékkum, rannsóknarlög-
regluna, lögfræðing og
bankamenn. Birtast svör
þeirra inni í blaðinu. -
epj.
Aðalfundur Dvalarheimila aldraðra Suðurnesjum:
Nýtt dvalarheimili fyrir Kefla-
vík/Njarðvík í undirbúningi
Hlévangur lagður niður í núverandi mynd
Á aðalfundi Dvalarheim-
ila aldraðra Suðurnesjum
sem haldinn var í fyrra mán-
uði var samþykkt eftirfar-
andi tillaga með hliðsjón af
umræðum á aðalfundi SSS
á dögunum:
„Stjórn Dvalarheimila
aldraðra Suðurnesjum
fagnar áhuga sveitarstjórn-
armanna á málefnum dval-
arheimilanna og lýsir sig
nú, sem fyrr, reiðubúna til
fundar um málefni aldraðra
og felur framkvæmdar-
stjóra og formanni að ræða
við stjórn SSS um það, með
hvaða hætti slíkum fundi
verður komið á, svo og
fyrirkomulag hans.“
Þá var jafnframt sam-
þykkt eftirfarandi tillaga:
„Með hliðsjón af fyrri
samþykktum leggur stjórn
Dvalarheimila aldraðra
Suðurnesjum til að nú þeg-
ar verði hafinn undirbún-
ingur að byggingu dvalar-
heimilis aldraðra sem stað-
sett yrði á Keflavíkur-
Njarðvíkursvæðinu. Jafn-
framt verði dvalarheimilið
Hlévangur lagt niður í nú-
verandi mynd. Bæjar- og
sveitarstjórnir móti af-
stöðu til þessa hið fyrsta.“
Á fundinum var Páll
Axelsson kjörinn formað-
ur, Kristján Einarsson rit-
ari og Jón K. Ólafsson end-
urskoðandi.
epj.
Hér verða aðalstöðvar SSS eftir áramótin
S.S.S.:
Tekur Rafveitu-
húsið á leigu
Wf
1* 0T ■■£
[r
Jólaumferðin er framundan, sýnið tillitsemi í umferðinni Ljósmynd P.Ket.
Á fundi stjórnar SSS 14.
nóv. s.l. lagði Eiríkur Alex-
andersson fram nýjar tillög-
ur að skipulagi á húsnæði
Páls Axelssonar að Vatns-
nesvegi 14, Keflavík, en
eins og áður hefur komið
fram stóð til að sambandið
flytti skrifstofur sínar
þangað. Á fundinum kom
frarn að húsaleiga yrði 40
þúsund pr. mánuð. Hús-
næðið yrði fullstandsett og
leigusamningur yrði til 5
ára.
Steinþór Júlíusson,
bæjarstjóri í Keflavík, bauð
fram húsnæði það sem áður
var skrifstofuhúsnæði Raf-
veitu Keflavíkur og yrði
leigan kr. 30 þúsund á mán-
uði. Var samþykkt að fara'
vettvangskönnun í það
húsnæði að Vesturbraut
lOa í Keflavík. Að henni
lokinni var samþykkt að
taka tilboði Keflavíkur-
bæjar að því tilskyldu að
húsaleiga verði lækkuð frá
því^ sem boðið væri.
Á fundi bæjarráðs Kefla-
víkur 26. nóv. s.l. var sam-
þykkt að leigja SSS skrif-
stofuhúsnæði þetta á kr.
20.000 pr. mán. miðað við
byggingavísitölu í jan.
1986.
epj.
Auglýsendur ath.: Jólablaðið
kemur út 19. des. Verið því tím-
anlega með auglýsingarnar.