Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.12.1985, Qupperneq 3

Víkurfréttir - 05.12.1985, Qupperneq 3
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 5. desember 1985 3 þá og reikna ég með að bók- in um Vilmund verði ofar- lega hjá fólki. Bókin er allt- af vinsæl jólagjöf en það er farið að aukast að fólk kaupir föndurvörur og einnig hin skemmtilegu fjölskylduspil af ýmsum gerðum, sem eru mjög vin- sæl. Jólatraffíkin verður lík- lega svipuð og í fyrra og er fólk farið að föndra meira heima en það gerði áður.“ 100% bómull, fóðruð með gæsadún. 100 kr' í tilefni af eins árs afmæli okkar bjóðum við allar myndir á 100 kr. i 15 daga - frá 5.-20. des. JÖLIN NALGAST................................................ Víkur-f réttir fóru á stúfana um daginn og tóku nokkra verslun- armenn tali og spurðu þá hvort jólatraffíkin væri byrjuð. „Fólk kaupir ekki mikið af dýrum stykkjum í ár“ „Jólatraffík? Já, það má segja það“ sa^ði Sigurður Gunnarsson í Hljómval. „Fólk er farið að kaupa það sem þarf að senda erlendis og eru það aðallega hljóm- plötur. Það sem er að núna er það hvað íslensku jóla- plöturnar koma seint á markaðinn. Fólk er lítið farið að kaupa til að gefa hérlendis, þó svo það skoði og pæli mikið í hlutunum. Vinsælasta platan hjá mér núna, það sem komið er, er platan með Ladda og er hún nokkuð góð. Eg á alveg eins von á því að traffíkin verði eins í ár og síðasta ár. Samt á ég von á því að fólk kaupi ekki dýr stykki, heldur verði meira um hljómplötur og hefur salan á hljómplötum gengið vel.“ nSH "1 Vendiúlpur 6 dúnúlpur í einni. „Fjölskylduspilin alltaf jafn skemmtileg“ „Já, hún er aðeins farin að glæðast“ sagði Geir Reynisson í Versluninni Nesbók. „Fólk byrjar núna um mánaðarmótin, þá bæði með jólagjafir og jólakort- in, því það hefur ekki verið verslað mikið af jólakort- um það sem komið er. Bók- salan á eftir að vera góð þó svo hún sé ekki byrjuð enn- „Túpulitir eru vinsælir“ í Hannyrðaversluninni Ingdís hittum við Herdísi Hallgrímsdóttur og spurð- um hana hvort jólatraffíkin væri hafin. „Já, það má segja það og helsta sem fólk kaupir eru dúkar og garn til handa- vinnu. Mikið er um það að fólk vinni gjafirnar sjálft, þær eru hagkvæmari þannig og persónulegri. Það má einnig minna á hina vinsælu túpuliti til að mála með og er það að færast í vöxt að fólk máli sjálft.“ „Sildarpeningana vantar“ „Já, hún er það en samt er ekki langt síðan undir- búningurinn hófst“ sa^ði Elías Guðmundsson í Jarn og Skip. „Hann fer frekar semt af stað í ár, því að í fyrra hófst hann í byrjun nóvember og var þá nóg af síldarpeningum, en nú er ekkert um slíkt. Í ár er ekki um neinar stórbreytingar hjá fólki, það fer frekar í að lagfæra hjá sér og er þá aðallega að pæla í parketi, vegg- og gólfflísum og svo auðvitað málningu og það sem til- heyrir fyrir jólin. Líklega kemur traffík í etta í byrjun desember en ún verður heldur minni en í fyrra.“ ghj./epj. HIIIIIMI MmMLM.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.