Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.12.1985, Blaðsíða 5

Víkurfréttir - 05.12.1985, Blaðsíða 5
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 5. desember 1985 5 4 Nú er JGP-mótinu lok- ið. Talsverðar sviptingar urðu í lokaumferðum mótsins, sem að sjálfsögðu gerði það líflegra en ella. Sveit Boggu Steins hafði verið í forystu allt mótið, en áður en síðasta umferð hófst hafði sveit Guð- mundar Ingólfssonar tekist að ná fimm stiga forystu og spennan því í hámarki. Leikar fóru svo þannig í síðustu umferð, að sveit Guðmundar vann sinn leik 25-2, sveit Boggu vann sinn 21-9. Sveit Guðmundar stóð því uppi sem öruggur sigurvegari, hlaut 220 stig. Auk Guðmundar spiluðu í sveitinni þeir Gísli Torfa- son, Jóhannes Sigurðsson og Karl Hermannsson. Sveit Þórðar Kristjánsson- ar, sem mest allt mótið hafði verið í 5. sæti, tók mikinn endasprett og tókst af öryggi að ná 3ja sætinu, en sveit Sigurðar Stein- dórssonar hafði vermt það sæti allt mótið. Ellefu sveitir tóku þátt í mótinu og urðu úrslit sem hér segir: stig 1. Sv. Guðm. Ing....... 220 2. Sv. Boggu Steins .. 211 3. Sv. Þórðar Kristj. . 189 4. Sv. Sig. Steindórs . 165 5. Sv. Grethe Iversen 145 6. Sv. Marons Björns 140 7. Sv. Hafsteins Ogm. 134 8. Sv. M. Magnús. ... 115 9. Sv. Rastar......... 115 10. Sv. Péturs Júl .... 88 11. Sv. Ufsa ........... 67 Næstu tvö spilakvöld, mánudaganna 9. og 16. des. verður spilaður tveggja kvölda tvimenningur með Barometer fyrirkomulagi og eru peningaverðlaun í boði. 1. verðlaun eru kr. 8.000, 2.verðlaun kr. 5.000, þriðju kr.3.500, fjórðu kr. 2.500 og fimmtu verðlaun kr. 1000. Heildarverðlaun alls kr. 20.000. Bridsáhugafólk er hvatt til að fjölmenna til keppni. Starfsemin eftir áramót hefst svo mánudaginn 13. janúar og verður þá vænt- anlega haldinn aðalfundur félagsins og síðan spila- mennska að honum loknum. Mánudaginn 20. jan. hefst spilamennskan aftur af fullum krafti með meistaramóti félagsins í tví- menningi. Stjórn og fréttaritarar Bridsfélags Suðurnesja óska bridsáhugafólki og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla, árs og friðar og þakkar ánægjulegt sam- starf við útgefendur Víkur- frétta. -þk. Ljós brotiná átta dráttarvögnum í síðustu viku voru brot- in afturljós á átta dráttar- vögnum þar sem þeir stóðu í röð á auðu svæði milli Samkaups og grasvallarins í Njarðvík. Hefur verið gengið á röðina og öll ljósin brotin. Jólabasar f Ytri-Njarð- víkurkirkju Systrafélag Ytri-Njarð- víkurkirkju stendur fyrir jólabasar í safnaðarsal kirkjunnar kk 13 á morgun, föstudag. Á boðstólum verða ýmsir munir s.s. kökur, kökuhús, pickles, jólaskraut og jólakort. epj. Stálu vörubíl í Grindavík Um sl. helgi stálu tveir ölvaðir unglingar, 16 ára gamlir, vörubíl frá frysti- húsi einu í Grindavík. Er þeir náðust voru þeirhættir akstri. Bíllinn eróskemmd- ur eftir þetta ævintýri ungl- inganna, enda þekktu þeir á bílinn, þar sem þeir starfa í frystihúsi þessu. - epj. Er málið í rannsókn hjá lögreglunni og eru allir þeir sem upplýsingar geta gefið um málið, beðnir að snúa sér til lögreglunnar. -epj. Heimsendingar- þjónusta um nœtur Bæjarráð Keflavíkur hef- ur fengið ósk frá Jónasi Omari Snorrasyni f.h. Pítu- bæjar h.f., þar sem hann óskar eftir að fá leyfi til að vera með heimsending- arþjónustu um nætur. Samþykkti bæjarráðið að gera ekki athugasemdir við fyrirhugaða heimsending- arþjónustu, en tók fram að opnunartími verður ein- ungis leyfður til kl. 23.30. epj. í jólablaðið? Hafðu þá sam- band við ritstjórn JÓLAFATNAÐUR á alla fjölskylduna JÓLAGJAFIR föstudag og laugardag. GOÐI kynnir jólahangikjötið og graflamb. Komið og smakkið Ijúf- fengt kjöt frá GOÐA. mmKm KJÖTKYNNING

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.