Víkurfréttir - 05.12.1985, Síða 14
14 Fimmtudagur 5. desember 1985
VÍKUR-fréttir
LESENDASIÐAN - LESENDASÍÐAN - LESENDASÍÐAN - LESENDASÍÐAN - LESENDASÍÐAN
Umferðarmenning í Keflavík
Ég vona að ég móðgi
engan þó ég drjúpi niður
penna og skrifi um umferð-
armenninguna í Keflavík.
Það er óskaplegt að sjá
hvernig ökumenn og aðrir
vegfarendur geta hegðað
sér í umferðinni hér í bæ.
Það virðist engin þekkja hin
almennu umferðarlög,
hvorki hinn almenni borg-
ari eða lögreglan.
Ef farið er hér um bæinn
og komið er inn á aðalum-
ferðaræðar bæjarins, þá er
það eins og að koma inn í
steinöldina. Ökumenn bif-
reiða beygja í ýmsar áttir og
gefa ekki til kynna með
stefnuljósum hvert þeir
ætla að beygja. Hinn gang-
andi vegfarandi gengur
þvers og kruss um akrein-
arnar og sinnir ekki öku-
tækjum sem um þær fara.
Það mætti telja upp
endalaust hvað menn eiga
að gera, og hvað ekki. En
þó keyrir um þverbak
þegar lögreglan virðir ekki
umferðarlögin. Það er það
sem er lögð mikil kennsla í
þegar /arið er í Lögreglu-
skóla Islands.
Það vildi svo til að ég ók í
tvígang á eftir sömu lög-
reglubifreiðinni Ö-4146,frá
gatnamótum Tjarnargötu
og Hringbrautar. Við
ókum eftir Hringbrautinni,
þaðan inn á Flugvallarveg
og inn í Ytri-Njarðvík.
Aldrei (ég segi aldrei) á
þessari leið voru gefin
stefnuljós, og þar að auki
var ekið á 60 km hraða.
í gegnum afturrúðu lög-
reglubifreiðarinnar sá égað
sá sem ók var með lögreglu-
húfu. Þessir menn verða að
sýna það að þeir séu færir til
að stöðva fólk og gefa því
ábendingar um að það sé
ekki að fara eftir lögum.
Svona ökulag sem ég var að
lýsa hér að framan, er of
mikið um hjá ökumönnum
hér í bæ.
Það virðist vera svo, að
þegar þessir menn læra á
bifreið og taka próf, þá gefa
þeir stefnuljós, en eftir það
virðast þeir gleyma því að
stefnuljós séu á bifreiðinni.
Þá er það hinn gangandi
vegfarandi. Það er auðséð
að margir halda að þeir eigi
akbrautirnar, því þeir sýna
ökutækjum enga virðingu
eða þeim sem stjórna þeim.
En svo er ekki. Gangandi
vegfarandi á að halda sig á
gangstéttinni og fara yfír
akbrautir á zebrabrautum,
en ekki hlaupa hvar sem er
yfir akbrautina. Stundum
er erfitt að vera á gangstétt-
um vegna þess að bifreið-
um er lagt þar upp á, en það
er auðvitað algjörlega
bannað. Svona atburði eins
og ég hef nefnt hér að fram-
an má sjá víða hér í bæ, og
er þetta tillitsleysi í hæsta
máta hvor fyrir öðrum.
Það er mjög sjaldgæft að
sjá ökumenn stöðva við
zebrabraut fyrir gangandi
vegfaranda. Þetta er mjög
hvimleitt að sjá. Tökum til
dæmis, að sjá móður með
kornabarn bíða eftir að bif-
reiðir stoppi og hleypi þeim
yfir. Og ef bifreið stoppar,
þá eru bifreiðar sem koma
úr gagnstæðri átt ekki til-
búnar að stoppa. Þessu hef
ég marg oft orðið vitni að.
Svo eru aftur aðrir gang-
andi vegfarendur sem æða
út á zebrabrautina og
hugsa ekkert um umferð-
ina hversu mikil sem hún
er. Þetta er stórhættulegt
bæði akandi og gangandi
vegfarendum.
Það er óhugnanlegt að
sjá foreldri hlaupandi út á
akbraut með barn sitt í eft-
irdragi. Þeir sem gera slikt
hugsa greinilega ekki til
enda, því þegar barnið
vex upp, þá er ekki líklegt
að það beri virðingu fyrir
umferðinni. Lítil fræðsla er
í grunnskólum hér um um-
ferðarlög eða hvernig böm
eiga að hegða sér í umferð-
inni. Þetta þarf að laga og
það kostar ekki mikið að
senda góðan lögreglu-
mann í skólann og kynna
umferðarlögin.
Hvar er lögreglan hér i
bæ? Það er eins og við
höfum enga lögreglu hér.
Hún sést alltof sjaldan, og
aldrei hef ég séð hana
stugga við þeim sem eru að
brjóta af sér í umferðinni.
Hvar er véladeild lögregl-
unnar, sem var um tíma
sæmilega virk á gatnamót-
um? Er hún úr sögunni og
tilheyrir hún fortíðinni?
Það væri ánægjulegt að sjá
lögreglumann ganga úr
lögreglubifreið og út á
götuna til að stjórna um-
ferð þar sem umferðarhnút-
ur hefur myndast, en ekki
aka framhjá og láta sem að
honum komi þetta ekkert
við. Þetta sem ég hef sagt
hér að framan er staðreynd.
Ég hef oft orðið vitni að þvi
að lögreglubifreið hefur
ekið framhjá umferðar-
hnútum. Það er eins og þeir
segi: „Okkur kemur þetta
ekkert við“.
Það þarf að bæta
umferðarmenninguna hér í
Keflavík og nágrenni. Slikt
tekst ekki nema með hjálp
Stundum kemur það
fyrir að maður verður undr-
andi. Svo er um þessafyrir-
sögn sem var i Víkur-frétt-
um 21. nóv. ’85. Þar lætur
stöðvarstjóri Pósts og síma
ljós sitt skína, sennilega af
rafgeymi.
í þau ár sem ég hef búið í
Snadgerði hefur það verið
þannig, að í stórviðrum
hefur verið hér rafmagns-
laust tímum saman. Það
undrar mig alls ekki, því ég
veit að línudrasl RARIK
hér á Suðurnesjum er meira
og minna ónýtt eða þá
lélegt. Þeir menn sem hafa
haldið rafmagni hingað til í
stórviðrum hafa unnið gott
starf, sem ber að þakka en
ekki vanmeta.
En sá skyndilegi áhugi
stöðvarstjóra Pósts ogsíma
fyrir rafmagni í Höfnum og
hér á Suðurnesjum er mér
mikið umhugsunarefni.
Eru mér í minni skrif hans
til Ottars Guðmundssonar
læknis, út af lélegum síma
þar, sem stöðvarstjóri
sagði eitthvað á þá leið, „að
menn ættu að borga
símareikninga þegjandi og
hljóðalaust þegar þeir
bærust, og þá batnaði þjón-
ustan“.
lögreglu, og hún þarf að fá
vegfarendur í lið með sér.
Samvinna er nauðsynleg og
báðir þessir aðilar þurfa að
vera virkir.
Svo þakka ég birtingu
þessarar greinar.
Ég á góðan kunningja í
Höfnum og það get ég sagt
stöðvarstjóra, að það hefur
komið fyrir oftar en einu
sinni, bæði hjá honum og
mér, að síminn hefur virkað
á tali þó enginn hafi verið
heipa til að tala.
Ég hef átt lögheimili á
átta stöðum á landinu og
aumasta ástand og
þjónusta símans er hér í
Sandgerði, að undanskild-
um þó útburði bréfa.
Mig undrar það að stöðv-
arstjóri skuli telja eitthvert
lögmál að linudrasl
RARIK snöggbatni, þótt
Hitaveita Suðurnesja taki
við þessum rekstri. Maður
ætti fremur að hugsa sem
svo, að meðan þau eigenda-
skipti eru að ganga í gegn,
væru meiri líkur á að eitt-
hvað færi úrskeiðis.
Við lestur greinarinnar í
Víkur-fréttum 21. nóv. datt
mér í hug gömul setning:
„Þar skeit sá sem ekkert
hafði til að gera það með“.
Vonandi veit þessi skyndi-
legi áhugi stöðvarstjóra
fyrir Suðurnesjum, á að
ástand símans batni í
Höfnum og í Sandgerði.
Guðmundur Vigfússon
Sandgerði
Suðurnesjabúar
komið tímanlega í jólasnyrtinguna.
10% afsláttur í desember
af allri okkar vinnu.
Jólagjöfin okkar til ykkar.
Dömu- og herra-ilmvötn í úrvali.
verið velkomin.
Hafnargötu 23, II hæð, Keflavík
KEFLAVÍK
AUGLÝSING
um tímabundna umferöartak-
mörkun í Keflavík
Frá föstudeginum 6. desember 1985 til
þriðjudagsins 31. desember 1985, að
báðum dögum meðtöldum, er vöruferm-
ing og afferming bönnuð á Hafnargötu á al-
mennum afgreiðslutíma verslana.
Á framangreindu tímabili verða settar
hömlur á umferð um Hafnargötu og nær-
ligjjandi götur ef þurfa þykir, svo sem
tekinn upp einstefnuakstur eða umferð
ökutækja bönnuð með öllu. verða þásettar
upp merkingar er gefa slíkt til kynna.
Keflavík, 1. desember 1985.
Lögreglustjórinn í Keflavík
F.Þ.
Bréfritari er óánægður með umferðarmenninguna í Keflavík.
„Við krefjumst þess
að þetta verði lagað"