Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.12.1985, Síða 15

Víkurfréttir - 05.12.1985, Síða 15
VIKUR-fréttir Fimmtudagur 5. desember 1985 15 Orðvar skrifar: Fengitlmi stjórnmálamanna Handabandavertíðin er að ganga í garð um allt land, og frambjóðendur eru strax farnir að hlaupa fólk uppi á strætum og mannamótum til að klappa því og sýna þeim aðra umhyggju. Frambjóð- endur stjórnarflokkanna spyrja gjarnan um heilsufar, barnsfæðingar og dauðsföll innan fjölskyldunnar. Þeir minnast lítillega á væntan- legar kosningar en leggja sérstaka áherslu á áratuga vináttu við fjölskylduna. Stjórnarandstöðuframbjóð- endur hafa allt önnur áhugamál. Þeir hafa sér- stakt dálæti á húsbyggjend- um og öllum sem eiga í fjár- hagsvandamálum. Þeir vita upp á hár af hverju svona er komið fyrir viðkomandi at- kvæði og hverjir eiga sök á allri ógæfu byggðarlagsins. „Auðvaldsstétt er bannorð í þessari kosningabaráttu meðan ekki er vitað hverjir stunda aðallega okurlána- viðskipti. Allir eru undir grun og engin skýr regla um hverjir eru veitendur og hverjir eru þiggjendur. Ef vafasamt atkvæði tekur hlý- lega í hönd frambjóðandans eru smá-spámenn flokksins strax sendir til að kanna frekari undirtektir. Atkvæð- ið kemst á skrá og er sýnd öll hugsanleg umhyggja fram yfir kosningar Bæjar- og sveitarstjórnar- kosningar eru mun mann- eskjulegri en t.d. prestkosn- ingar, því fólkið situr þó ekki uppi með sömu sveitar- stjórnarmenn ævilangt. Heiðarleiki í kosningum er mjög vafasamt hugtak, á það bæði við um frambjóð- endur og atkvæðin. Sagan greinir frá einum ungum og heiðarlegum manni sem náði kosningu. I unggæðisskap sínum rifjaði hann upp kosn- ingaloforðin á sínum fyrsta bæjarstjórnarfundi, öllum til mestu skapraunar. Gerð voru hróp að manninum sem að lokum hljóp út af fund- inum. Hann mætti aldrei á fund eftir þessa útreið og fyrirgerði þar með rétti sínum til starfa seinna meir hjá SSS. Atkvæðið á við allt önnur vandamál að stríða. Láti það upp trúnað við einhvern flokkinn, eru óðar komnir 50 happdrættismiðar inn á borð til hans, og hafi atkvæðið talað óvarlega á tveimur stöðum geta miðarnir orðið hundrað. Eina leiðin út úr þeim vandræðum er að gefa frat í þessa tvo og snúa sér að þeim þriðja. Þetta skilja reyndar aðeins þeir sem hugsa í gegnum veskið sitt. Við óskum öllum lands- mönnum góðrar skemmtun- ar í slagnum. Orðvar DUN- doncano úLPUR á dömur og herra. Patton er greinilega starfi sínu vaxinn og varð fyrstur á vettvang í brunanum í I-Njarðvík á dögunum, enda kofinn aðeins örfáa metra frá heimili hans. En skyldi hann vera svona vel afsiappaður í brunaútkalli á flugvellinum? Ljósm.: pket. Get bætt við mig verkefnum Málningar- þjónusta Óskars SÍMI 7644 EINTAK tekið til gjaldþrota- skipta Skiptaráðandinn í S- Múlasýslu hefur nýlega kveðið upp^úrskurð þess efnis að bú Árna Margeirs- sonar, Bjarkarhlíð 5, Egils- stöðum, áður til heimilis að Hólabraut 7, Keflavík, á- samt búi Eintaks sf., Kefla- vík skuli tekið til gjald- þrotaskipta. Skorar hann á alla þá sem telja sig til skulda í bú- inu að lýsa kröfum sínum innan tveggja mánaða frá viðkomandi birtingu. epj. Vandaðar vörur fyrir fágaðan smekk Viljir þú vin gleðja, þá veldu honum eitthvað sérstakt. Hef til sölu úrval málverka og grafíkmynda eftir þjóð- kunna listamenn. Innrömmun Suðurnesja Vatnsnesvegi 12 - Keflavík. Sími 3598.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.