Víkurfréttir - 05.12.1985, Síða 16
16 Fimmtudagur 5. desember 1985
VÍKUR-fréttir
i «Z27
an
Tw
ÍV
M
Houfytar^^L
<s>r 1 y \ / \e_/ £ / 1 5 ^ 1 nr 5 K. 4 ííl
i *• Z 1 i i éL V t
éL r 9 í S i a- é € 9 u n í
L 1 i *■ i J V - e 9
SuJLryoéa.
IL
r
r
r r
TILKYNNING UM
ÁRAMÓTABRENNUR
Þeim sem hafa ætlað sér að hafa áramótabrennu á svæði
Brunavarna Suðurnesja, ber að sækja um leyfi til Slökkvi-
liðs B.S. i Keflavík.
Skilyrði fyrir leyfisveitingu er, að ábyrgðarmaður sé fyrir
brennunni.
Brennur sem verða hlaðnar upp og ekki hefur verið veitt
leyfi fyrir, verða fjarlægðar.
Umsóknir berist fyrir 20. desember 1985.
Lögreglan I Keflavik, Grlndavik, Njarðvfk
og Gullbringusýslu
Brunavarnir Suðurnesja
TILKYNNING
KEFLAVÍK - NJARÐVÍK
GRINDAVÍK - GULLBRINGUSÝSLA
Samkvæmt lögum nr. 46/1977 og reglu-
gerð nr. 16/1978, er hverjum og einum ó-
heimilt að selja skotelda eða annað þeim
skylt, nema hafa til þess leyfi lögreglu-
stjóra.
Þeir sem hyggja á sölu frarhangreinds
varnings, sendi umsóknir sínar til yfirlög-
regluþjóns í Keflavík, eigi síðar en 20. des-
ember 1985. Að öðrum kosti verða um-
sóknirnar ekki teknar til greina.
Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögreglu-
þjóni á lögreglustöðinni í Keflavík.
Lögreglustjórinn í Gullbringusýslu
Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík
og Njarðvík
Einstefnuakstur verður tekln upp á Hafnargötu I norður frá Vatnsnestorgi að Aðalgötu, frá 6. des.
Jólaumferðin
Senn líður að jólum og
gamla jólaskapið fer að
segja til sín enn einu sinni.
Allir sem vettlin^i geta
valdið fara nú á stja, ýmist
fótgangandi eða á ökutækj-
um, í leit að jólaglaðning-
um fyrir sig og sína. Af
þessu leiðir að umferð
eykst til muna, sérstaklega í
kringum verslanir og hafa
lögregluyfirvöld ákveðið að
;era breytingar á gangi um-
erðarinnar í aðal verslunar-
kjarna Keflavíkurbæjar.
(Sjá meðfylgjandi teikn-
ingu).
Föstudaginn 6. desember
n.k. verðureinstefnuakstur
tekinn upp á Hafnargötu í
norður frá Vatnsnestorgi
að Aðalgötu. Hugmyndin
með þessari breytingu er sú
að reyna að fjölga bifreiða-
stæðum við Hafnargötu,
en til þess að það beri tilætl-
aðan árangur verða menn
að athuga að nota rétt pað
aukna rými sem gefst í bif-
reiðastæði. Það gera þeir
best með því að leggja fram-
endum bifreiða sinna að
gangstéttarbrún (sjá teikn-
ingu). Bifreiðastæðin verða
svotil eingöngu hægra
megin á götunni nema þar
sem útskot hafa verið tekin
úr gangstéttunum vinstra
megin, en þar leggja menn á
sama hátt og þeir eru vanir.
Sandgerðingar - Miðnesingar
Frá og með 1. desember verður að greiða alla
orkureikninga frá Rafveitu Miðneshrepps á skrif-
stofu Miðneshrepps, Tjarnarhötu 4 í Sandgerði.
ATH:
Frá 1. desember er ekki hægt að greiða orku-
reikninga sem Rafveita Miðneshrepps hefur
sent út, í bönkum, sparisjóðum eða pósthús-
um.
Sveitarstjóri Miðneshrepps
Brýnt er fyrir ökumönn-
um að leggja ekki vinstra
mej»in við gangstéttar-
brun, enda eru uppi
merki sem banna slíkt. Ef
allir eru nú samtaka um að
leggja bílum sínum á þenn-
an hátt sem lýst hefur verið,
ætti bifreiðastæðum að
fjölga verulega og jafnframt
ætti þessi breyting að auka
öryggi gangandi vegfarenda
þar sem þarna verður
aðeins ein akrein sem fara
þarf yfir. Þessi fjölgun á bif-
reiðastæðum ætti að draga
úr hvimleiðum hringakstri
ökumanna sem hafa verið
að leita að bifreiðastæðum.
En þrátt fyrirþessafjölg-
un á bifreiðastæðum þá eru
menn hvattir til að nota tvo
jafnfljóta í auknum mæli
þegar þeir eiga erindi í mið-
bæjarkjarna Keflavíkur.
Leggja þá bifreiðum sínum
í mjög góð bifreiðastæði
sem eru t.d. framan við
Félagsbíó og norðan við
skrúðgarðinn gegnt ný-
byggingu Sparisjóðsins.
Lögreglan vill beina
eindregnum tilmælum til
atvinnurekenda sem eru
með rekstur sinn við Hafn-
argötu, að brýna harðlega
fyrir starfsfólki sínu að
leggja ekki bifreiðum
sínum í bifreiðastæðin við
götuna.
K.H.
Leifar bryggjunnar fjarlægðar
Hinar hættulegu leifar af gömlu olíubryggjunni í Keflavík hafa nú
verið teknar á land og verða væntanlega fjarlægðar alveg á næst-
unni. Að undanförnu hefur eina notkunin á bryggjunni verið í formi
leiksvæðis fyrir börn, og sjá allir í huga sér að það er hættulegt leik-
svæði. Er því ekki að efa að foreldrar barna í nágrenninu geta nú
andað léttar af þessum sökum. - epj.
Til styrktar Þroskahjálp
Þessi 4 ungmenni héldu nýlega hlutaveltu til styrktar Þroska-
hjálp á Suðurnesjum og varð ágóðinn kr. 365. Þau heita f.v.: Arnar
Már Frímannsson, Karen Guðfinna Guðmundsdóttir, Magnea Frí-
mannsdóttir og Signý Harðardóttir.