Víkurfréttir - 05.12.1985, Blaðsíða 17
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 5. desember 1985 17
Atvinnu - ekki forsjð
Er þörf fyrir verndaðan vinnustað á Suðurnesjum?
Lesandi góður, er þér
kunnugt um einhverja Suð-
urnesjamenn sem fá hvergi
launaða vinnu vegna
ástæðna sem rekja megi til
fötlunar eða annars? Fólk
sem gjarnan vildi verða að
liði í samfélaginu, eins og
flestir þegnar þessa ríkis. Ef
svo er skaltu skerpa skiln-
ingarvitin. Lestu þessa
grein.
Jafnvel smæstu lífverur
eiga sér hlutverk í lífinu,
rot gerlar, plöntur sem og
allar aðrar verur hafa sinn
tilgang, nema hjá þeirri sem
teljast á viti borin. Þeir sem
minna mega sín eru látnir
gjalda þess alla sína tilveru.
Hrekjast úr einum stað til
annars, uns þeir oft eru
settir á stofnun, þar sem
minnst fer fyrir þeim. í
Íæssu sambandi ræddi sál-
ræðingur hver þörf væri
fyrir sálarheill hvers manns
að finna sér hlutverk í líf-
inu, að vera ekki fimmta
hjól undir þjóðarvagn-
inum, taka þátt í uppbygg-
ingu þjóðfélagsins. Hverj-
um sæmilega siðuðum
manni bæri því siðferðileg
Framh. á 18. síðu
Fötluðu fólki er jafnmikil nauðsyn fyrir félagsleg samskipti og öðru
fólki.
Laugardaginn 16. nóv-
ember sótti undirritaður
ráðstefnu í Reykjavík. Ráð-
stefnu sem haldin var á
vegum Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra, og bar
yfirskriftina „atvinnu-ekki
forsjá". Hún var í raun
opin öllum sem vilja láta
mannréttindamál sig ein-
hverju varða, en af skiljan-
legum ástæðum var ráða-
mönnum vel flestum sent
boðsbréf, ráðherrum, þing-
mönnum, bæjar- og sveitar-
stjórnarmönnum og at-
vinnurekendum í þeirri
veiku von að þeir gætu orð-
ið að liði í baráttu fatlaðra
fyrir sjálfsögðum mann-
réttindum. Þrátt fyrirþessa
viðleitni varð árangur ekki
sem best væri á kosið. Að-
eins einn þingmaður mætti,
Helgi Seljan frá stjórnar-
andstöðunni sem sat fyrri
hlutann. Alla ráðstefnuna
sat þó fulltrúi félagsmála-
ráðherra og fyrrum bæjar-
stjóri Keflvíkinga, Jóhann
Einvarðsson, sem er fyrrum
jingmaður. en látum
sessum inngangsorðum
okið og snúum okkur að
aðalmálinu.
Fyrirlestrar og umræður
Fram kom að töluvert
hefði áunnist í baráttunni,
t.d. Skóli fatlaðra og nokk-
rir verndaðir vinnustaðir á
höfuðborgarsvæðinu. Enn
væri þó langt í land, þar til
fatlaðir o^ ófatlaðir nytu
jafnréttis a vinnumarkaðn-
um eða í þjóðfélaginu yfir
höfuð.
Einn fyrirlesturinn fjall-
aði m.a. um þörfina til að
kanna hversu margt fatlað
fólk hírðist í heimahúsum
aðgerða- og sinnulaust. Af-
eiðingarnar yrðu þær, að
>etta fólk liði miklar and-
egar kvalir. Hugsaðu þér í
ullri einlægni hvernig þér
íugnaðist að vera í sporum
slíkra manna, atvinnulaus,
bundinn við hjólastól ell-
egar rúmið, geta þig naum-
ast hreyft spönn frá rassi
nema með aðstoð annarra.
Fötluðu fólki er jafnmikil
nauðsyn fyrir félagsleg sam-
skipti og öðru fólki, ef ekki
meiri. Til að mynda á
vinnustað, þar sem tötluð-
um tekst oft að mynda sér
jákvæðari sjálfsmynd vegna
viðbragða annarra og vissu
þess að vera ekki ómagi á
kerfinu.
VAXTAUPPBÓT
þrátt fyrir eina úttekt á
hverju vaxtatímabili.
Oryggislykill
sparifjár-
eigenda
• Vaxtavextir reiknast fjórum
sinnum á ári.
• Sparifé á KASKÓ er óbundið og því
alltaf hægt að losa fé án fyrirvara.
V€RZLUNflRBRNKINN
Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - Sími 1788
-vúuM/i Mteð fiéx !