Fréttabréf - 01.02.1992, Qupperneq 1
Áh. KrúCu HittJirtdiCtir
Utf. KrunHiCi", UytnfiT7
Smi: 91-13725, fu: 91-27560
Meinhollt og uppbyggjandi!
Jæja, stúlkur, hér kemur þá 2. tbl. Fréttabréfsins 1992,
sneisafullt af meinhollum og uppbyggjandi fróöleik og skemmtiefni í
hæfilegum hlutföllum.
Þiö fáiö æsispennandi framhaldsþátt útvarpskómedíunnar á
gamlársdag, hrollveiyandi (þ.e.a.s. hrollveHjandi fyrir karlrembur)
upptalningu á máipípum Kvennalistans í hinum ýmsu stjómum,
nefndum og ráöum á vegum hins opinbera, magnþmngna miölun
upplýsinga um ræöuhöld Kvennalistakvenna á Alþingi og angafréttir í
sérflokkl. Ritstýrá var satt aö segja farin aö halda, aö úr þessu yröi
feröablaö, en ekki orö um þaö meiri Aöeins þetta: Þiö missiö af
miklu, ef þiö lesiö ekki hvert einasta oröl Og hana núl - sagöi hænan.
Muniö svo, aö Fréttabréflö er fjölmiöillinn ykkar. Þiö mættuö
alveg vera duglegri aö skrifa. Þaö má vera remba af ýmsu tagi, póli-
tísk remba, alvarleg remba, fyndin remba. Hvaö segja td. ailar
hugmyndaríku, bráöfyndnu og stórskemmtilegu konumar, sem
hittast á landsfundum og hinum og þessum kvennamótum (sbr.
mannamótum) Kvenneilistans? Sumar jafnvel hagmæltarl
Hvemig væri aö senda Fréttabréfinu eina lauflétta stöku,
limru eöa gamansögu? Hér er ein iétt og laggóö, sem Quörún Agnars
gaukaöi nýlega aö tíöindakonu Fréttabréfsins:
.Veistu hvers vegna þarf flmm Kvennalistakonur tíl þess aö
skipta um peru í ljósastæði? Þaö er vegna þess aö þaö þarf eina til
aö skrúfa pemna í og fjórar til aö deiia meö henni reynslunni.'
Kunniö þiö aöra betri? KH