Fréttabréf - 01.04.1992, Blaðsíða 6
Óspart spurt
Alþingismenn eru enn viö sama heygarðshomið, þeim
er svo mikiö niðri fyrir, að venjulegur þingfundatími dugir
engan veginn. Mestur tími fer í umræður utan dagskrár svo
og frumvörp, tillögur og skýrslur frá ráðheirum, en tillögur
þingmanna mæta afgangi. Þingmál Kvennalistakvenna sæta
sömu örlögum, þær hafa ekki náö aö mæla fyrir nema þrem-
ur þeirra, 11 bíða umræöu, og sum þeirra hafa legið fyrir
þinginu síðan í nóvember. Þetta er mjög óvenjulegt ástand,
en skýrist auövitaö af því, aö þingmenn stjómarandstöðu
hafa reynt að veita rækilegt viðnám gegn afdrifaríkum ákvörö-
unum og geröum ríkisstjómarinnar. En við þessar aöstæöur
er helsta ráöiö aö beita fyrirspumaforminu til þess aö hreyfa
við málum, og það hafa Kvennalistakonur gert óspart.
Quöný Quöbjömsdóttir sat nýlega tvær vikur á þingi í
staö Kristínar Einarsdóttur, sem sótti m.a. þing Noröurlanda-
ráðs í Helsinki. Quðný hafði ætlaö sér að nota tækifærið og
eiga oröastaö viö menntamálaráöherra um málefni leikskóla,
gmnnskóla og framhaldsskóla, en hann var litiö viö þessa
daga, svo aö Quöný tók þaö til bragðs aö óska skriflegra
svara viö nokkmm fyrirspumum, sem reyndar hafa enn ekki
borist, þegar þetta er skrifaö.
Skólagjöld, niöurskurður, leikskóli o.fl.
Quðný spyr m.a., hvemig skráningargjöld í framhalds-
skólum og hækkun skólagjalda í Háskóla íslands samræmist
6. gr. laga um skólakerfi þess efnis aö kennsla skuli vera
ókeypis i öllum opinberum skólum.