Fréttabréf - 01.12.1992, Blaðsíða 7
Norðurlandaráð æskunnar '93
Kven ráðs æskunr nalistanum hefur borist boð á fund Norðurlanda- íar í Osló dagana 26.-28. febrúar 1993. Sam-
landaráðsþit íg, sem haldið verður i bcinu framhaldi dagana
1.-4. mars. ril fundarins mæta fulltrúar úr ungliðahreyfing-
um stjórnmá lahreyfinga á INorðurlöndunum. Eins og konur
vita er engii í slík hreyfíng til innan Kvennalistans. en við
hvetjum þaei r í „yngri kantinum” til að sækja um. Frekari
uppiysinyar, áLaugavegi 17, s. 13725. Umsóknarfrestur er til föstudags-
ins 8. janúar 1993.
Atvinnumálin rædd í
Reyty anesanga
Haldinn var félagsfundur í Reykjanesanga 17. nóv. sl.
Þar var rætt um niöurstööur landsfundar og um nýtt skipulag
málefnavinnu innan Kvennalistans, sem geröar voru tillögur
um á landsfundinum. Qestir fundarins voru tvær forsvarskonur
áhugahópa um atvinnumál kvenna, sem sprottiö hafa upp á
Suðumesjum í atvinnuleysinu þar. Sögðu þær fréttir af starfinu
og spunnust miklar umræður um ástand mála á Suðumesjum,
en hvergi á landinu er meira atvinnuleysi meðal kvenna. Þá var
rætt um aukið samstarf við Reykjavíkuranga, m.a. um laugar-
dagskaffið, og voru þær Ella Kristín Karlsdóttir og Quðrún
Sæmundsdóttir tilnefndar í laugardagskaffinefnd af hálfu
angans.
Til stóð að halda næsta félagsfund Reykjanesangans
15. des. nk., en nú hefur verið ákveðið að hvetja Reykja-
neskonur þess í stað til að fjölmenna á Laugaveg 17 næsta
laugardag, þar sem Inga Huld Hákonardóttir mun kynna bók
sína „Fjarri hlýju hjónasængur". Þá eru konur ekki síður hvattar
til að koma í jólaglöggið okkar föstudaginn 18. des. kl. 17-19.
Með nýju ári munum viö svo einhenda okkur í pólitíska starfiö,
endumæröar eftir friösælar jólastundir í faömi fjölskyldunnar.
Með kveðju frá framkvæmdanefnd Reykjanesanga.