Fréttabréf - 01.01.1995, Síða 1
Ái. fcritCi HiJUimliCtir
(jtf. túmnfotM*, Uiftnfiff
Smi: 91-73725, (u: 91-27560
Stefnuskrárdagar
28. - 29. janúar
Síöustu vikur og mánuöi hafa hinir ýmsu kaflar stefnu-
skrár Kvennaiistans veriö í endurskoöun og endurvinnslu fyrir
naestu kosningar. Forsendur hafa breyst í sumum málaflokk-
um, sumt oröiö úrelt, og víöa þarf aö skerpa áherslur. Þetta er
alltaf mikiö vandaverk og reynt eftir fremsta megni aö tryggja,
aö sem flestar komi þar aö verki. Fyrst voru hópar aö störfum,
sem skiluðu drögum um ýmsa málaflokka til landsfundar.
Þaöan komu athugasemdir, sem haföar voru til hliösjónar viö
nýja yfirferö og kaflamir síöan sendir til yflrlestrar í öngunum.
’Er þetta endemis samráö ekki komiö út í öfgar?', sagöi ein
mæt kvennalistakona, sem fariö var aö blöskra allar þessar
sendingar fram og aftur. En viö gefum ekkert eftir.
Skipulagiö hefur reyndar fariö nokkuö úrskeiöis hjá okkur,
konur hafa alltaf svolitla tilhneigingu til aö hafa fjölskylduna í
fyrirrúmi, ekki síst þegar jólahald og áramót kalla á kvenlega
forsjá, og stjómmálin veröa þá gjama útundan í samkeppni um
starfskraftana. Best aö sleppa hryllingssögum um fjölgun grárra
hára í höföum starfskvenna, en þaö endaöi auövitaö meö því,
aö endurskoöuö drög vom send út í alla anga og hafa vonandi
skilaö sér aftur meö athugasemdum, þegar þetta er lesiö.