Fréttabréf - 01.02.1995, Page 5
Framkvæmdanefndin er sem óöast aö skipuleggja kosn-
ingabaráttuna, enda styttist óöum tíminn til kosninga. Væntan-
lega leigir Reykjavíkurangi húsnæöiö á Laugavegi 17 undir
kosnlngaskrifstofu, og ráöning kosningastýru er í buröariiönum,
Starfshópar um fjáröflun, áróöur, dreifingu, gerö kynningar-
bands, daglega viöveru á kosningaskrifstofu, vinnustaöafundi
o.fl. eru teknir til starfa, og er mikill hugur í konum aö snúa nú
vöm í sókn og tiyggja Kvennalistanum góöa kosningu. Konur
em hér meö hvattar til aö fylgjast vel meö og taka virkan þátt í
kosningabaráttunni.
Kosningaundirbúningur gengur vel á Vestfjöröum. Veriö
er aö leggja síöustu hönd á framboöslistann, par sem Jóna
Valgeröur veröur í 1. sæti, Björk Jóhannsdóttir á Hólmavík í 2.«
Ágústa Qísladóttir á ísaflröi í 3. sæti, Þórunn Játvaröardóttir,
Reykhólum, í pví 4. og Ámheiöur Quönadóttir, Breiöuvik,
Vesturbyggö, í 5. sæti, en listinn í heiid birtist í næsta frétia-
bréfl. Kosnlngaskrifstofan veröur í Hafnaistræti 11 (gðmlu
blómabúöinni, 2. hæö), ísaflröi, og kosningastýra veröur
Sigríöur Bragadóttir.
Þorrablótin standa nú sem hæst á Austurlandi sem annars
staöar, og Salóme var rétt komin heim af aöalblótlnu, þegar
fréttabréflö leitaöi fregna af framboösmálum austur þar.
Hiöurstaöan var aö bíöa meö slíkt til næsta fréttabréfs, því
ekkert er enn frágengiö meö listann né annan undlrbúning.
Þaö er gott hljóö í Kvennalistakonum á Suöurlandi, en
stórfréttir veiöa aö bíöa næsta fréttabréfs. Listinn er ennþá
leyndarmál og ekki búiö aö ganga frá ráöningu kosningastým
né festa húsnæöi undir kosningaskrifstofu, en allt er þetta á
næsta leiti.
5