Fréttabréf - 01.02.1995, Qupperneq 6
Hverju viljum við breyta
í kosningalögunum?
SKömmu fyrlr jól tókum vlö Sigríöur Ingibjörg Ingadóttir
og Anna Ólafsdóttir Bjömsson til starfa í nefnd, sem er aö
skoöa kosningalög og kjördæmaskipan meö þaö í huga aö
jafna atkvæöisrétt eitthvaö frá því sem nú er. Viö höfum
fundaö stíft og rætt maiga möguleika til breytinga á kosninga-
lögunum. Sumir þeima útheimta breytinggir á syómarskránni,
en aörir ekki. Stjómarskrárbreytingar þarf að samþyklya á
tveimur þingum meö kosningar á milli, þannig aö ef viö sam-
þykkjum einhverjar slíkar breytingar nú kæmust þær í fram-
kvæmd 1999, ef þær fengju samþykki nýs þings í haust eöa
síöar. Skemmst er frá því aö segja, aö brátt munu liggja fyrir
tillögur um einhverjar breytingar, hugsEinlega ekki aörar en þær
aö festa „flakkarann' í Reykjavík. Jafnframt mun eitt þingsæti
færast frá Noröurlandi eystra til ReyKjaness í þessum kosning-
um, en þaö er samkvæmt núgildandi lögum. Viö höfum kynnt
umræöuna í samráöi og þingflokki jafnóöum og hún hefur þró-
ast, en nýjar hugmyndir koma fram daglega. Þótt e.t.v. muni
ekki draga til mikilla tíöinda nú ætlum viö til fróöleiks aö kynna
nokkrar þeirra hugmynda, sem veriö hafa í umræöunni viö
mismikinn fögnuö einstakra nefndarmanna.
Breytingar á kj örd æmam örku m
rjórir möguleikar hafa veriö ræddir:
1. Landiö allt eitt kiórdæmi.
2. Stækkun núverandi kiórdæma, Þetta er hægt aö gera
meö eöa án breytinga á kjördæmamörkum. Melst hefur veriö
talaö um aö sameina Vesturlands- og Vestfjaröakjörtiæmi og
rioröurlandsKjördæmin vestra og eystra. Einnig aö slengja
saman Austurlands- og SuöurlandsKjördæmi eöa breyta
mörkum þeirra. Hugmyndir um sameiningu ReyKjaness og
Reykjavíkur, aö hluta eöa alveg, hafa einnig komiö til tals.
6